Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 37
37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Fasteignaþróunarfélagið Festir
áformar að hefja uppbyggingu á
Héðinsreit á næsta ári.
Róbert Aron Róbertsson, fram-
kvæmdastjóri Festis, segir verkefnið á
lokametrunum í skipulagsferlinu.
„Við vonumst til að þessu ferli með
borginni ljúki á næstu vikum. Þá færi
nýja skipulagið í auglýsingu. Síðan
tekur við athuga-
semdafrestur en
svo ræðst fram-
haldið af því hve-
nær þeim kafla
lýkur. Ég sé fyrir
mér að við getum
hafið framkvæmd-
ir næsta sumar,“
segir Róbert
Aron, sem telur
raunhæft að upp-
byggingin taki
fimm ár. Samkvæmt því gæti reiturinn
verið fullbyggður 2023.
Alls um 20 þúsund fermetrar
Héðinsreitur skiptist í tvo hluta,
Seljaveg 2 og Vesturgötu 64. Festir,
ásamt Mannverki, á Vesturgötu 64. Sá
reitur afmarkast af Mýrargötu, Ána-
naustum og Vesturgötu. Þar áformar
Festir að byggja 230 íbúðir. Bygg-
ingarmagnið ofanjarðar er um 20 þús-
und fermetrar. Þá verður byggður
bílakjallari undir allan reitinn. Bygg-
ingarnar munu liggja meðfram ofan-
greindum götum með uppbroti og inn-
görðum, ásamt ýmsum gönguleiðum í
gegn sem tengja reitinn við Vestur-
bæinn og Grandann.
Róbert Aron segir aðspurður að
uppbyggingin verði líklega í áföngum.
Á reitnum Seljavegur 2 verða
byggðar 100 íbúðir og innréttað 153
herbergja CenterHotel. Það verður
m.a. í uppgerðum byggingum við
Seljaveg. Sameiginlegur bílakjallari
verður undir reitunum tveimur, Selja-
vegi 2 og Vesturgötu 64.
Samtals verða því 330 íbúðir á reitn-
um. Með því verður reiturinn til dæmis
höfum neitt á móti því en við ætlum
hins vegar að vera með fallegar,
hagkvæmar íbúðir. Við höfum gert
talsverðar rannsóknir á þessum mark-
aði og erum svolítið að horfa á þessi
nýju verkefni, hvort sem það er RÚV-
reiturinn eða Valssvæðið. Við erum
ekki að horfa á þetta sem miðborgar-
verkefni, heldur sem fallegt hverfi í
Vesturbænum. Við viljum reyna að
höfða til sem flestra og þá þýðir ekkert
að vera með verð sem er mikið hærra
en gengur og gerist,“ segir Róbert
Aron.
Styrki almenningssamgöngur
Hann segir aðspurður að bílastæði
muni ekki fylgja öllum íbúðum. Með
því sé komið til móts við sjónarmið
borgarinnar sem vill með þessum
hætti auka veg almenningssam-
gangna.
Hollenska arkitektastofan Jvant-
spijker fer með hönnun Vesturgötu 64.
Stofan gerði frumdrög að háhýsum á
reitnum en síðan hefur verkefnið
þróast. Meðal annars hafa Festir og
Mannverk fallið frá hugmyndum um
hótel á reitnum.
Við sjóinn Nýjasta tillagan gerir ráð fyrir samtengdum húsum með þjónustu á jarðhæð.
Teikning/Jvantspijker
Áform Byggingar á vegum Festis eru merktar með hvítu. Á gráskyggða svæðinu verða 100 íbúðir og hótel.
Reiturinn byggður upp í áföngum
Festir áformar að hefja framkvæmdir við 230 íbúðir á næsta ári Skipulagsvinnu er að ljúka
Þær verða fyrir breiðan hóp Jafnframt verða 100 íbúðir byggðar á aðliggjandi byggingarreit
Teikning/Jvantspijker
Við sjóinn Frá efstu hæðunum verður óhindrað útsýni út á sundin.
Róbert Aron
Róbertsson
Teikningar/Jvantspijker
Fyrri drög Á fyrri stigum voru gerð drög að háhýsum á reitnum. Fallið var frá þeim áformum.
um 50% stærri í íbúðum talið en
Skuggahverfið og 10% stærri en
áformaður Kirkjusandsreitur.
Rétt að áfangaskipta
„Þetta er risaverkefni. Þetta er stór
reitur og margt sem mælir með því að
skipta þessu niður í áfanga,“ segir Ró-
bert Aron. Hann bendir svo á að ekki
sé æskilegt að allar íbúðirnar á reit-
unum tveimur, á fjórða hundrað, komi
á markaðinn á sama tíma. Slíkt gæti
enda stuðlað að offramboði.
Hann segir aðspurður að meðal-
stærð íbúðanna verði 80-90 fermetrar.
Skipting íbúða eftir herbergjafjölda
liggi ekki fyrir. Íbúðirnar verði ætl-
aðar breiðum kaupendahópi.
„Við erum ekki að horfa til þess að
vera með lúxusvöru. Ef ég get orðað
það þannig. Það er ekki svo að við
2017 2018