Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Blaðsíða 4
Sannkallað samfélagsverkefni Aðstaða iðkenda og þjálfarahjá íþróttafélaginu Hettimun breytast til hins betra á árinu 2020 þegar nýtt fimleikahús, sem nú er hafin vinna við að byggja, verður tekið í notkun. Þrotlaus vinna liggur að baki undirbúningi byggingarinnar sem að miklu leyti hefur verið unnin í sjálfboðavinnu. Hjá Hetti á Egilsstöðum iðka um 840 börn og ungmenni íþróttir af kappi í þeim átta deildum sem starf- ræktar eru hjá félaginu. Formaður Hattar, Davíð Þór Sigurðarson, er ákaflega stoltur af starfinu og ekki síst þakklátur öllu því fórnfúsa fólki sem hefur lagt mikið á sig fyrir þetta viðamikla verkefni sem bygg- ing fimleikahússins er. „Á þeim tíu árum sem ég hef ver- ið formaður Hattar hefur verið markvisst unnið að því allan tímann að koma þessu verkefni á koppinn. Eftir að viljayfirlýsing var und- irrituð árið 2015 fór boltinn að rúlla og síðan þá hefur þetta verið enda- laus vinna hjá alveg ótrúlega mörgu fólki,“ segir Davíð Þór Sigurðarson, formaður Íþróttafélagsins Hattar. Drifkraftur og áræðni Byggingastjórn verkefnisins er skipuð fólki sem er velunnarar fé- lagsins og starfar án þess að taka greiðslu fyrir. Þá er einnig stefnt að því að nýta krafta sjálfboðaliða sem mest í byggingunni, í þeim verkum þar sem það er hægt. „Við eigum hér margt fólk sem vill bara gera eitthvað gott fyrir samfélagið. Þetta hús verður til fyr- ir drifkraft og áræðni fyrst og fremst. Við notum kraftinn okkar og sjálfboðaliðahreyfinguna í að Hýsir hópfimleika og frjálsar Húsið var í fyrstu hugsað sem fim- leikahús eingöngu en í þróunarferl- inu var ákveðið að bæta við æf- ingaaðstöðu fyrir frjálsar íþróttir einnig, þannig að í húsinu verða fjórar stuttar hlaupabrautir og gryfjur fyrir stökkgreinar. Húsið nýtist þó í raun öllum íþróttagrein- um því með því að færa fimleikana úr núverandi íþróttahúsi losna tímar fyrir aðrar greinar til æfinga. Fimleikaæfingarnar taka töluverð- an tíma þar sem fyrir hverja æfingu þarf að stilla upp áhöldum og taka þau niður aftur að æfingu lokinni. Eins og staðan er nú þá er íþróttahúsið á Egilsstöðum fullnýtt alla virka daga frá því að skóla lýk- ur og til kl. 23.30 þegar síðustu æf- ingar klárast. Um helgar er tíminn einnig fullnýttur, en vilji félagsins stendur til þess að draga mjög úr æfingum barna um helgar, þá eigi frekar að vera tími fyrir fjölskyldur að vera saman. „Þetta skiptir allan fjórðunginn máli. Hjá okkur eru börn úr öðrum sveitarfélögum sem eru keyrð á æf- ingar. Við erum með stærstu fim- leikadeildina á Austurlandi og bygg- ing þessa húss hefur áhrif á fimleikasamfélagið. Svo er líka mik- ilvægt fyrir okkur að eiga góða að- stöðu fyrir svona sterka stúlkna- grein eins og hópfimleikarnir eru. Þetta styrkir búsetuskilyrði hér á svæðinu. Þetta er búið að vera strembið, en þegar maður uppsker svona þá fær maður gæsahúð. Þetta er alveg geggjað!“ Auður Vala Gunnarsdóttir var yf- irþjálfari fimleikadeildar Hattar í 18 ár en lét af því starfi nýverið, þótt hún starfi áfram sem þjálfari. Hún þekkir sögu fimleikadeildarinnar vel og segir mikla tilhlökkun ríkja hjá iðkendum og þjálfurum. „Nefnd um betri aðstöðu kom fyrst saman árið 2004, þá var farið að ræða þessi mál. Í kringum árið 2010 þá vorum við komin í vand- ræði, allt orðið pakkað í salnum og langir biðlistar. Við erum með um 290 iðkendur í hópfimleikum og fim- leikaáhugafólk hér fyrir austan hef- ur unnið að þessu verkefni í mörg ár. En ég held að þessi bið sé þess virði, við fáum vandað hús og sér- hæfða aðstöðu. Við höfum byggt upp öflugt félag og iðkendur okkar hafa staðið sig vel á mótum á lands- vísu. Það verður gaman að sjá hvað gerist þegar við fáum loks alvöru aðstöðu, spennandi að sjá hvert við fljúgum þá.“ Langþráður draumur austfirskra fimleikaiðkenda um bætta aðstöðu færðist nær á föstudag þegar fyrsta skóflustunga að nýju fimleikahúsi á Egilsstöðum var tekin. Húsið mun hafa áhrif á allt íþróttastarf Hattar. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is gera þessa framkvæmd eins hag- stæða og við getum,“ segir Davíð Þór. Hann segir mikla heimavinnu hafa verið unna áður en lagt var af stað í að byggja fimleikhúsið. Starfshópur hafi unnið að málinu, í sjálfboðastarfi, skoðað önnur hús og metið hvernig best væri hægt að standa að þessari byggingu, sem er í raun viðbygging við núverandi íþróttamiðstöð á Egilsstöðum. „Það er ekki sjálfgefið að það sé haldið úti jafn öflugu íþróttastarfi í ekki stærra sveitarfélagi. Þetta er stór hluti af samfélaginu okkar. Í raun er ótrúlegt að við eigum svona margt fólk sem vill vinna fyrir sína íþróttagrein og sína deild. Sjálf- boðaliðar, foreldrar, þjálfarar, stjórnarmenn í deildum og fleiri. Þetta fólk vinnur ómetanlegt starf.“ Fimleikadeild Hattar er vaxandi deild enda áhugi á hópfimleikum mikill á öllu Austurlandi. Það tekur 6 til 8 manns um klukkutíma að raða áhöld- um í salinn fyrir hverja fim- leikaæfingu og álíka tíma að taka allt niður aftur. Með nýju fimleikahúsi get- ur Höttur sótt enn frekar fram í hópfimleikum. INNLENT 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.11. 2018 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Langar þig í ný gleraugu Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Hafið samband fako@fako.is Starfsmannag jafir fyrir fyrirtæki í miklu úrvali Sælkeravörur fyrir matgæðinga TILBOÐ fyrir 20 starfsmenn eða fleiri

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.