Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sjúklega súr saga: Íslandssaga frá
öndvegissúlum til Internetsins
nefnist nýútkomin bók eftir Sif Sig-
marsdóttur, blaðamann og rithöf-
und, og Halldór Baldursson teikn-
ara. Eins og sjá má af titlinum er
Íslandssagan viðfangsefni þeirra
Sifjar og Halldórs og markmiðið að
gera hana skemmtilega og áhuga-
verða þannig að hún höfði til ung-
linga. „Þeir einu sem hafa áhuga á
sögu eru rykfallnir kennarar með
köngulóarvef í handarkrikunum og
flösu,“ segir í inngangi bókarinnar
en sagan er sjúklega súr og einmitt
þess vegna eiga unglingar að lesa
bókina og foreldrar þeirra auðvitað
líka, hafi þeir áhuga. Í bókinni er
m.a. fjallað um myglaðar miðaldir,
sturlaða Sturlunga, óhlýðna bisk-
upa og ropandi yngismeyjar, svo
fátt eitt sé nefnt.
Fimmta unglingabókin
Bókin er sú fimmta sem Sif skrif-
ar fyrir unglinga á íslensku en hún
hefur einnig skrifað bækur á ensku,
er með útgefanda á Englandi þar
sem hún hefur búið og starfað í 16
ár. „Ég bara fíla Bretland svo vel að
ég gat ekki farið,“ segir Sif, sem
nam sagnfræði á Íslandi og fór í
meistaranám í barnabókmenntum
við Háskólann í Reading. Meistara-
gráðuna hlaut hún árið 2003.
Sif er spurð að því hvers vegna
hún hafi alltaf skrifað fyrir þennan
aldurshóp, unglinga. „Ég vissi alltaf
að mig langaði til að verða rithöf-
undur og þegar ég fór að velta fyrir
mér fyrir hverja ég vildi skrifa og
hvað mér þætti gaman að lesa var
ofsalega mikil gerjun í unglingabók-
um. Á þeim tíma var að verða til
þessi „young adult“ bókmennta-
grein með rithöfundum á borð við
Phillip Pullman og J.K. Rowling og
Twilight-vampíruseríunni og því
öllu. Ég féll fyrir þessu öllu saman
og því lá beint við að skrifa eitthvað
sambærilegt,“ svarar Sif.
„Það er alltaf sagt að maður eigi
að skrifa sögur sem maður vill sjálf-
ur lesa og það er það sem ég var að
gera þá. Ég geng auðvitað með
margar sögur og bækur í maganum
og aldrei að vita nema ég skrifi ein-
hvern tíma fyrir annan aldurshóp
en hingað til hef ég verið í unglinga-
bókmenntunum af hreinni ástríðu.“
Segja það sem þau hugsa
– Er þessi lesendahópur ekki sá
sem er hvað mest ógnvekjandi að
skrifa fyrir?
„Jú, þetta er lesendahópur sem
segir sannleikann. Krakkar segja
nákvæmlega það sem þeim finnst
og ef þeim finnst eitthvað leiðinlegt
neita þeir að lesa það,“ segir Sif
kímin.
– Og þar að auki finnst ungling-
um kannski fleira leiðinlegt en fólki
á öðrum aldri. Við munum nú sjálf
eftir leiðindum unglingsáranna …
„Ójá, klárlega og þess vegna er í
raun mjög mikilvægt að það séu
höfundar að skrifa sérstaklega fyr-
ir unglinga og að reyna að skrifa
eitthvað sem þeir hafa áhuga á að
lesa. Ekki bækur sem eiga að
kenna unglingum eitthvað gagn-
legt heldur einfaldlega það sem
þeim finnst skemmtilegt. Við erum
að keppa við Netflix, tölvuleiki og
fleira þess háttar.“
Leiðinlegur hátíðleiki
– Þú velur þér umfjöllunarefni
sem margir minnast eflaust með
hryllingi úr námsefni unglings-
áranna. Hvers vegna valdirðu þér
þetta umfjöllunarefni, Íslandssög-
una?
„Ég er sagnfræðingur og mér
finnst sagan rosalega skemmtileg
þó ég kalli hana „sjúklega súra
sögu“. Ég held að fleirum myndi
finnast saga skemmtileg ef við
matreiddum hana með öðrum
hætti. Mér finnst við fara dálítið
illa með söguna, klæða hana upp í
hátíðleika og þá verður hún svo
leiðinleg og geld. Þegar maður
sviptir söguna hátíðleikanum sér
maður hvað hún er fyndin,
skemmtileg, mannleg og fjölbreytt
og með þessari bók vildi ég kveikja
áhuga unglinga á sögunni með því
að sýna þeim hvað hún er fyndin og
hvað þeir eiga í raun margt sam-
eiginlegt með fólki úr fortíðinni.“
Galdrar, særingar og saur
– Einn af útgangspunktum bók-
arinnar er þessi frasi þeirra sem
eldri eru um að allt hafi verið betra
í gamla daga. Þú ert að afsanna
þessa kenningu með þessari bók?
„Já, tilgangur bókarinnar er að
afsanna þá kenningu. Mér finnst
hún verða vinsælli og vinsælli með
hverju árinu þessa blessaða kenn-
ing um að allt hafi verið betra í
gamla daga. Maður sér það bæði á
Íslandi og hérna í Bretlandi með
Brexit til dæmis, Bretar vilja
ganga úr Evrópusambandinu af
því þeir sjá fyrir sér einhverja fal-
lega fortíð sem er bara uppspuni og
átti sér aldrei stað,“ svarar Sif.
Gaman sé að líta til baka og skoða
hversu súr fortíðin hafi í raun verið.
„Þeir sem segja að hún hafi verið
eitthvað betri eru að bulla svo mikið.
Verkjalyf miðalda voru til dæmis
galdrar, særingar og faðirvorið,
blóðtaka og jurtir blandaðar í saur
og þvag. Ég meina, má bjóða fólki
upp á það aftur?!“ segir Sif og hlær
innilega.
Nintendo eitthvað betri?
– Minnisleysið er líka algert. Við
fussum yfir því að börnin okkar séu
alltaf í Playstation en vorum sjálf
alltaf í Sinclair Spectrum eða öðrum
leikjatölvum!
Sif hlær. „Já, ég veit það! Minnis-
leysið er algjört og okkur finnst ein-
hvern veginn Nintendo orðið miklu
saklausari skemmtun en leikirnir
sem krakkarnir eru að spila í dag.
Þetta á eftir að verða nákvæmlega
eins þegar börnin okkar eru orðin
fullorðin, þá líta þau til baka og
spyrja börnin sín af hverju þau séu
ekki bara í Snapchat eða á Netflix.“
– Vannstu mikla heimildarvinnu
fyrir þessa bók eða mundi sagn-
fræðingurinn þetta allt saman,
meira eða minna?
„Nei, ég vann mikla heimildar-
vinnu. Ég vildi nálgast söguna með
nýjum hætti, vildi alls ekki að þetta
væri upptalning á atburðum og ár-
tölum. Þannig að hver kafli er í
rauninni einn stakur pistill með
byrjun, miðju og enda og kannski
nýjum vinkli og sjónarhorni af því
það er engin ástæða til að endurtaka
allt sem stendur í skólabókunum
sem krakkarnir eru að lesa. Ég vildi
að þeir myndu sjá þetta frá nýju
sjónarhorni og með nýjum hætti.“
Halldór kom einn til greina
Sif og Halldór starfa bæði fyrir
Fréttablaðið, Sif skrifar vikulega
pistla í blaðið og Halldór teiknar
skopmyndir í það á virkum dögum.
„Ég leitaði til hans,“ segir Sif um
samstarf þeirra Halldórs, „ég vildi
bara gera þessa bók ef hann væri til
í að vera með. Ég sá bókina alltaf
fyrir mér með myndum eftir hann.“
Hún segist skoða skopmyndir
Halldórs á degi hverjum. „Mér
fannst textinn minn og myndirnar
hans eiga ákveðna samleið, fannst
þetta bara eina valið og hefði ekki
viljað fá neinn annan í að teikna. Ég
fór til Forlagsins og sagði að ef hann
væri til í þetta langaði mig til að
gera bókina, annars ekki.“
Bull að allt hafi verið
betra í gamla daga
Íslandssagan er sjúklega súr í bók Sifjar og Halldórs
Samstarf Sif Sigmarsdóttir með sjálfsmynd Halldórs Baldurssonar og nokkrum sögupersónum.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn
Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn
Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn
Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn
Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn
Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn
Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn
Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn
Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Fokkað í fullveldinu (Stóra sviðið)
Lau 1/12 kl. 22:00
Frekar vandræðaleg kvöldstund á Stóra sviðinu
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 1/12 kl. 19:30 21.sýn Fös 7/12 kl. 19:30 20.sýn Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s
Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s
Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s
Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s
Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s
Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Insomnia (Kassinn)
Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Fös 30/11 kl. 19:30 6.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 5/12 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Elly (Stóra sviðið)
Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Sun 16/12 kl. 20:00 183. s
Lau 1/12 kl. 20:00 176. s Sun 9/12 kl. 20:00 180. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas.
Sun 2/12 kl. 20:00 177. s Fim 13/12 kl. 20:00 181. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas.
Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Lau 15/12 kl. 20:00 182. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 30/11 kl. 20:00 22. s Fös 14/12 kl. 20:00 24. s
Fös 7/12 kl. 20:00 23. s Sun 30/12 kl. 20:00 25. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Fös 4/1 kl. 20:00 aukas.
Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas.
Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Sun 6/1 kl. 20:00 15. s
Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s
Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s
Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Sun 30/12 kl. 20:00 14. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tvískinnungur (Litla sviðið)
Sun 2/12 kl. 20:00 6. s Fim 6/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 Lokas.
Aðeins þrjár sýningar eftir!
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Lau 22/12 kl. 13:00 9. s
Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Lau 15/12 kl. 13:00 7. s
Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 16/12 kl. 13:00 8. s
Aðeins sýnt á aðventunni.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s
Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s
Ég, tveggja stafa heimsveldi
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 30/11 kl. 20:00 69. s Lau 8/12 kl. 20:00 70.s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is