Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Síða 19
18.11. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 því að ég vildi byrja að vinna á yngsta stigi. Það er kannski sá aldur sem er auðveldast að byrja að kenna svona,“ segir Hákon en í Bretlandi og Nýja-Sjálandi eru til grunnskólar sem kenna eftir aðferðinni í öllum árgöngum. „Þú ert styttra og styttra inni í ímyndunar- heiminum sjálfum eftir því sem krakkarnir verða eldri og lengur fyrir utan að hugsa hvað gerist í þessum ímyndunarheimi og hvað fólk myndi gera núna. Ímyndunarheimurinn er bara notaður til að skapa aðstæður þar sem hægt er að velta hlutunum fyrir sér. Núna er ég að kenna þetta þriðja árið í röð, á öðru ári sem út- skrifaður grunnskólakennari. Ég finn að við er- um alltaf minna og minna inni í ímyndunar- heiminum og ígrundunin er alltaf að verða meiri. Maður vill ekki að nemendur upplifi þetta sem barnalegt,“ segir hann. Er mikil áskorun að samþætta námsgreinar? „Það finnst mér ekki, það skrifar sig oft sjálft. Það þarf að vera meðvitaður um að passa upp á alla þættina, passa að við komum inn nógu mik- illi ritun, lestri og svo framvegis. Þess vegna finnst mér teymiskennslan skipta svo miklu máli svo ábyrgðin sé ekki bara hjá einhverjum einum. Og allar bestu hugmyndirnar sem við höfum fengið hafa komið úr einhverju hugflæði þar sem við erum bara að henda fram hug- myndum og allt í einu smellur eitthvað.“ Hversu miklum námslegum árangri skilar þetta? „Það eru óljósustu niðurstöðurnar fyrir mér og svo er spurning um hvað maður á við þegar maður segir árangur. Ég þykist vera 100% viss um að þetta skili áhuga. Þetta er nokkuð sem við kennararnir höfum heyrt í foreldraviðtölum að krakkarnir virðast tala meira um þessi verk- efni heima en annað sem þau eru að gera í skól- anum. Þau tala meira um þetta við okkur; það eru fá verkefni sem við höfum lagt fyrir þar sem nemendur hafa ákveðið að gera sjálfstæðar at- huganir heima á hinum og þessum hlutum sem við höfðum ekki beðið þau að gera en það gera þau þegar við notum sérfræðingskápuna. Mér finnst það vera takmarkið með þessu öllu. Mér finnst að skóli eigi frekar að vera að kenna hvernig maður aflar sér upplýsinga. Og kenna að það sé gaman og áhugavert að læra eitthvað og vita eitthvað.“ Hákoni finnst líka mjög mikilvægt að kenna samvinnu innan skólans. „Mér finnst samvinnan svo ótrúlega mikilvæg því hana lærirðu ekki endilega annars staðar. Við vinnum alltaf mikið með að láta krakkana tala saman og reyna að komast að sameiginlegum niðurstöðum og ákvörðunum.“ Hann segir að í fyrstu hafi ákvarðanir í hóp- um verið teknar þannig að nemendurnir ræddu um hvað væri hægt að gera, stungu upp á tveimur möguleikum, kusu um þá og meirihlut- inn vann. „Það hefur dregið úr þessu. Núna er orðið meira um það sem ég vil, að þau tali saman og útskýri sína afstöðu og reyni að fá aðra til að sjá af hverju hún sé góð. Mér finnst þau orðin mjög góð í þessu miðað við aldur mörg hver. Þarna held ég að leikurinn spili mikið inn.“ Honum finnst leikurinn ná að kveikja neista hjá krökkunum og áhuga til að læra meira. „Þegar við vorum í fyrsta leiknum var á sama tíma í gangi umbunarkerfi varðandi hegðun nemenda í matsal. Þegar þau voru búin að safna tilteknu magni af stjörnum fengu þau að velja sér umbun. Þau komu með alls konar tillögur og síðan var kosið um þær. Þegar ég var búinn að vera þarna í fjórar vikur var haldin umbunar- kosning. Einhver nemandi stakk upp á því að sem umbun myndu þau fara í það sem þau köll- uðu „spæjaraleikinn“. Síðan var haldin kosning og það voru 11 nemendur sem völdu spæjara- leikinn en dótadagur vann. 25% nemenda kusu aftur á móti að læra í hlutverki, þ.e. að fara í skólann. Þau völdu að læra fram yfir dótadag. Eftir aðeins lengri tíma, átta vikur eða svo, var haldin önnur svona kosning. Þá var það rétt rúmlega helmingur sem valdi að fara í spæjara- leikinn,“ segir Hákon og segir að það hafi verið verulega ánægjulegt. „Það er skemmtilegasta niðurstaða sem ég hef fengið finnst mér,“ segir hann. Má ekki vera leiðinlegt „Áhuginn hjá krökkunum er númer eitt, tvö og þrjú: að þau hafi áhuga og finnist gaman í skól- anum. Ef það er ekki gaman í skólanum þá lær- irðu ekki neitt.“ Sjálfum gekk Hákoni mjög vel námslega í grunnskóla. „En mér fannst hundleiðinlegt og meira og minna allt unglingastigið mitt gekk út á hversu hratt ég gæti gert verkefnin. Keppnin mín var aldrei að læra meira heldur var hún um hvernig ég gæti gert það sem ég var að gera hraðar. Ég var orðinn mjög snöggur. En það kom alveg í bakið á mér í menntaskóla en fyrsta árið hjá mér var slakt. Ég hafði engan áhuga á því sem ég var að gera. Ég hefði þannig séð getað flosnað upp úr námi á endanum,“ segir hann og grínast samt með að mamma hans hefði aldrei tekið það í mál. Hann ítrekar að það skipti öllu máli að ná að vekja þennan áhuga hjá nemendum. „Ég held að það skipti öllu máli. Og þetta að krakkarnir segi ekki: „það er leiðinlegt í skólanum“. Það á ekki að vera þannig. Þetta er vinnan þeirra og við viljum fæst vinna við eitthvað sem okkur þykir ekki allavega smá gaman.“ Hákon Sæberg ásamt hluta af nemendum úr 4. bekk Árbæjarskóla. Morgunblaðið/Hari ’Mér finnst að skóli eigi frekar að vera að kennahvernig maður aflar sér upp-lýsinga. Og kenna að það sé gaman og áhugavert að læra eitthvað og vita eitthvað. „Hegðunarvandamál eru svo gott sem engin þegar við erum í hlut- verki,“ segir Hákon. Krakkarnir í bekknum hafa m.a. verið í hlutverki spæjara, sem spratt út frá því að það hafði verið vinsælasti leikurinn hjá Hákoni á frístundaheimilinu. „Ég held að það sé gott fyrirtæki til að byrja á fyrir einhvern sem hefur ekki gert þetta áður. Hlutverk spæjara er ekkert ósvipað því sem við viljum að krakkar séu að gera í skóla; það er að afla sér upplýsinga, skrá þær niður, velta þeim fyrir sér, og pæla í hvaða upplýsingar þurfi í kjölfarið. Svo getur maður látið næstum hvað sem er gerast,“ segir hann. „Spæjaraverkefnið byrjaði þannig að spæjararnir voru plataðir til að ræna banka af óprúttnum karakter sem stakk af með allan ránsfenginn og löggan náði þeim. Þeir ná að sannfæra lögguna um að þeir séu nokkuð góðir spæjarar og lögg- an sér það og býður þeim að vinna með sér til þess að ná þessum þjófi. Þá erum við komin með verkefni frá löggunni og bankastjóranum; náið þessum þjófi. Þau eru líka komin með sterka tilfinningalega afstöðu, hann er búinn að plata þau. Krakkarnir eiga að læra um fjöll svo við látum það koma í ljós að hann hafi flúið á fjöll; upp á hálendið. Krakkarnir vilja rjúka af stað en spæjarar vita að maður rýkur ekki neitt því maður aflar sér upp- lýsinga um það sem maður er að fara að gera áður en maður fer af stað. Við för- um í það að afla okkur upplýsinga um fjöll. Það voru einhver sex fjöll sem þau áttu að kynna sér og þeim var skipt í sex hópa sem hver og einn kynnti sér eitt fjall og þau kynntu síðan fjöllin hvert fyrir öðru,“ segir Hákon og útskýrir að þarna hafi þau notað þau verkefni sem hefðu verið lögð fyrir hvort eð er. „Við lásum bækurnar sem ætlunin var að nota í kennslunni, s.s. Komdu og skoðaðu fjöll- in, en innan ímyndunarheimsins og þá voru kennslubækurnar orðnar flottar fræðibækur,“ segir hann. „Þau lærðu um fjöllin og voru loksins búin að læra nóg til að fara upp á fjall og þá kom í ljós að vondi karlinn er uppi á Heklu. Það var engin tilviljun því á kennsluáætluninni var ætlunin að kenna um eldfjöll sérstaklega. Þegar við fórum upp á eldfjall, sem var hóll hérna hjá skólanum, kom allt í einu tröll á móti okk- ur og við þurftum að rjúka inn í skóla. Það var heldur engin tilviljun því tröll og þjóðsögur voru næst á dagskrá á kennsluáætluninni.“ Spæjarar lærðu um fjöll

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.