Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Blaðsíða 22
Stóllinn Kollhrif frá hönn-unarstofunni Portland bar sig-ur úr býtum fyrir Íslands hönd
í norrænni keppni um sjálfbæra
hönnun, Sustainable Nordic Design
Competition, og verður fulltrúi þjóð-
arinnar á sýningu um sjálfbærni á
loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í Póllandi í desember. „Þetta er
ótrúleg viðurkenning fyrir okkur að
vera valin fyrir Íslands hönd. Við er-
um frekar ung hönnunarstofa. Við er-
um búin að vera til í rúmlega eitt ár
og að fá viðurkenningu svona
snemma er bara frábært,“ segir Kar-
en Ósk Magnúsdóttir, listrænn
stjórnandi Portland.
„Við erum allavega að gera eitt-
hvað rétt en við einblínum á ábyrga
hönnun. Þetta er mikil viðurkenning
á að við séum samkvæm sjálfum okk-
ur í því,“ segir hönnuðurinn Sölvi
Kristjánsson. Þriðja manneskjan í
teyminu er síðan Sóley Kristjáns-
dóttir sem er framkvæmdastjóri.
Er það ekki stærsta áskorunin
núna að huga að umhverfsmálum og
sjálfbærni? „Það er í rauninni ekki
bara áskorun heldur er það skylda
okkar. Við erum komin á þann stað að
ef við gerum ekki eitthvað þá getur
farið illa,“ segir Karen.
„Við viljum vera partur af þessu
hreyfingarafli í heiminum sem er að
stuðla að ábyrgum og umhverfis-
vænum lausnum. Þetta er undiralda
sem við finnum að er í gangi,“ segir
hún.
Á vef Portland stendur einmitt
að það sem sameini þríeykið sé
ástríða þeirra fyrir vel hönnuðum
vörum og trú þeirra á því að með
góðri hönnun megi stuðla að bætt-
um heimi. Þar stendur ennfremur
að góð hönnun sé hönnun sem hafi til-
gang, sé endingargóð og falleg. Þá
virði hún mannkynið, dýr og um-
hverfi okkar allra.
Úr 14.400 sprittkertum
Prótótýpan af kollinum er úr
14.400 endurunnum sprittkertum
úr áli og korki. Söfnunarátaki spritt-
kerta var hleypt af stokkunum í byrj-
un desember í fyrra og í kjölfarið var
ákveðið að stofna til fjögurra hönn-
unarteyma til að vinna nytjahluti úr
álinu í sprittkertinu. „Þaðan kemur
þetta, við byrjuðum að vinna með efn-
ið og fundum vöru til að gera út frá
efninu,“ segir Sölvi en sessan er
síðan úr korki sem skapar
ákveðna
mýkt á móti álinu. Kork-
urinn er jafnframt um-
hverfisvænt efni þar sem
hann er gerður úr trjá-
berki korkeikar. „Kork-
urinn í stólnum sem sendur
var út á sýninguna er úr afgöngum
sem falla til þegar verið er að þrykkja
út tappa í vínflöskur,“ segir Sölvi.
„Afgöngunum er sópað saman og þeir
eru bakaðir. Þegar þeir bakast þá
„svitnar“ korkurinn og hann er press-
aður saman. Límið sjálft er úr
korkinum þannig að það er
ekkert aukaefni í korkinum
sem við notuðum í þennan
stól,“ segir hann.
Hönnun kollsins snýr
ekki aðeins að útliti hans held-
ur tekur hún einnig mið af um-
hverfisáhrifum, endurvinnslumögu-
leikum og margnota gildi hans.
„Kollurinn er hugsaður fyrir fólk sem
hefur mikla hreyfiþörf,“ segir Sölvi
en kúpt lögunin gerir það að verkum
að hægt er að sitja á honum við borð
en á sama tíma er hægt að vera á
hreyfingu.
Heldur þeim á jörðinni
Portland er fjölskyldufyrirtæki. „Sóley
og Sölvi eru systkini og ég og Sóley er-
um par svo Sölvi er mágur minn,“ segir
Karen en samstarfið gengur vel. „Sól-
ey heldur okkur svolítið á jörðinni,“
segir Sölvi. „Hún er hvetjandi og held-
ur okkur jarðtengdum en við eigum til
að fljúga aðeins út um allt. Við lítum á
þetta sem styrkleika. Við komum öll
með eitthvað á borðið,“ segir Karen en
þeim finnst það kostur að hafa þver-
faglegt teymi á bak við hönnunun-
arstofuna. Þau hafa ólíkan bakgrunn á
sviði húsgagnasmíði og vöruhönnunar,
verkfræði og verkefnastjórnunar auk
sálfræði og mannauðsstjórnunar.
Skapandi gen eru í blóðinu hjá
Sölva og Sóleyju en faðir þeirra er
tónlistarmaðurinn KK. „Hæfileik-
arnir eru greinilega í fjölskyldunni.
Yngri bróðir þeirra er í tónlist þannig
að þetta liggur vel fyrir þeim,“ segir
Karen en næst á dagskrá varðandi
Kollhrif er að þróa stólinn áfram og
gera hann hæfari í framleiðslu, en til
þess fengu þau styrk frá Hönn-
unarsjóði.
Einblína á ábyrga hönnun
Hönnunarstofan Port-
land er fjölskyldufyr-
irtæki með þverfaglegt
þríeyki við stjórnvöl-
inn. Stóll hennar, Koll-
hrif, bar sigur úr býtum
í keppni um sjálfbæra
hönnun.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Sóley Kristjánsdóttir, Kar-
en Ósk Magnúsdóttir og
Sölvi Kristjánsson eru
þríeykið á bak við Studio
Portland. Þau eru að vinna
að því að koma í sölu
lampa úr þessari sömu
línu, Ljóshrif, en hann er
úr 3.900 álbikurum og
kemur í sölu fyrir jól.
Stóllinn getur verið bæði
hár og lágur. Það er til
þess að hægt sé að pakka
honum saman svo hann taki
minna pláss en líka hentar
hann sem gólfsessa fyrir börn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.11. 2018
HÖNNUN OG TÍSKA
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
Ísafjörður
Skeiði 1
Fjölbreytt úrval af fallegum gjafavörum
1.