Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2018, Qupperneq 40
SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2018
BORGHESE Model 2826
L 220 cm Leður ct. 15 Verð 489.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY Model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 430.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 585.000,-
ETOILE Model 2623
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 485.000,-
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,-
MENTORE Model 3052
L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 315.000,-
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 345.000,-
Málþingið er á vegum Félags
áhugamanna um sögu læknis-
fræðinnar og er ætlunin að taka
til umfjöllunar líf, ástamál,
drykkju og dauðdaga Jónasar og
velta fyrir sér tíðaranda 19. ald-
ar. „Jónas var umdeildur í lif-
anda lífi en eftir dauða sinn var
hann nánast settur í dýrlinga-
tölu,“ segir Jón Jóhannes Jóns-
son, yfirlæknir erfða- og sam-
eindalæknisfræðideildar LSH, en
hann verður fundarstjóri. „Fjöln-
ismenn lýstu dauðdaga skáldsins
á afar rómantískan hátt sem
stenst á engan veg nánari athug-
un. Menn eru enn í dag ekki á
eitt sáttir um eiginlega dánar-
orsök skáldsins. Var Jónas
drykkjumaður eða ekki? Hver
var stúlkan í hans lífi? Beina-
málið svokallaða, þegar meint
bein Jónasar voru flutt heim og
grafin á Þingvöllum, var mikið
umtalað og umdeilt.“
Erindi flytja Torfi Tulinius,
prófessor í íslenskum mið-
aldafræðum, Páll Valsson, rithöf-
undur og höfundur ævisögu Jón-
asar, Dagný Kristjánsdóttir,
prófessor í íslenskum nútímabókmenntum, Óttar
Guðmundsson geðlæknir og Jón Karl Helgason,
prófessor í íslensku.
Málþing um heilsu Jónasar
211 ár voru í gær liðin frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar.
Efnt verður til málþings um heilsufar Jónasar Hallgrímssonar og hina
hliðina á skáldinu í dag, laugardag, kl. 10 í Þjóðmenningarhúsinu.
Jón Jóhannes
Jónsson
Dagný
Kristjánsdóttir
Óttar
Guðmundsson
Morgunblaðið birti á þessum
degi fyrir sextíu árum nokkur
heilræði til neytenda sem tekin
voru upp úr síðasta bæklingi
Neytendasamtakanna. Þau eru
eflaust hverjum manni holl,
hafði blaðið á orði, en heilræðin
voru sem hér segir:
Vandið vel til allra kaupa.
Frestið kaupum, séuð þér í
vafa.
Aflið yður vöruþekkingar.
Vöruþekking er peningar.
Hafið bókhald yfir útgjöld yð-
ar. Það auðveldar yður að verja
fé yðar af hyggindum.
Kaupið þér hlut með ábyrgð,
þá kynnið yður nákvæmlega,
hvað í ábyrgðinni felst.
Takið greinilega fram, hvort
átt sé við endurgreiðslu eða
skipti, sé keypt með fyrirvara.
Gerið seljanda viðvart án taf-
ar, komi galli á vöru í ljós.
Biðjið um dagsettan reikning,
þegar þér gerið kaup, sem máli
skipta.
Verzlið sem mest gegn stað-
greiðslu og veljið vörurnar sjálf.
Athugið verðið. Það er ekki
hið sama alls staðar.
Munið, að lágt verð þarf ekki
að tákna lélega vöru, og hátt verð
er engin trygging fyrir gæðum.
Kaupið aðeins það, sem þörf
er á, í dag, svo að þér neyðist
ekki til að vera án þess, sem þér
þarfnist, á morgun.
GAMLA FRÉTTIN
Heilræði til
neytenda
Matvara í verslun upp úr 1960.
Morgunblaðið/Ól. K. M.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Jason Isaacs sem Lucius Malfoy
úr Harry Potter-myndunum
Andrea Jónsdóttir
útvarpskona og plötusnúður
Biff Byford
söngvari málmbandsins Saxon