Morgunblaðið - 29.11.2018, Page 46
46 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Enda þótt kjör aldr-
aða séu gjarnan miðuð
við eftirlaunaréttindi
þeirra ráðast þau ekki
síður af húsnæðiseign.
Gögn um íbúðareign
aldraðra liggja ekki
fyrir, en ráða má af
upplýsingum Ríkis-
skattstjóra að 60-80%
þeirra eigi íbúð. Hag-
stofan hyggst í vetur
afla sér nánari upplýs-
inga um það mál, sem verður fróð-
legt.
Íbúðareign skiptir sköpum
Það eru samt ekki eftirlaunin sem
skipta meginmáli varðandi misskipt-
ingu meðal aldraðra. Hagur þeirra
er mikið jafnari en kjör á vinnu-
markaði. Greiðslur Tryggingastofn-
unar jafna kjörin upp á við, setja
gólf, og skerðingarnar jafna þau
niður á við. Á yfirstandandi ári eru
ráðstöfunartekjur 80% aldraðra eft-
ir skatta frá 204 þús. kr. til 390 þús.
á mánuði.
Það sem breytir öllu fyrir þennan
hóp er hvort viðkomandi á eigið hús-
næði og þá skuldlítið eða skuldlaust
eða ekki. Með hækkandi húsaleigu á
höfuðborgarsvæðinu þar sem meiri-
hluti aldraðra býr og verður að búa
vegna miðsækni opinberrar þjón-
ustu, þarf að gefa þessari staðreynd
nánari gaum.
Aldraðir sem leigja geta fengið
húsnæðisbætur frá Vinnumála-
stofnun skv. lögum um húsnæðis-
bætur og sérstakan húsnæðisstuðn-
ing frá sveitarfélaginu sínu skv.
lögum um félagsþjónustu sveitar-
félaga. Að hámarki
getur sá sem býr einn
fengið tæp 65 þús. kr.
samanlagt frá báðum
þessum aðilum og sam-
búðarfólk tæpar 86
þús. kr., en taka veður
fram að þessar bætur
skerðast með auknum
tekjum og jafna því að-
stöðu leigjenda niður á
við þannig að flestir
eru í sömu stöðu. Þess-
ar greiðslur nægja fyr-
ir helmingi til tveggja
þriðju af húsaleigu fé-
lagslegs húsnæðis, en ekki þriðjungi
af húsaleigu á markaðsverði.
Þessar upphæðir eru langt frá
öllu lagi og sérstaklega fyrir þá sem
leigja einir. Sá hópur aldraðra sem
leigir hefur 10-200 þús. kr. lægri
ráðstöfunartekjur á mánuði en sá
sem á skuldlaust húsnæði sem ekki
þarf mikils viðhalds við.
Svo virðist sem taka þurfi upp
nýjan bótaflokk fyrir aldraða sem
búa í leiguhúsnæði. Og taka tillit til
þess hvort viðkomandi er á almenn-
um leigumarkaði eða í félagslegu
húsnæði. Þetta kann að vera brýn-
asta réttlætismálið þegar greiðslur
ríkisins til aldraðra eru endurskoð-
aðar. Einnig þyrfti að einfalda kerf-
ið þannig að húsnæðisbætur verði á
hendi Tryggingastofnunar, en ekki
hjá Vinnumálastofnun og sveitar-
félögum, því tvíverknaður er í nú-
verandi kerfi.
Leigustefna
Sú stefna er ríkjandi um þessar
mundir að umtalsverður hluti al-
mennings eigi að leigja. Sérstök lög
gilda um almennar leiguíbúðir fyrir
þá sem eru á og undir meðallaunum
og ríki og sveitarfélög leggja til
stofnfé. Uppbygging slíkra íbúða er
að fara af stað.
Ástæða er til þess að vekja sér-
staka athygli á því að brotthvarf frá
séreignarstefnunni mun þýða aukin
opinber útgjöld þegar þær kynslóðir
sem nú eru á leigumarkaði eldast og
valda mismunun í efnahagslegri
stöðu milli aldraðra eftir því hvort
þeir lögðu til hliðar með íbúðar-
kaupum eða leigðu.
Þá er rétt að nefna að leiga er
ekki lægri en greiðsla af háum lán-
um. Einnig hitt að hinn almenni
maður mun ekki og getur ekki lagt
meira til hliðar á starfsævi sinni en
sem nemur lífeyrissjóðsgreiðslum
(15,5% af launum), skattgreiðslum
(20-40% af launum) og leigu/
afborgunum af lánum (130-300þús./
mán).
Eignalaus almenningur
Í ljósi þess að einstaklingar eign-
ast fyrst og fremst sameignarrétt-
indi í lífeyrissjóðum þá verða þeir
sem leigja alla ævi ávallt eignalitlir
eða eignalausir. Það er félagsvís-
indaleg spurning hvaða áhrif það
hefur á samfélagið ef drjúgur hluti
íbúanna á ekkert. Það má spyrja
hvernig fer fyrir samfélagslegri
ábyrgð og öðrum stórum hugtökum.
Þetta er ekki sú leið sem almennt
er farin er í nágrannaríkjunum og
er þá einnig átt við ríki þar sem
leiga á íbúðarhúsnæði er almenn.
Þar sér ríkið um lífeyrismál og
kostnaður af þeim er greiddur af
skattfé og íbúum gefst því kostur á
sparnaði enda þótt leigt sé – og
leiguupphæðir eru jafnan mikið
lægri en hér gerist. Skattar á lág
laun eru ekki hærri á Norðurlönd-
unum en hér, raunar lægri í Dan-
mörku, en á hærri tekjur eru þeir
það.
Sennilegt er að í öðrum Norður-
landaríkjum séu fram gengnar fjór-
ar til fimm kynslóðir sem hafa skilað
hluta af afrakstri ævistarfs síns til
næstu kynslóðar á eftir. Hér á landi
eru þær kynslóðir kannski í eintölu,
en við höfum farið í þá átt. Það get-
ur skipt sköpun að eitthvað erfist
þegar ungt fólk kaupir í fyrsta sinn,
þá þarf það fyrir um 10% af hús-
næðisverðinu og má segja að 3-5
milljónir séu startgjald við íbúðar-
kaup nú um stundir.
Fátækt meðal aldraðra
í framtíðinni
Við þurfum að staldra við og
skoða hvort það eignaleysi sem
fylgir almennri leigu á húsnæði sem
kemur til viðbótar við núverandi
réttindakerfi í lífeyrismálum sem
ekki ber með sér eignamyndun – sé
æskileg leið þegar til lengri tíma er
litið. Eignalaus almenningur verður
ekki bara íþyngjandi fyrir ríkissjóð
þegar kemur að eftirlaunaárunum
og tekjur hans minnka að meðaltali
um helming, heldur verður hann
bláfátækur því leiga þýðir að hann
hefur sáralítið milli handanna.
Séreignarstefnan og aldraðir
Eftir Hauk
Arnþórsson » Var séreignarstefn-
an við uppbyggingu
Breiðholtsins, sem fjölg-
aði íbúðareigendum
mikið, mesta einstaka
kjarabótin sem þeir sem
nú eru aldraðir búa að?
Haukur
Arnþórsson
Höfundur er stjórnsýslufræðingur.
haukura@haukura.is
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í
notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks
Morgunblaðsins og höfunda.
Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar á aðra
miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is.
Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar
fylgja hverju þrepi í skráningar-
ferlinu. Eftir að viðkomandi hef-
ur skráð sig sem notanda í
kerfið er nóg að slá inn kenni-
tölu notanda og lykilorð til að
opna svæðið. Hægt er að senda
greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.