Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Side 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.11. 2018 VIÐTAL Jónas R. Jónsson hefur lokað fiðluverkstæði sínu á Óðinsgötunni og er fluttur til Portúgals þar sem hann fagnar sjötugsafmæli sínu í sólinni um helgina. Á þessum tímamótum horfir hann bara fram á veginn og sér ekki eftir nokkrum hlut. Verkstæðisins mun hann þó sakna enda ekki amalegt að sitja þar, slappa af og gægjast út um gluggann. Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Ekki til nostalgía í mér H ann situr við stóran glugga á verkstæði sínu á Óðinsgötunni og heilsar okkur Árna Sæberg með björtu brosi. Viðmótið er hlýtt og nærveran notaleg. Hér fer greinilega maður sem líður vel í eigin skinni og er sáttur við Guð og menn. Hver fer að verða seinastur að heimsækja Jónas R. Jónsson á fiðluverkstæðið hans en eft- ir tíu ára starf er hann að rifa seglin og flytja til útlanda. Þegar þetta viðtal birtist er hann raun- ar búinn að skella í lás og kominn út í sólina. Og það er engin venjuleg helgi, Jónas fagnar sjötugsafmæli sínu í dag, laugardag. „Ég ætlaði að vísu að gera það svo lítið bæri á en úr því þið eruð komnir renna þau áform líklega út í sand- inn.“ Hann hlær. Góðan hljóm, takk! En á þessu augnabliki er Jónas enn að vinna og ekki kemur á óvart að gamli söngvarinn og hljóðupptökumaðurinn vinnur alltaf undir tón- list. Og hann lætur ekki bjóða sér hvað sem er. „Ég hef verið ofdekraður gegnum tíðina hvað varðar hljóð og tón og finnst ekki gott að hlusta á vondan hljóm,“ upplýsir hann brosandi. Spurður hvað hann hlusti helst á nefnir Jónas strax djass. „Ég er mest í djassinum og fram- sækinni tónlist af öðru tagi. Og best kann ég við nýja tónlist; ég er ekki mikið fyrir gamalt popp . Almennt hugsa ég ekki mikið um liðna tíð, það er ekki til nostalgía í mér. Ég hugsa bara um daginn í dag og morgundaginn.“ Og honum líður vel í núinu. „Þetta hefur verið besti tími lífs míns hérna á verkstæðinu. Hér sit ég einn með sjálfum mér, hljóðfærum og tónlist og fáir líta inn heilu dagana.“ Ekki svo að skilja að Jónasi líki illa að fá heimsóknir. Öðru nær. „Ég hef kynnst mörgu nýju og góðu fólki í gegnum starfið, ekki síst ungum fiðluleikurum sem ég hef svo fylgst með dafna og blómstra og verða að atvinnufólki. Það er mjög ánægjulegt. Hingað koma líka frábærir kennarar sem gefa sig alla í það þakkláta verk- efni að kenna unga fólkinu.“ Enginn braggablús Áberandi er raunar að allir koma inn með já- kvæðni í huga, leitandi lausna. „Það kemur eng- inn hingað inn til að kvarta undan pólitískum bragga; hér er enginn braggablús, bara já- kvæðni. Svo rammt kveður reyndar að því að ég hef íhugað að setja skilti í gluggann sem einfald- lega segði „JÁ“. Það er allt svo jákvætt við þetta starf og það hefur fært mér rosalega hamingju.“ Ekki spillir staðsetningin heldur fyrir. „Það er líf og fjör hérna í miðbænum og gaman að fylgjast með fólki á förnum vegi. Ég er mjög heppinn með þennan glugga.“ Gluggar hafa raunar fylgt Jónasi í áratugi. „Já, það er rétt. Ég söng einu sinni: Ég sit og gægist oft út um gluggann. Það má því segja að ég hafi byrjað á því að gægjast út um glugga og endað á því líka. Ég er líka búinn að slappa heil- mikið af,“ segir hann hlæjandi og vísar þar í annan ódauðlegan Flowers-smell. Í þeim töluðu orðum byrjar Jónas í ofboði að veifa út um gluggann. „Alltaf gaman að sjá þær mæðgur, Röggu og Dísu.“ Fiðluformið engu líkt Jónas lærði fiðluviðgerðir fyrir áratug og hefur einbeitt sér að þeim . „Ég var sextugur á þeim tíma og þá er of seint að hasla sér völl sem smiður. Það tekur tíma að þróa sinn stíl. Ég harma það ekkert, viðgerðirnar eiga ofboðslega vel við mig.“ – Hvers vegna fiðluviðgerðir? „Ég lærði á fiðlu sem barn og hafði einnig mikla ánægju af því að vinna með höndunum, gera hulstur utan um dálkinn minn og svo fram- vegis. Ég hef líka alltaf haft gaman af gömlum munum og örlög mín réðust þegar ég fann gamla fiðlu í Góða hirðinum og keypti hana. Ég fór að eiga við hana og fannst það svona rosa- lega gaman. Ég er fagurkeri fram í fingurgóma og fiðluformið er engu líkt. Þetta var í nóvem- ber 2008 og í janúar var ég kominn í skóla úti í Bretlandi. Svona getur lífið verið skrýtið, maður beygir fyrir horn og allt tekur nýja stefnu.“ Hann segir aldrei of seint að breyta um kúrs í þessu lífi. „Það kemur skurðlæknir í heimsókn til mín annað slagið og við spjöllum um heima og geyma. Afi hans var skósmiður og skurð- læknirinn lætur sig dreyma um að feta í fótspor hans.“ Tryggð fyrir 600 milljónir króna. Gestir Jónasar eru af ýmsu tagi. „Einu sinni kom hingað hópur Suzuki-nemenda frá Noregi. Með þeim var maður sem kvaðst eiga Guarneri- fiðlu og spurði hvort ég vildi sjá hana. Já, takk. Hann mætti með fiðluna daginn eftir og spilaði fyrir mig. Baðst að vísu afsökunar á frammi- stöðu sinni; hann væri ekki í nægilega góðri æf- ingu. Ég spurði hvað slíkur gripur kostaði, hann kvaðst ekki vita það fyrir víst en að fiðlan væri tryggð fyrir 600 milljónir íslenskra króna. Bætti því síðan við að hann hefði brotið hana árinu áð- ur, þegar hann rann á svelli. Og setti hana bara á viðgerð. Sumir myndu ekki einu sinni þora að anda á svona dýrgrip.“ – Og kynnti þessi maður sig? „Já, hann skildi eftir nafnspjald. Þegar ég fór að gúggla hann kom í ljós að þetta er einn fremsti fiðluleikari Norðmanna, Arne Tellefsen. Dótturdóttir hans var í Suzuki-hópnum og þess vegna var hann hingað kominn. Hann var ekk- ert nema almennilegheitin og raunar er það mín reynsla, því stærri sem menn eru þeim mun al- úðlegri .“ Í þessu sambandi rifjar Jónas upp þegar hann hitti George heitinn Harrison. „Þetta var upp úr 1980, þegar ég var að vinna með Jakobi Frímanni í upptökum í Kaliforníu og einn dag- inn sat Harrison í kaffistofu hljóðversins. Ekk- ert nema ljúfmennskan og laus við alla stæla. Þegar við yfirgáfum svæðið var hann svo kom- inn inn í skúrinn hjá hliðverðinum í stúdióið og sat þar að spjalli. Harrison var greinilega ekki upptekinn af frægðinni.“ Sá Lennon og McCartney Talandi um Bítla þá fór Jónas með Ringo Starr í Atlavík 1984. „Svo sá ég bæði John Lennon og Paul McCartney, þannig að ég get sagst hafa séð Bítlana þó því miður ekki á hljómleikum,“ segir hann og brosir. Lennon sá hann í Apple Music í Lundúnum. „Við vorum að taka upp Flowers þegar Lennon og Yoko komu askvaðandi inn í hvítu dress- unum. Hann kastaði á okkur kveðju en við töl- uðum ekkert við hann.“ McCartney sá hann líka tilsýndar í Lund- únum. „Hann kom út úr gömlum Benz á New- bery Street og rölti niður götuna eins slakur og hægt er að ímynda sér. Engir stjörnustælar þar.“ Við erum truflaðir í miðju bítli þegar ungur maður kemur inn á verkstæðið. Hann reynist vera frá Litháen og varð fyrir því óláni kvöldið áður að fiðluboginn hans féll í gólfið og úr hon- um kvarnaðist. „Getur þú lagað hann?“ spyr hann Jónas. „Nei, því miður, ég er að loka verkstæðinu og efast um að þú fáir gert við hann á Íslandi. Það sérhæfir sig enginn í viðgerðum á fiðlubogum hér,“ svarar Jónas Hann býr vel um bogann fyrir manninn og ráðleggur honum að senda hann í viðgerð í heimalandi sínu. Maðurinn starir svolítið undr- andi á mig, sem hripa orð á blað, og Árna, sem myndar hann í gríð og erg. Spyr þó einskis, þakkar kurteislega fyrir sig og hverfur á braut. „Fólk kemur hingað með allskonar skemmdir og því miður er ekki hægt að gera við allt,“ segir Jónas þegar hann horfir á eftir unga manninum. Langaði að komast í sólina En hvers vegna er hann að venda kvæði sínu í kross og loka verkstæðinu, þar sem honum hef- ur liðið svona vel? „Konan mín hætti að vinna um síðustu áramót og fyrir löngu ákváðum við að eyða síðasta ævi- skeiðinu í sól og hlýju. Við höfum verið að und- irbúa þetta og valið stóð milli Spánar og Portú- gals og varð síðarnefnda landið fyrir valinu. Fyrst vorum við að gæla við Cascais-svæðið vestur af Lissabon. Þar er stutt inn í borgina sem er mjög falleg og spennandi. Borgin er byggð í hæðum og svolítið erfið yfirferðar. Portúgal er svolítið á eftir á ýmsa lund og það meina ég í jákvæðri merkingu. Við komumst hins vegar að því að kuldinn þarna fer niður fyr- ir okkar þolmörk á veturna og fyrir vikið tókum við stefnuna á Suður-Portúgal, Faro – Vila- moura. Þar er dásamlegt að vera. Hlýtt á vet- urna og fullt af golfvöllum. Verst að hvorugt okkar spilar golf , en hver veit – kannski.“ Hann hlær. Hjónin hafa ekki alfarið sagt skilið við Ísland en meiningin er að dveljast hér heima á sumrin og fara í hestaferðir. Þau munu halda húsnæði sínu, alltént til að byrja með. Hér er fjölskyldan og vinir. Jónas hugleiddi að halda einnig hús- næðinu undir verkstæðið en komst að raun um að það svaraði ekki kostnaði. „Gaman hefði ver- ið að afhenda öðrum fiðlusmiði verkstæðið en þeim er ekki til að dreifa hér á landi. Það eru bara tveir aðrir og þeir eru með sín verkstæði.“ Hann er þó ekki alveg sestur í helgan stein. „Ég tek með mér nokkrar fiðlur út sem ég á eftir að klára að gera við. Dunda mér við það í róleg- heitunum í sólinni. En vinur minn Andrés í Tóna- stöðunni ætlar að taka fiðlurnar mínar í sölu.“ Sér ekki eftir neinu Jónas er á góðum stað sjötugur. „Ég sakna einskis og sé ekki eftir neinu. Ég er bara sú týpa. Eflaust hefði einhvers staðar mátt gera eitthvað öðruvísi en það skiptir engu máli í dag. Mér er alltaf minnisstæð myndin um banda- ríska njósnarann sem dæmdur var til dauða í Austur-Þýskalandi á tímum kalda stríðsins. Þegar lögmaðurinn hans spurði hvort hann hefði ekki áhyggjur af aftökunni svaraði njósn- arinn: Myndi það hjálpa? Hvers vegna að burðast með farangur sem gerir ekkert gagn. Það þyngir mann bara.“ Og honum finnst hann ekki gamall. „Þegar ég var ungur og Bítlarnir sungu „When I’m 64“ fannst mér það alveg rosalega hár aldur og langt í burtu. Hélt að ég yrði aldrei svo gamall. Í dag, á þessari stafrænu öld, er þetta enginn ald- ur. Sjötíu í analóg er ekki sama og sjötíu í digi- tal. Og hugsaðu þér alla þekkinguna, upplýsing- arnar og tækifærin sem unga fólkið býr að í dag sem við höfðum ekki í gamla daga. Ungt fólk í dag er miklu klárara en við höfðum nokkurn tíma möguleika á að verða – sem veit á gott fyrir framtíðina.“ Stækkunarglerið kemur að góðum notum. Þau eru mörg handtökin á fiðluverkstæðinu. Og margt býr í smáatriðunum. Tæki og tól eru af öllum stærðum og gerðum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.