Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Blaðsíða 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.11. 2018
Stundum finnst mér umræðan um þriðja orkupakk-ann minna á stöðumælaverðina í Fóstbræðrum,ef einhver man eftir þeim.
– Við verðum að hætta að hittast svona, Finnur.
– Nú. Henti Halldór þér út?
– Ekki þessi látalæti, Finnur. Guðný er dóttir mín.
Ég læt ekki taka hana frá mér.
– Ah. Svo Þorbjörn er farinn að jafna sig eftir
sprenginguna.
– Ekki vanmeta Þorbjörn. Og gleymdu því ekki sem
ég veit um þig. Ég veit hver myrti Eggert.
– Það skiptir engu máli, Erna. Ég hef slæmar fréttir
að færa.
– Hvað?
– Baldur er horfinn.
Svona held ég að umræðan um þriðja orkupakkann
sé fyrir býsna marga. Nema kannski ekkert svakalega
fyndin.
Fólk er alveg að tala á fullu en það er eins og það sé
ekki að tala um sama málið. Og það er náttúrlega engin
leið að skilja þetta. Annaðhvort hefur þetta engin áhrif
að innleiða þennan orkupakka eða allt fer beinustu leið
til helvítis. Það virðist ekki vera neinn millivegur.
Þess vegna var ég soltið spenntur þegar Stöð 2 var í
beinni útsendingu frá fundi kjördæmasambands Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík sem hafði samþykkt með
afgerandi hætti að hafna þessum blessaða orkupakka.
Ég fylgdist grannt með þegar fréttamaður Stöðvar 2
stóð fyrir framan formanninn og spurði af hverju þessu
væri hafnað af þeirra hálfu.
„Ja, nú er kjördæmasambandsfundur grasrótarinnar
og ég er einn af þeim og ég get ekki svarað því hvernig
mismunandi framsóknarmenn komast að sömu niður-
stöðu. Einn tiltekur þessi rök og annar önnur. Ég get
ekki svarað fyrir það.“
– En eins og hvaða rök?
„Það er eins og ég segi. Það komu fram á fundinum
mörg mismunandi rök en niðurstaða fundarins var hins
vegar sú að allur þorri framsóknarmanna í Reykjavík
er á móti þessari innleiðingu. Af mismunandi ástæð-
um.“
– En hafið þið forsendur til að álykta svona? Er ekki
djúpt í árinni tekið að álykta með þessum hætti með
það í huga sem fram hefur komið að það sé ólíklegt að
þetta muni hafa áhrif á Íslandi?
„Nei, öðru nær. Það er að sjálfsögðu ekki djúpt í ár-
inni tekið að grasrót-
arfólk tjái sig og
myndi sér skoðanir
um veigamikið mál.
Þannig að það er
akkúrat vettvang-
urinn til að mynda
sér skoðanir. Það er í
einfaldri rökræðu
meðal fólks í grasrót-
inni.“
– Takk fyrir það og
þar með kveðjum við
héðan frá skrifstofu Framsóknarflokksins við Hverf-
isgötu.
Einmitt. Takk æðislega. Þetta er allt skýrt núna.
Stöðumælaverðir og orkupakkar
’Fólk er alveg að tala á fullu enþað er eins og það sé ekki aðtala um sama málið. Og það ernáttúrlega engin leið að skilja
þetta. Annaðhvort hefur þetta
engin áhrif að innleiða þennan
orkupakka eða allt fer beinustu
leið til helvítis. Það virðist ekki
vera neinn millivegur.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Það er ekki að ósekju að hringstiginn á Suðurlandsbraut 2 er kallaður Himnastiginn. Þannig
er mál með vexti að Kristján Kristjánsson bílakóngur frá Akureyri byggði húsið fyrir Ford-
umboðið og hafði áform um að búa þar sjálfur í þakíbúð. Heilbrigður metingur var milli
Kristjáns og Sambands íslenskra samvinnufélaga, sem þá var til húsa í Ármúla, og hét Kristján
því að byggja alltaf einni hæð hærra en Sambandið svo húsbændur þar á bæ sæju ekki Esjuna,
jafnvel þótt hann þyrfti að byggja alla leið til himnaríkis, segir sagan. Kristján náði aldrei að
búa í húsinu en hann lést árið 1969. Þar var lengi Hótel Esja og nú Hilton Reykjavík Nordica.
Svo skemmtilega vill til að Kristján var afi ljósmyndarans sem tók myndina, Árna Sæberg.
Árni Sæberg