Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 80
80 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Einstök
minning
Stúdenta-
myndatökur
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Það þarf heilt þorp til að alaupp barn,“ sagði HillaryClinton eitt sinn. En hvaðgerist ef þorpið bregst
barninu?
Það má segja að svarið við því
birtist í bókinni Manneskjusögu
sem er skáldævisaga byggð á raun-
verulegum atburðum. Manneskju-
saga er fyrsta skáldsaga Stein-
unnar Ás-
mundsdóttur,
sem áður hefur
gefið út fimm
ljóðabækur.
Bókin gerist
á tímabilinu
1959 til 2008 og
fjallar um lífs-
hlaup Bjargar,
sem er ætt-
leidd nokkurra
mánaða gömul til góðra hjóna sem
fyrir eiga ættleiddan son, Val. Sjö
árum síðar eignast hjónin óvænt
aðra dóttur, Sigrúnu. Foreldrarnir
Matthildur og Guðmundur leggja
sig fram við uppeldi barna sinna og
sýna Björgu ást og alúð. Fljótlega
kemur í ljós að Björg á erfitt með
tengsl, lendir í miklu einelti í skóla
og afskiptaleysi í stórfjölskyldunni.
Ellefu ára fréttir hún af því á leið-
inlegan hátt að hún sé ættleidd og í
framhaldi af því sækir hún stíft að
fá að hitta blóðforeldra sína. Björg
hættir ekki fyrr en hún fær að
dvelja sumarlangt hjá blóðföður
sínum. Sú heimsókn hefur afdrifa-
ríkar afleiðingar. Björg fær ekki þá
hjálp sem hún þarfnast. Þess í stað
mætir hún fordómum og af-
skiptaleysi og sekkur dýpra og
dýpra.
Í Manneskjusögu er góð lýsing á
samfélaginu og tíðarandanum á 6.,
7. og 8. áratugnum; Lög unga
fólksins, Óskalög sjúklinga og Log-
ar frá Vestmannaeyjum koma við
sögu. Persónusköpun er trúverðug
í sögunni þar sem fjölskyldu-
meðlimir leika hlutverk sín með
prýði í meðvirkni, afneitun, af-
skiptaleysi og þöggun. Það kemur
skýrt fram í sögunni hversu mikil-
vægt það er fyrir börn að mynda
tengsl í upphafi og hversu slæm
áhrifin geta orðið ef slík tengsl
komast ekki á.
Skilaboð Manneskjusögu eru
skýr: Þöggun er dauðans alvara og
fólk og samfélag getur ekki skorast
undan ábyrgð þegar illa er komið
fram við einstakling sem ekkert
hefur annað til saka unnið en að
falla ekki alveg í normið. Þegar
skaðinn er skeður er samfélagið
vanbúið að hjálpa og bregst við
með því að vilja sem minnst af ein-
staklingnum og aðstæðum hans
vita.
Þegar samfélagið bregst
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Höfundurinn Steinunn Ásmundsdóttir, höfundur Manneskjusögu.
Skáldsaga
Manneskjusaga bbbmn
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
Björt bókaútgáfa, 2018. Innb., 158 bls.
GUÐRÚN
ERLINGSDÓTTIR
BÆKUR
Hekla Magnúsdóttir þera-mínleikari hefur veriðað sækja í sig veðriðmeð hverri útgáfu síðan
hennar fyrsta skífa birtist á band-
camp-vefnum árið 2014, og á henn-
ar nýjustu plötu er gefið enn frekar
í með því að bæta heilmiklum söng
og röddum við heiminn. Hekla
sendi í haust frá sér plötuna Á, sem
er hennar fyrsta í fullri lengd. Fyrir
hafði hún gefið út tvær þröngskífur
sem báðar hlutu
heilmikla athygli
fyrir sérstæðan
hljóðheim sem
blandar saman
yfirnáttúrulegri,
nær ósnertan-
legri, fegurð við
dramatík og tilfinningahita. Vissu-
lega er erfitt að ímynda sér hvernig
þessi ólíku öfl, hið ósnertanlega og
hið blóðheita, geti blandast saman
en það er hluti af galdri Heklu.
Það sem allra, allra fyrst verður
að koma fram, áður en farið er í að
gera tilraun til að útskýra plötuna,
er hve megnug Hekla er á tón-
leikum. Undirrituð náði til dæmis
tónleikum hennar á Norðanpaunki í
ágúst síðastliðnum, þar sem hún
spilaði efni af þá óútkominni plötu,
og ásamt því að upplifa tónleikana
með augum og eyrum voru tára-
kirtlarnir virkjaðir, öllum að óvör-
um. Það er skrýtið að vera stödd í
leðurjakkanum sínum, umvafin
pönkurum og rokkurum og hrein-
lega láta bræða sig, (ég geng ekki
svo langt að segja bræða íshjarta
sitt, svo forhert er ég vart orðin).
Ásamt því að vera afar nákvæm og
öguð í vinnubrögðum, bæði í hljóð-
veri og á sviði, er Hekla með þetta
„eitthvað“ sem enginn veit hvað er
en allir vilja hafa. Hún hefur mikla
næmni á spennandi laglínur sem
ramba á milli hins grípandi og hins
ómstríða og halda því athygli
manns óskiptri, enda var hún fyrir
sólóferil sinn búin að sjóast all-
rækilega með sörf-metal-hljóm-
sveitinni Bárujárni.
En aftur að nýju plötunni: Á er
tíu laga að mestu sungin plata, þar
sem finna má níu frumsamin lög og
texta, ásamt gullfallegri útgáfu af
sálminum „Heyr himna smiður“.
Platan hefst með þremur ólíkum en
gríðarsterkum frumsömdum lögum
á undan sálminum, sem hér er
sunginn eingöngu með þeramín-
röddum. Fyrsta lagið, „Hatur“, er
kalt og draugalegt og á meðan
ískaldur hrollur liðast niður bakið
hitnar manni að innan af tilfinn-
ingum. Næsta lag heitir „Í Hring“
og endurómar poppsveitir tíunda
áratugarins á borð við Portishead,
þar sem undiraldan togar mann
niður og skolar manni svo lengst
uppá strönd áður en maður veit af.
Þriðja lag plötunnar heitir
„Muddle“ og er mitt uppáhalds.
Lagið þróast frá því að vera ein-
hverskonar flugeldasýning niðri í
fjöru yfir í pjúra þungarokk með
dimmum og svölum riffum sem
minna á kuldarokk eða svartmálm,
og þarna syngur Hekla dýpra sem
eykur enn á áhrifin.
Með þessum lýsingum mætti auð-
veldlega halda að hér skorti fókus
og platan hlypi út um víðan völl en
svo er alls ekki. Það er hinn sér-
stæði hljóðheimur, hljómur plöt-
unnar ásamt rödd Heklu, sem er
límið sem staðsetur allt á nákvæm-
lega rétta staði svo útkoman er
grafkyrr einbeiting án þess að vera
nokkurn tíma leiðigjörn eða of-
hugsuð.
Eftir sálminn er ferðinni heitið á
enn óvæntari slóðir með laginu
„Arms“ sem gæti hreinlega verið
Phil Collins-lag ef því væri að
skipta. Grípandi laglína í dúr, en
svo ótrúlega skuggalegt undirspil
að manni detta helst í hug ærsla-
draugar eða illir trúðar sem hafa
ekkert gott í hyggju. „Ekki er allt
gull sem glóir“ er áframhaldandi
hættulegur sirkus, en nú er lýru-
kassaleikarinn andsetinn og reynir
að fanga sálir okkar með spili sínu.
Það er helsti galli (og sá eini) við
breiðskífuna Á að hún er svo
feiknasterk framanaf að þegar síð-
ustu lög hennar hljóma dettur
dampurinn aðeins niður, en það
þýðir alls ekki að þau lög séu eitt-
hvað slöpp, bara ekki eins grípandi
eða dáleiðandi og þau á fyrri hlut-
anum. Það hefði verið hægt að
leysa þetta með því að hafa
ósungnu lögin (nr. 8 og 9) inn á
milli hinna sungnu til að skapa
betra flæði. Það er hins vegar
styrkur plötunnar hve rödd Heklu
Magnúsdóttur er framúrskarandi
hvort sem hún syngur háar, brot-
hættar nótur með miklu bergmáli
eða djúpar og dularfullar.
Hér er á ferðinni nánast full-
komið verk sem sameinar hið
ómstríða og óaðgengilega með því
tælandi og grípandi og því er út-
koman eins og góð bók: Erfitt að
láta hana frá sér þegar byrjað er að
njóta. Hér sannar Hekla jafnframt
að hún er flinkur lagasmiður og
einn færasti þeramínleikari í heimi!
Ég mæli eindregið með þessari
plötu.
Grafkyrr einbeiting
Nær fullkomið „[N]ánast fullkomið verk sem sameinar hið ómstríða og óað-
gengilega með því tælandi og grípandi,“ segir m.a. um plötu Heklu, Á.
Hljómplata
Hekla Magnúsdóttir – Á bbbbm
Hekla Magnúsdóttir þeramínleikari gef-
ur út plötuna Á hjá breska útgáfu-
fyrirtækinu Phantom Limb. Platan inni-
heldur tíu lög.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST