Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Síða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.11. 2018 VETTVANGUR Rithöfundurinn Andri Snær Magnason er hugsi yfir ensku- notkun í mið- bænum: „Þegar ég er erlendis reyni ég oft að læra ein- földustu setningar um hvernig skuli segja góðan daginn og panta sér kaffibolla eða bjórglas og skilja upp- hæðina sem hlutir kosta. Í Frakk- landi reyni ég stundum að tala frönsku þar til ég er beðinn vin- samlegast um að tala ensku. Það mætti gjarnan setja af stað jákvæða vakningu þar sem veitinga- húsaeigendur í miðbænum marki sér þá stefnu að starfsfólk segi góð- an daginn, hvað má bjóða þér en um leið og samtalið er orðið flókn- ara en tvöfaldur expressó takk þá megi skipta um tungumál.“ Útvarpskonan Þórhildur Ólafs- dóttir tísti: „Það er óþolandi þegar bílum er lagt upp á gangstétt eins og hefur margoft verið rætt hér á for- ritinu. Til að sporna við þessu ætti að vera leyfilegt að ganga yfir þá. Já bara klifra upp og labba yfir þakið og húddið.“ Örn Úlfar Sævarsson tísti: „Hvað er málið með stefið í Hag- kaupsauglýsing- unni: Af hverju syngur stúlkan á ensku Dadada- dada, þegar hið alíslenska Lalalalala hefði passað fullkomlega.“ AF NETINU Fátt er okkur Íslendingummikilvægara en að standavörð um sjálfstæði okkar og náttúruauðlindirnar sem við byggj- um lífskjör okkar að verulegu leyti á. Það er því eðlilegt að það veki hörð viðbrögð þegar því er haldið fram að ógn steðji að hvoru tveggja í senn, sjálfstæði okkar og auðlind- unum. Margmeðhöndlaður pakki Þriðji orkupakkinn hefur verið til umfjöllunar hjá stjórnvöldum og Al- þingi í allmörg ár. Þáverandi utan- ríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveins- son, kynnti hann fyrir utanríkis- málanefnd Alþingis árið 2014, hratt þar með innleiðingarferlinu af stað og lét ekki reyna á að við yrðum undanþegin viðkomandi tilskipun eða reglugerðum í heild sinni. Þrjár nefndir Alþingis fjölluðu um málið. Á grundvelli þeirrar umfjöllunar ákvað sameiginlega EES-nefndin í fyrra að taka þriðja orkupakkann upp í EES-samninginn. Á þessu ári hefur aftur á móti komið fram nokkuð hörð gagnrýni á málið, sem ég hef lagt áherslu á að hlusta vandlega á. Ég deili þeirri skoðun margra að ESB hafi stund- um gengið nærri því valdaframsali sem við féllumst á með EES- samningnum, þ.e.a.s. tveggja stoða kerfinu. Við verðum að vera á varð- bergi gagnvart því, því að enginn annar mun gera það fyrir okkur. Gagnrýnin á málið felur í sér að fyrrver- andi utanríkis- ráðherra hafi brugð- ist í hagsmunagæslu fyrir Ísland á þeim upphafsstigum máls- ins þegar bestu tæki- færin voru fyrir hendi til að hafa áhrif á það. En ýmsu er þar haldið fram sem á ekki við rök að styðjast. Forræði og framsal Því hefur verið haldið fram að þriðji orkupakkinn feli í sér afsal á forræði yfir auðlindinni. Hið rétta er að hann varðar ekki á nokkurn hátt eignar- rétt á orkuauðlindum né hvort þær séu nýttar og í hvaða tilgangi. Því hefur verið haldið fram að for- ræði yfir orkumarkaði verði fært til stofnana Evrópusambandsins. Hið rétta er að engin ákvarðanataka gagnvart Íslandi verður færð til stofnana ESB, enda væri það ekki tveggja stoða lausn. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis komst að þeirri niðurstöðu árið 2014 að innleiðingin „feli í sér framsal sem sé vel afmarkað, á tak- mörkuðu sviði og fyrisjáanlega ekki verulega íþyngjandi fyrir íslenska aðila“. Utanríkismálanefnd komst að þeirri niðurstöðu árið 2016 að „sú að- lögun sem samið hefur verið um byggir á tveggja stoða kerfi EES- samningsins og er sambærileg því sem samið er um vegna gerða um evrópskt fjármálaeftirlitskerfi“. Stærsti misskilningurinn Því hefur verið haldið fram að inn- leiðingin valdi því að EES-reglur (fjórfrelsið) muni gilda um orku- markaðinn og þess vegna verði Ís- lendingar neyddir til að skipta upp Landsvirkjun, einkavæða búta úr henni, jafnvel selja þá til erlendra aðila, auk þess sem markaðs- lögmálin muni auka líkur á orku- skorti. Fyrirlestrar og blaðagreinar um þessi meintu ósköp hafa ruglað marga í ríminu. Ekkert af þessu er rétt. Fjór- frelsið gildir nú þegar um íslenska raforkumarkaðinn og því eru allar þessar ályktanir úr lausu lofti gripn- ar. Markaðsvæðing raforku á grund- velli innri markaðar ESB er nú þeg- ar staðreynd á Íslandi og er með öllu óháð þriðja orkupakkanum. Sæstrengur – og garðyrkjan Því hefur verið haldið fram að inn- leiðingin feli í sér að Íslendingar verði neyddir til að samþykkja sæ- streng. Hið rétta er að málið leggur engar skyldur á herðar Íslandi um neitt slíkt. Það er alveg skýrt að Ís- lendingar ráða því sjálfir hvaða stjórnvald veitir leyfi fyrir streng. Að halda öðru fram er fjarstæðu- kennt. Þá hefur því verið haldið fram að garðyrkja muni leggjast af í núver- andi mynd vegna þess að innleið- ingin muni „án nokkurs vafa leiða til lagningar sæstrengs og hækkunar á raforkuverði“. En forsendan um sæ- streng er röng, eins og hér hefur verið rakið. Ég vil trúa því að hér búi mis- skilningur að baki fremur en hræðsluáróður. Skynsamleg markaðsvæðing Sjálfstæðis- flokkurinn er flokk- ur frjálsrar sam- keppni og studdi þess vegna þá auknu markaðsvæðingu orkugeirans, gagnsæi, neyt- endavernd og sam- keppni sem fólst í fyrsta orkupakkanum fyrir 15 árum. Sá þriðji er rökrétt framhald af þeirri stefnumörkun en hefur hverf- andi áhrif á okkur nema við sam- þykkjum að tengjast Evrópusam- bandsríki með streng. Það er undir okkur komið. Fjórfrelsið og evrópskar sam- keppnis- og ríkisstyrkjareglur hafa gilt um íslenskan orkumarkað árum saman. Eina leiðin til að losna undan því væri að losna við EES- samninginn. Það er einmitt yfirlýst markmið sumra þeirra sem harðast berjast gegn orkupakkanum. Ég er ósammála því markmiði. Ég tel að við eigum að verja samninginn. Rétt eins og með auðlindirnar þá byggj- um við lífskjör okkar á honum að verulegu leyti. Það blasir við að við höfum ekki þörf fyrir reglugerðir um millilanda- tengingar við núverandi aðstæður. Þetta hef ég áður sagt. Þess vegna finnst mér alls engin furða að fólk spyrji hvaða þörf sé fyrir þetta mál frá sjónarmiði orkumála. Sú spurn- ing er eðlileg, en þetta mál snýst um stóra samhengið og mikilvæga hags- muni. Rétt og rangt um orkupakkann ’Hið rétta er aðfjórfrelsið gildirnú þegar um íslenska raforku- markaðinn og því eru allar þessar ályktanir úr lausu lofti gripnar. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Lang- vinsælastur hollusta í hverjum bita SAMSTARFSAÐILI HVAR SEM ÞÚ ERT Hringdu í 580 7000 eða farðu á heimavorn.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.