Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.11. 2018
VETTVANGUR
Rithöfundurinn
Andri Snær
Magnason er
hugsi yfir ensku-
notkun í mið-
bænum: „Þegar ég
er erlendis reyni ég oft að læra ein-
földustu setningar um hvernig skuli
segja góðan daginn og panta sér
kaffibolla eða bjórglas og skilja upp-
hæðina sem hlutir kosta. Í Frakk-
landi reyni ég stundum að tala
frönsku þar til ég er beðinn vin-
samlegast um að tala ensku. Það
mætti gjarnan setja af stað jákvæða
vakningu þar sem veitinga-
húsaeigendur í miðbænum marki
sér þá stefnu að starfsfólk segi góð-
an daginn, hvað má bjóða þér en
um leið og samtalið er orðið flókn-
ara en tvöfaldur expressó takk þá
megi skipta um tungumál.“
Útvarpskonan
Þórhildur Ólafs-
dóttir tísti: „Það
er óþolandi þegar
bílum er lagt upp á
gangstétt eins og
hefur margoft verið rætt hér á for-
ritinu. Til að sporna við þessu ætti
að vera leyfilegt að ganga yfir þá. Já
bara klifra upp og labba yfir þakið
og húddið.“
Örn Úlfar
Sævarsson tísti:
„Hvað er málið
með stefið í Hag-
kaupsauglýsing-
unni: Af hverju
syngur stúlkan á ensku Dadada-
dada, þegar hið alíslenska Lalalalala
hefði passað fullkomlega.“
AF NETINU
Fátt er okkur Íslendingummikilvægara en að standavörð um sjálfstæði okkar og
náttúruauðlindirnar sem við byggj-
um lífskjör okkar að verulegu leyti
á. Það er því eðlilegt að það veki
hörð viðbrögð þegar því er haldið
fram að ógn steðji að hvoru tveggja í
senn, sjálfstæði okkar og auðlind-
unum.
Margmeðhöndlaður pakki
Þriðji orkupakkinn hefur verið til
umfjöllunar hjá stjórnvöldum og Al-
þingi í allmörg ár. Þáverandi utan-
ríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveins-
son, kynnti hann fyrir utanríkis-
málanefnd Alþingis árið 2014, hratt
þar með innleiðingarferlinu af stað
og lét ekki reyna á að við yrðum
undanþegin viðkomandi tilskipun
eða reglugerðum í heild sinni. Þrjár
nefndir Alþingis fjölluðu um málið.
Á grundvelli þeirrar umfjöllunar
ákvað sameiginlega EES-nefndin í
fyrra að taka þriðja orkupakkann
upp í EES-samninginn.
Á þessu ári hefur aftur á móti
komið fram nokkuð hörð gagnrýni á
málið, sem ég hef lagt áherslu á að
hlusta vandlega á. Ég deili þeirri
skoðun margra að ESB hafi stund-
um gengið nærri því valdaframsali
sem við féllumst á með EES-
samningnum, þ.e.a.s. tveggja stoða
kerfinu. Við verðum að vera á varð-
bergi gagnvart því, því að enginn
annar mun gera það
fyrir okkur.
Gagnrýnin á málið
felur í sér að fyrrver-
andi utanríkis-
ráðherra hafi brugð-
ist í hagsmunagæslu
fyrir Ísland á þeim
upphafsstigum máls-
ins þegar bestu tæki-
færin voru fyrir hendi
til að hafa áhrif á það.
En ýmsu er þar haldið fram sem á
ekki við rök að styðjast.
Forræði og framsal
Því hefur verið haldið fram að þriðji
orkupakkinn feli í sér afsal á forræði
yfir auðlindinni. Hið rétta er að hann
varðar ekki á nokkurn hátt eignar-
rétt á orkuauðlindum né hvort þær
séu nýttar og í hvaða tilgangi.
Því hefur verið haldið fram að for-
ræði yfir orkumarkaði verði fært til
stofnana Evrópusambandsins. Hið
rétta er að engin ákvarðanataka
gagnvart Íslandi verður færð til
stofnana ESB, enda væri það ekki
tveggja stoða lausn.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Alþingis komst að þeirri niðurstöðu
árið 2014 að innleiðingin „feli í sér
framsal sem sé vel afmarkað, á tak-
mörkuðu sviði og fyrisjáanlega ekki
verulega íþyngjandi fyrir íslenska
aðila“. Utanríkismálanefnd komst að
þeirri niðurstöðu árið 2016 að „sú að-
lögun sem samið hefur verið um
byggir á tveggja stoða kerfi EES-
samningsins og er sambærileg því
sem samið er um vegna gerða um
evrópskt fjármálaeftirlitskerfi“.
Stærsti misskilningurinn
Því hefur verið haldið fram að inn-
leiðingin valdi því að EES-reglur
(fjórfrelsið) muni gilda um orku-
markaðinn og þess vegna verði Ís-
lendingar neyddir til að skipta upp
Landsvirkjun, einkavæða búta úr
henni, jafnvel selja þá til erlendra
aðila, auk þess sem markaðs-
lögmálin muni auka líkur á orku-
skorti. Fyrirlestrar og blaðagreinar
um þessi meintu ósköp hafa ruglað
marga í ríminu.
Ekkert af þessu er rétt. Fjór-
frelsið gildir nú þegar um íslenska
raforkumarkaðinn og því eru allar
þessar ályktanir úr lausu lofti gripn-
ar. Markaðsvæðing raforku á grund-
velli innri markaðar ESB er nú þeg-
ar staðreynd á Íslandi og er með öllu
óháð þriðja orkupakkanum.
Sæstrengur – og garðyrkjan
Því hefur verið haldið fram að inn-
leiðingin feli í sér að Íslendingar
verði neyddir til að samþykkja sæ-
streng. Hið rétta er að málið leggur
engar skyldur á herðar Íslandi um
neitt slíkt. Það er alveg skýrt að Ís-
lendingar ráða því sjálfir hvaða
stjórnvald veitir leyfi fyrir streng.
Að halda öðru fram er fjarstæðu-
kennt.
Þá hefur því verið haldið fram að
garðyrkja muni leggjast af í núver-
andi mynd vegna þess að innleið-
ingin muni „án nokkurs vafa leiða til
lagningar sæstrengs og hækkunar á
raforkuverði“. En forsendan um sæ-
streng er röng, eins og hér hefur
verið rakið.
Ég vil trúa því að hér búi mis-
skilningur að baki fremur en
hræðsluáróður.
Skynsamleg
markaðsvæðing
Sjálfstæðis-
flokkurinn er flokk-
ur frjálsrar sam-
keppni og studdi
þess vegna þá auknu
markaðsvæðingu
orkugeirans,
gagnsæi, neyt-
endavernd og sam-
keppni sem fólst í
fyrsta orkupakkanum fyrir 15 árum.
Sá þriðji er rökrétt framhald af
þeirri stefnumörkun en hefur hverf-
andi áhrif á okkur nema við sam-
þykkjum að tengjast Evrópusam-
bandsríki með streng. Það er undir
okkur komið.
Fjórfrelsið og evrópskar sam-
keppnis- og ríkisstyrkjareglur hafa
gilt um íslenskan orkumarkað árum
saman. Eina leiðin til að losna undan
því væri að losna við EES-
samninginn. Það er einmitt yfirlýst
markmið sumra þeirra sem harðast
berjast gegn orkupakkanum. Ég er
ósammála því markmiði. Ég tel að
við eigum að verja samninginn. Rétt
eins og með auðlindirnar þá byggj-
um við lífskjör okkar á honum að
verulegu leyti.
Það blasir við að við höfum ekki
þörf fyrir reglugerðir um millilanda-
tengingar við núverandi aðstæður.
Þetta hef ég áður sagt. Þess vegna
finnst mér alls engin furða að fólk
spyrji hvaða þörf sé fyrir þetta mál
frá sjónarmiði orkumála. Sú spurn-
ing er eðlileg, en þetta mál snýst um
stóra samhengið og mikilvæga hags-
muni.
Rétt og rangt um
orkupakkann
’Hið rétta er aðfjórfrelsið gildirnú þegar um íslenska raforku-
markaðinn og því
eru allar þessar
ályktanir úr lausu
lofti gripnar.
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Lang-
vinsælastur
hollusta í hverjum bita
SAMSTARFSAÐILI
HVAR SEM ÞÚ ERT
Hringdu í 580 7000
eða farðu á heimavorn.is