Morgunblaðið - 16.11.2018, Page 12

Morgunblaðið - 16.11.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2018 Veldu Panodil® sem hentar þér! Verkjastillandi og hitalækkan Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis d dreif eða lyfjafræ r par kanir. Sjá nánari up flur. Innihelduinntö ðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaver ku, Panodil Brus freyðitö i a, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til kjum. Hitalækkandi. serlyfjaskra.is. gum ver á www. acetamól. Við væ plýsingar um lyfið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Bókasöfn eru að breytast;bækurnar eru vissulegaáberandi en ekki lenguraðalatriðið,“ segir Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður í Reykjavík. „Nálgunin í nútímanum er að söfnin séu miðlæg í hverju hverfi; vettvangur fyrir margvíslega viðburði og fjölbreytt fræðslustarf af ýmsum toga. Á hverjum degi er í söfnunum okkar ýmislegt á dagskrá sem skiptir samfélagið máli. Söfnin eiga að efla læsi og styðja við lifandi upplýsingamiðlun og fjölbreytt fræðslustarf. Vera vettvangur nýj- unga, lærdóms og símenntunar fyrir alla borgarbúa.“ Tugir af Arnaldi og Yrsu Tíminn sitthvorumegin við ára- mót er skemmtilegur á safninu, seg- ir borgarbókavörður. Jólabókaflóðið kemur sterkt inn. Keyptar eru flest- ar ef ekki allar þær bækur sem gefnar eru út á Íslandi og allt það nýjasta er komið í útlán. „Við kaup- um alltaf nokkra tugi til dæmis af bókum Arnaldar og Yrsu sem eru líka mjög eftirsóttar. Það gildir raunar um bækur margra annarra höfunda. Áhugi fyrir nýjum bókum er mikill, en mikil aðsókn er í safnið eftir nýár þegar hægist um hjá fólki eftir jólin og meiri tími er til lestrar. Þá hefur líka spurst út hvernig hin og þessi bókin er og allt slíkt skapar áhuga.“ Lítum á nokkrar lykiltölur úr starfsemi Borgarbókasafnsins. Söfnin eru sex talsins; í Grófarhús- inu í Kvos, Kringlu, Sólheimum, Gerðubergi í Breiðholti, Hraunbæ og í Spönginni í Grafarvogi. Þá rek- ur safnið bókabílinn Höfðingja og sögubílinn Æringja. Heimsóknir á safnið eru um 600 þúsund á ári og útlán á bókum, myndefni, tónlist og öðru eru um 700 þúsund. Alls eru í eigu safnsins um 415 þúsund eintök af bókum og öðru efni. Þá eru haldn- ir á vegum þess um 300 viðburðir á ári; skemmtun og fræðsla. Helst það í hendur við að nú eru bókasöfnin kölluð menningarhús. Safnastarf í örri þróun „Starfsemi bókasafna erlendis er í örri þróun um þessar mundir,“ segir Pálína. Í Helsinki verður opn- að nýtt aðalsafn í byrjun næsta mánaðar og í Osló á næsta ári. Í norsku höfuðborginni er nú verið að endurnýja öll hverfissöfnin og upp- færa starfsemina þar í samræmi við kröfur nútímans. Í Danmörku hafi svo ýmis afgreiðsla opinberrar þjón- ustu kommúnanna, sem Danir kall- ar svo, verið færð inn í söfnin og það gefi góða raun. „Víða um lönd er í dag verið að útbúa opin bókasöfn. Það þýðir að afgreiðslutíminn er langur þótt starfsfólk sé ekki á staðnum nema kannski á dagvinnutíma. Almenn- ingur getur þá nýtt sér safnið frá klukkan sjö á morgnana og fram undir miðnætti. Þegar við höfum ör- yggiskerfi og myndavélar er þetta ekkert mál; fólk getur þá komið þegar því hentar til að ná sér í efni, skila, lesa, læra, jafnvel halda fundi. Vonandi verða menningarhúsin okk- ar í þessum stílnum þegar fram líða stundir og þar horfi ég m.a. til safnsins sem verður í þjónustu- miðstöðinni í Úlfarsárdal sem nú er verið að reisa. Þar verður safnið, sem opnað verður eftir tvö ár, í and- dyri sundlaugarinnar sem ég tel mjög hentugt. Sundlaugar eru stað- ir sem fjölskyldurnar sækja saman og bókasöfnin raunar líka,“ nefnir Pálína. Þröngt í aðalsafni Aðalsafn Borgarbókasafnsins er í svonefndu Grófarhúsi við Tryggvagötu og er starfsemin á 1., 2. og 5. hæð byggingarinnar. Þröngt er orðið um starfsemina auk þess sem húsnæðið er um margt óhent- ugt. „Við höfum horft til þess að fá inni í tengibyggingu sem nú er verið að reisa hér vestan við Grófarhúsið, endurbyggja Grófina eða hreinlega byggja nýtt hús sem hentar starf- seminni. Hver sem niðurstaðan verður þá þarf að stokka margt hér innandyra og breyta í samræmi við að söfnin eru samfélagsmiðstöðvar. Í Árbæjarhverfinu horfum við svo til þess að geta komist í nýtt hús- næði á allra næstu árum; farið úr Hraunbænum og nær Fylkissvæð- inu. Svo má ekki gleyma Sól- heimasafni sem er vinsælt hverf- issafn; lítil stofnun sem þjónar stóru hverfi.“ Á safnið í feðraorlofinu Heimsóknir og útlán á Borgar- bókasafninu í dag eru nánast sama tala og var fyrir áratug en eru nú á uppleið eftir lægð. Eftir efnahags- hrunið fóru þessar stærðir upp í kringum fjórðung en döluðu svo. Notendur eru á öllum aldri og úr öll- um hópum, en karlar á miðjum aldri sá hópur sem notar safnið minnst. „Þegar ungir menn eru í feðra- orlofi koma þeir gjarnan á safnið. Svo er nokkuð um að fólk sem fer lítið út af heimili sínu, hverjar sem ástæður þess eru, mæti á safnið til að sækja sér afþreyingu og félags- skap. Þá er ánægjulegt að umræðan um mikilvægi lestrar og hvatning í því efni hefur áhrif eins og við sjáum í aukinni aðsókn. Læsisverkefnin sem m.a. menntamálaráðhera hefur talað fyrir eru ótvírætt að skila sér á þann hátt að börn og reyndar full- orðnir líka sækja í bækur og lesa meira. Það er góð þróun,“ segir Pál- ína að síðustu. Bækurnar eru ekki aðalatriðið Menningarhús og samfélagsmiðstöðvar. Breytt hlut- verk bókasafna, sem eiga að styðja við fjölbreytt fræðslustarf. Söfn með langan afgreiðslutíma og sjálfsafgreiðslu eru framtíðin segir borgarbókavörður. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Borgarbókavörður Söfnin eiga að efla læsi og styðja við lifandi upplýsingamiðlun og fjölbreytt fræðslustarf, vera vettvangur nýjunga, lærdóms og símenntunar, segir Pálína Magnúsdóttir meðal annars hér í viðtalinu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleði Sungið og spilað með og fyrir börnin á Degi íslenskrar tungu. Alls eru um 300 viðburðir á ári í menningarhúsum Borgarbókasafns Reykjavíkur. Morgunblaðið/Kristinn Grafarvogssafn Nóg af bókum. „Ég er því sem næst alæta á lestrarefni. Núna er ég að reyna að ná nýju jólabókunum, sem gengur brösuglega enda stoppa bækurnar stutt við og eru nánast alltaf í útláni. Svo les ég líka mikið alls konar reyfara. Já, ég kaupi bækur líka, þótt ég sé afar hrifin af deilihagkerfinu sem bókasöfn bjóða upp á; að fólk geti skipst á notuðum bókum,“ segir Pálína Magnúsdóttir og heldur áfram: „Auður Ava og nýja bókin Ungfrú Ísland eru svo næst á dagskrá hjá mér. Ég las líka Stormfugla Einars Kárasonar á dögunum og þarf að lesa hana aftur og ræða betur við sjó- mennina í fjölskyldunni og vinahópnum. Ég panta reyndar alltaf nýja bók eða bækur eftir íslenskan höfund í jólagjöf til að lesa yfir hátíðirnar og gef sjálf bækur í jólagjafir. Það er siður sem hefur haldist, jafnvel þótt ég hafi valið mér starfs- vettvang á almennings- bókasafni.“ Stormfuglar og Ungfrú Ísland ALÆTA Á LESEFNI OG BÍÐ- UR EFTIR JÓLABÓKUNUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.