Morgunblaðið - 29.11.2018, Page 73
MENNING 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
595 1000 . heimsferdir.isBókaðuþína ferð á
TENERIFE &
GRAN CANARIA
FEBRÚAR OG MARS BROTTFARIR
Íslensk fararstjórn,
taska og handfarangur
innifalið.
BÓKAÐU SÓL
ALLUR PAKKINN
Turbo Club
Innifalið: Flug, Gisting, Ekkert fæði
Frá kr. 106.645
Gran Canaria 5. febrúar í 7 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
eða 120.995m.v. 2 fullorðna
IFA Buenaventura
Innifalið: Flug, Gisting, Morgunverður
Frá kr. 108.945
Gran Canaria 12. febrúar í 7 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
eða 124.095m.v. 2 fullorðna
Las Brisas
Innifalið: Flug, Gisting, Ekkert fæði
Frá kr. 78.963
Gran Canaria 12. mars í 7 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
eða 97.995m.v. 2 fullorðna
Barcelo Margaritas
Innifalið: Flug, Gisting, ALLT INNIFALIÐ
Frá kr. 106.645
Gran Canaria 26. mars í 7 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
eða 131.995m.v. 2 fullorðna
Suites at Hollywood Mirage
Innifalið: Flug, Gisting, Ekkert fæði
Frá kr. 114.745
Tenerife 13. mars í 7 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
eða 139.195m.v. 2 fullorðna
Cristian Sur
Innifalið: Flug, Gisting, Ekkert fæði
Frá kr. 99.995
Tenerife 20. mars í 7 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
eða 123.695m.v. 2 fullorðna
Parque Santiago
Innifalið: Flug, Gisting, Ekkert fæði
Frá kr. 124.995
Tenerife 6. febrúar í 7 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
eða 145.195m.v. 2 fullorðna
Castle Harbour
Innifalið: Flug, Gisting, Ekkert fæði
Frá kr. 112.745
Tenerife 27. febrúar í 7 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
eða 127.195m.v. 2 fullorðna
aaa aa
aaaaaaa
aaa aaa
aaa aaaa
Frá kr.
97.995
Frá kr.
78.963
Kópavogskrónika hefstmeð því að móðir byrj-ar á því að útskýra fyr-ir dóttur sinni að ástin
hafi leitt hana suður í Kópavog
en bætir því við að dóttir hennar
skuli forðast sambönd. Þar með
er tónninn sleginn fyrir bókina.
Sagan er á köflum ótrúlega fynd-
in og Kamilla er frábær penni en
sagan fjallar að mestu leyti um
misheppnuð sambönd og tilfinn-
ingar þeim tengdar. Leiftrandi
húmor og kaldhæðni á hverri
síðu en auðvelt er að greina ein-
manaleika
brothættrar
aðalpersón-
unnar.
Þessi fyrsta
skáldsaga
Kamillu Ein-
arsdóttur.
Kópavogs-
krónika er
allt í senn
snörp,
skemmtileg, fyndin og dramatísk.
Bókinni er lýst sem skrautlega
skrifaðri sögu móður til dóttur og
eins og nafnið gefur til kynna er
sögusviðið að stórum hluta Kópa-
vogur; bærinn sem í bókinni er
lýst sem slysi.
Samböndum aðalpersónunnar
við misspennandi karla, og eina
mjög spennandi konu, er lýst en
flestir virðast karlarnir ekki hafa
margt til brunns að bera. Einn
þeirra, sem kallaður er verð-
bréfamiðlarinn, veldur sögumanni
hjartasorg. Eftir mikla sjálfs-
hugsun, sem fólst meðal annars í
því að leita leiða til að reyna að
ná athygli hans, varð sögumanni
ljóst að hún þyrfti að hugsa um
einhvern annan til að komast yfir
verðbréfamiðlarann. Sem var
akkúrat það sem hún gerði.
Sagan rennur þægilega áfram
en inn á milli rifjar sögumaður
upp atvik frá fyrri tímum, eins og
til að mynda þegar hún vann sem
barþjónn á strippstað. Þrátt fyrir
alla fyndnina er undirtónninn
þungur enda augljóst að sögu-
manni líður ekki vel þó partýin
séu mörg og áfengið flæði nánast
eins og vatn úr krana.
Fyndnin skín í gegn í nokkrum
köflum. „Leiðindin“ er til að
mynda stórkostlegur kafli og lýs-
ir á skemmtilegan hátt öðrum
hliðum foreldrahlutverksins en
þeim sem mest er talað um:
„Hver ákvað að barnaafmæli
ættu að vera bjórlaus? Alveg það
glórulausasta sem ég hef heyrt
um. Þá sjaldan að foreldrarnir fá
að hitta aðra á sínu reki, eiga
þeir ekki skilið að fá sér nokkra
kalda? En nei, nei, þeir skulu
ræða endurbætur á baðherberg-
inu, íþróttarútur og annað for-
heimskandi rugl yfir lapþunnum
kaffibolla.“
Eftir nokkur misheppnuð sam-
bönd virðist sögumaður fyllast
hálfgerðu vonleysi þegar bókin
styttist í annan endann. Það virð-
ist sem allur hressileikinn, partý-
in og hjásvæfurnar hafi ekki ver-
ið neitt annað en leið til að fylla
upp í tómarúm. Hún kynnist þá
ungskáldi í Justin Bieber-jakka
og áttar sig endanlega á því á
svipuðum tíma að sumir breytast
aldrei.
Kópavogskrónika er fyndin,
sorgleg, skemmtileg og átakanleg
– eins konar ástarsaga 21. aldar-
innar sem hiklaust má mæla með,
þó einhverjir lesendur gætu sop-
ið hveljur yfir sumum lýsingum
bókarinnar því ekkert er dregið
undan.
Ástarsaga 21. aldarinnar
Morgunblaðið/Hari
Kamilla „Kópavogskrónika er fyndin, sorgleg, skemmtileg og átakanleg.“
Skáldsaga
Kópavogskrónika bbbbb
Eftir Kamillu Einarsdóttur.
Bjartur, 2018. 126 bls. innb.
JÓHANN
ÓLAFSSON
BÆKUR
Kristín E. Guðjónsdóttir myndlistarkona opnar
sýningu í Galleríi Gróttu á Eiðistorgi í dag kl. 17
sem hún kallar Hulinn heim. Á henni sýnir hún
abstraktmálverk og segir í tilkynningu að í ab-
straktverkinu birtist myndir tilfinninga sem dags
daglega séu okkur huldar. „Litir, form og form-
leysi, túlka hér orku þá sem býr hið innra. En allt
byggir þetta á persónulegri upplifun,“ segir þar.
Kristín nam myndlist hjá myndlistarkonunni og
kennaranum Margréti Zóphóníasdóttur, hefur
sótt námskeið hjá Bjarna Sigurbjörnssyni lista-
manni og kennara, nám hjá Ignatius í Kaup-
mannahöfn og hjá Anne Juul Cristhophersen í
Danmörku.
Árið 2016 sýndi hún verk sín fyrst opinberlega
eftir að hafa um tíma tekið reglulega á móti gestum á heimili sínu á
Seltjarnarnesi. Fyrsta sýningin hennar var í Löngubúð á Djúpavogi
og hefur hún einnig sýnt hjá Inni og úti arkitektum og í Lágafells-
laug.
Hulinn heimur Kristínar í Galleríi Gróttu
Kristín E.
Guðjónsdóttir