Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Síða 36
Á því herrans ári 1971 kem-ur norrænufræðingurinnJóhanna heim til Íslands
frá París ásamt ungum syni sínum
til að jarða föður sinn sem búsett-
ur var í Flatey. Áform hennar um
að hverfa hratt og örugglega út í
heim aftur renna hins vegar út í
sandinn þegar morð er framið og
hún sogast sjálf inn í rannsóknina.
Til þess að sanna sakleysi sitt og
bjarga sér undan skuggum for-
tíðar þarf Jóhanna að leysa Flat-
eyjargátuna sem fólgin er í fornu
handriti.
Sjónvarpsþættirnir Flateyjar-
gátan, sem sýndir verða í fjórum
hlutum næstu sunnudaga á RÚV,
eru lauslega byggðir á samnefndri
skáldsögu Viktors Arnars Ingólfs-
sonar, sem kom út árið 2002.
Ýmsu hefur verið breytt, til að
mynda er aðalpersónurnar í þátt-
unum ekki að finna í bókinni, en
handritshöfundur er Margrét
Örnólfsdóttir.
„Í grunninn er þetta gert úr
þremur þáttum,“ segir Björn B.
Björnsson, leikstjóri Flateyjargát-
unnar. „Í fyrsta lagi er þetta
glæpasaga. Maður er myrtur, lög-
reglan rannsakar málið og við
fáum að lokum að vita hver er
sekur. Í öðru lagi er þetta fjör-
gömul gáta að hætti Da Vinci
Code. Gröf síðasta heiðna goðans
á Íslandi finnst. Í þriðja lagi er
þetta metoo-saga um kynbundið
ofbeldi sem aðalsöguhetjan þarf
að gera upp.“
Flatey lítið breyst
Afar sjaldgæft er að leiknir ís-
lenskir sjónvarpsþættir gerist
ekki í samtímanum en árið 1971
varð fyrir valinu svo tengja mætti
þráðinn við merkan viðburð úr Ís-
landssögunni, afhendingu handrit-
anna. Bók Viktors Arnars gerist
um áratug fyrr.
„Það er ekki auðvelt að gera
períóðu á Íslandi,“ segir Björn,
„enda blasir samtíminn við hvert
sem þú beinir myndavélinni. Flat-
ey gerir þetta hins vegar mögu-
legt enda hefur lítið breyst þar á
þessum tæplega fimmtíu árum.
Húsin eru að vísu fínni núna en
þá. Hipparnir, sem orðnir eru lög-
fræðingar og læknar í dag, voru
ekki búnir að kaupa þau og gera
upp. En við höfum okkar ráð með
það. Sagan gerist að lang-
stærstum hluta í Flatey.“
Lára Jóhanna Jónsdóttir fer
með aðalhlutverkið í þáttunum,
Jóhönnu. „Ýmsir kannast örugg-
lega við Láru úr leikhúsinu en ef
að líkum lætur munu miklu fleiri
þekkja hana eftir sýningu þátt-
anna. Mikið mæðir á Láru og frá
mínum bæjardyrum séð leysir
Lára Jóhanna Jónsdóttir í
hlutverki Jóhönnu og Mikael
Köll Guðmundsson sem
leikur Snorra, son hennar.
Glæpur, gáta og metoo
Ný íslensk þáttaröð, Flateyjargátan, hefur göngu sína í Ríkissjónvarpinu í kvöld, sunnudagskvöld. Ef
að líkum lætur verður hún sýnd víða um heim og segir leikstjórinn, Björn B. Björnsson, okkur Íslend-
inga þurfa að nýta betur meðbyrinn sem áhugi heimsins á norrænu sjónvarpsefni hefur fært okkur.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Björn B. Björnsson leikstjóri á tökustað Flateyjargátunnar.
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.11. 2018
LESBÓK
ANDLÁT Kvikmyndaleikarinn Robert DeNiro brennur
í skinninu að lesa minningargreinar um sig; ekki síst eft-
ir að hann komst að raun um að hann þyrfti ekki að
deyja áður. „Ég rakst einu sinn á mann í kvöldverðar-
boði sem skrifar minningargreinar fyrir New York Tim-
es,“ segir DeNiro í samtali við breska blaðið The Guard-
ian, „og hann tjáði mér að minningargreinarnar um
allar helstu persónur samtímans væru tilbúnar fyrir-
fram – og að ég væri í þeim hópi. Svo virðist sem allt sé
meira og minna klappað og klárt og aðeins þurfi að
bæta lítilræði við fyrir birtingu.“ Í sama viðtali kveðst
DeNiro vera með fullkomnunaráráttu og að hann hafi
ekið leigubíl í nokkrar vikur til að búa sig undir hlut-
verkið í Taxi Driver – án þess að þurfa þess í raun.
Minningargreinin klár
Robert
DeNiro
Reuters
MÁLMUR Klaus Meine, söngvari Scorpions,
viðurkennir að Elli kerling sé að ná í skottið á
honum en hið sígræna þýska málmband
þurfti að aflýsa tónleikum í Ástralíu á dög-
unum vegna raddleysis söngvarans sem varð
sjötugur fyrr á þessu ári. Ekki er langt síðan
Meine viðurkenndi að bandið treysti sér ekki
til að koma fram eins oft og áður, auk þess
sem líffræðilega ómögulegt væri fyrir hann
að syngja sum eldri laganna, svo sem No One
Like You og Big City Nights, í upprunalegri
tóntegund. Undanfarið hefur Scorpions verið
að túra um heiminn með öðru gamalgrónu
bandi, Def Leppard frá Sheffield.
Elli kerling að ná í skottið á Meine
Vel fór á með Klaus Meine og frú og Gerhard
Schröder og frú þegar þau hittust á dögunum.
AFP
Mandy Moore leikur mömmuna.
Öss, Us, uss
SJÓNVARP SÍMANS Þriðja serían
af bandarísku dramaþáttunum This
is Us hefur göngu sína í kvöld,
sunnudagskvöld. This is Us segir
sögu Pearson-fjölskyldunnar og er
henni fylgt í gegnum súrt og sætt í
fortíð og nútíð og hafa þættirnir
notið fádæma hylli vítt og breitt um
heiminn. Sjónvarpsáhorfendur
mega því gera ráð fyrir að þurfa að
gráta talsvert og gnísta tönnum
næstu vikurnar og betra að hafa
vasaklútinn við höndina.
STÖÐ 2 Keppni
stendur nú sem
hæst í X-Factor í
Bretlandi, þar sem
söngvurum á öll-
um aldri gefst dýr-
mætt tækifæri til
að koma hæfi-
leikum sínum á
framfæri. Stöð 2 sýnir þættina á
föstudags- og laugardagskvöldum,
fyrst söngatriðin sjálf og síðan eru
úrslitin kynnt með tilheyrandi álagi
á helstu líffæri. Drengbandingj-
arnir Louis Tomlinson úr One Di-
rection og Robbie Williams úr Take
That eru í dómnefndinni, ásamt
leikkonunni Aydu Williams og
gamla brýninu Simon Cowell.
Kynnir er æringinn Dermot
O’Leary.
Ertu með X-ið?
Simon Cowell
RÚV Á laugardagskvöldum í vetur
sýnir RÚV vel valdar kvikmyndir
sem hafa valdið straumhvörfum í
kvikmyndasögunni. Í þetta sinn er
það Óskarsverðlaunamyndin Fargo
frá árinu 1996 í leikstjórn bræðr-
anna Joels og Ethans Coen. Myndin
segir frá bílasalanum Jerry sem er
sokkinn djúpt í skuldafen. Aðal-
hlutverk: William H. Macy, Frances
McDormand og Steve Buscemi.
Joel Coen og Frances McDormand.
Straumhvörf
Spurður hvað sé á döfinni
hjá honum sjálfum kveðst
Björn vonast til að gera
kvikmynd næst. „Ef Guð og
Kvikmyndasjóður lofa eins
og sagt er. Að gera kvik-
mynd er ekki eins og að
setjast við ritvélina,“ segir
hann hlæjandi.
Krafinn um frekari svör
upplýsir Björn að myndin
heiti 800 og gerist á Íslandi
það ár og að aðalpersónan
sé írskur munkur. „Það er
orðið tímabært að lengja Ís-
landssöguna í hinn endann.“
Aftur til
ársins 800
Ljósmynd/Nanna Rúnarsdóttir