Morgunblaðið - 24.12.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.12.2018, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2018 „Í upphafi var Orð- ið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Hann var í upp- hafi hjá Guði … Og orðið varð hold,“ skrifar Jóhannes guðspjallamaður, „og hann bjó með oss, fullur náðar og sann- leika.“ (Jóh 1.14). Þetta er holdtekjan, inkarnasjónin. Hér er engin vandskilin guðfræði, engin vafn- ingasöm heimspeki. Kristindóm- urinn heldur því fram að þetta sé svona og engan veginn öðruvísi. Þegar Móse var staddur hjá þyrnirunnanum, sem stóð í ljós- um loga og brann þó ekki, var honum sagt að draga skó sína af fótum sér því að staðurinn, sem hann stæði á, væri heilög jörð (2 Mós. 3.5). Holdtekjan (þegar hið skapandi orð Guðs varð hold í piltbarninu í jötunni í Betlehem) þýðir að öll jörðin er heilög, af því það er ekki aðeins að Guð hafi skapað hana, heldur gekk hann um á henni, borðaði og svaf, starfaði og dó – á henni. Sá boð- skapur, sem kirkjan á að flytja veröldinni, hlýtur æ og ævinlega að vera fagnaðarerindið um frels- arann; boðskapurinn unaðslegi um endurreisn hins fallna manns í Jesú Kristi. Þetta fagnaðar- erindi er þau gleði- legu tíðindi, sem herma frá frelsun og endurlausn mann- eskjunnar, bæði hér og í komandi heimi, og er það gjöf Guðs í Jesú Kristi til synd- ugra, já glataðra manna. Syndin er sjúkdómur, sem er sekt, og sekt, sem er örlög. Og mesta bölvun syndarinnar er fólgin í því, að hún gerir oss blind á sjálfa sig, þannig, að vér sjáum hana ekki, komum ekki auga á hana. Og þegar syndarinn reynir betrun, freistar þess að bæta borgaralega hegðun sína og fram- komu, dregur síst úr synd hans, heldur færist hún fremur í aukana; hann heldur áfram að vera syndari í hjarta sínu. Það er ekki hægt að betra syndina; syndin verður að deyja. Í skírn- inni deyjum vér með Kristi og eigum að rísa upp til nýs lífs með honum. Að frelsast er að taka á móti fagnaðaboðskapnum í trú. Trúin er að taka við tilboði fagnaðar- erindisins í hlýðni, auðmýkt og þökk, en fagnaðarerindið er sá gleðilegi boðskapur að Guð hafi frelsað oss glataða menn frá synd og dauða og gefið oss frelsið að óverðskuldaðri gjöf. Trúin er veg- ferð syndugs manns frá skírn til dauða í von um upprisuna. Í trúnni megum vér treysta því, að lífið nýja, hið fullkomna og synd- lausa líf, sem Kristur færir með fyrirgefningu sinni, á að rísa upp á efsta degi. En það gamla og synduga og uppreisnargjarna líf, sem vér höfum örvað og glætt með synd vorri og sjálfsréttlæt- ingu, það á aftur á móti að deyja og verða jarðað í kirkjugarðinum. Jerúsalem verður ný Jerúsal- em, sem stígur niður af himni frá Guði, búin sem brúður er skartar fyrir manni sínum (Op. Jóh. 21.2). Líkömum vorum er sáð forgengi- legum, en þeir rísa upp ófor- gengilegir (I.Kor. 15.42). Gleðileg jól! Eftir Sr. Gunnar Björnsson » Sá boðskapur kirkjunnar hlýtur æ og ævinlega að vera fagnaðarerindið um frelsarann; boðskapur- inn um endurreisn hins fallna manns í Jesú Kristi. Gunnar Björnsson Höfundur er pastor emeritus. Fæðing Jesú Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla Starfsfólk Eignamiðlunar S í ð u m ú l a 2 1 · S . 5 8 8 9 0 9 0 · w w w . e i g n a m i d l u n . i s 588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík Hver heilbrigðis- ráðherrann á eftir öðrum hefur haft það meginverkefni að jaðarsetja þjónustu lækna sem starfa utan sjúkrahúsa. Umboðið til þess hefur ekki komið frá kjósendum. Umboð kjósenda nær til byggingar og reksturs sjúkrahúsa, heilsugæslu í nærumhverfi, öldr- unar- og líknarmála og aðgengi- legrar sérfræðiþjónustu. Kostnaður í krónutölu er lægstur til sér- fræðiþjónustu lækna utan sjúkra- húsa. Á þann garð skal nú ráðast í nafni hagræðingar. Öfug- mælaorðræða vinstri manna er völ- undarhús sem þeir sjálfir rata ekki út úr. Lýðræðisleg læknisþjónusta utan sjúkrahúsa Það hefur byggst upp lýðræðis- leg og alþýðleg læknisþjónusta ut- an sjúkrahúsa sem er rekstrarlega sjálfbær svo lengi sem læknar sækja í þessi störf. Lýðræðisleg, því að þangað sækir fólk sér hjálp milliliða- laust eftir eigin hyggjuviti og með ráð- um heilsugæslulækna, þegar svo ber undir. Vinstri menn dags- ins í dag eru ekki lengur tengdir „vinn- andi stéttum“ og „hugsandi fólki“ sem þótti aðall gamla- vinstrisins heldur miklu fremur „skrif- borðsreddarar“ í vax- andi ríkisvaldi sem fer að líkjast meira og meira stórfyrirtækja- rekstri en þjónustutæki almenn- ings og fyrirtækja. Framfara- og sköpunarþráin sem fyrrum ein- kenndi samfélagið er gerð tor- tryggileg. Niðurrif og stöðnun orð- in staðföst ný-vinstri stefna. Á tímum frjálsra upplýsinga og góðrar almennrar menntunar til að meta sjálfstætt gildi þeirra, eru notendur þjónustunnar fullkomlega fyrirlitnir af valdhöfum, sem ein- blína á miðstýrðar tæknilausnir gærdagsins. Stór og vaxandi hluti sjálfstætt starfandi lækna eru kon- ur sem hafa af harðfylgi sótt sér menntun með tilheyrandi félags- legum fórnarkostnaði. Þær eiga ekki að njóta athafnafrelsis til framtíðar. Þær eiga að gerast launaþrælar stórfyrirtækja í heil- brigðisþjónustu. Nú er svo komið að velferðarkommisarar ríkis- stjórnarinnar standa í ófriði við sérfræðilækna með „hunsunar- “aðgerðum eins og að taka framtíð- arfjármögnun starfseminnar út úr fjárlagastefnu ríkisins 2019-2030. Það vita allir sem fylgjast með vegamálum hvað það þýðir. Þeir ætla að leysa málin „tæknilega“. Þetta olli snörpum viðbrögðum við- komandi lækna og þeir sögðu upp ágætum samningum við Sjúkra- tryggingar ríkisins sem er vitan- lega meginstoð alls almennings í daglegri heilbrigðisþjónustu. Vinstri græna gæfuleysið Heilbrigðisráðherra tekur það á sínar herðar að stöðva með penna- striki áratuga hefð fyrir áreiðan- legri þjónustu án þess að geta sýnt fram á betri lausn til framtíðar. Hún heldur því fram að hægt sé að byggja upp göngudeildarmóttöku fyrir sérfræðiþjónustu á Landspít- alanum í Kvosinni, sem er meiri- háttar aðgerð og tekst aldrei að gera að sambærilega því sem þó hefur náðst í dag. Á meðan tefst uppbygging framtíðarhúsnæðis undir sjúkrahús landsmanna. Allt hefur þetta yfirbragð erindisleysu þegar upp verður staðið. Takist vinstri ráðamönnum að brjóta niður þjónustu sjálfstætt starfandi lækna án þess að jafn ábyggileg þjónusta taki við henni snöggt og örugglega mun það valda Vinstri Grænum pólitísku gæfuleysi. Allt skal lúta vinstri vilja Gott er að skoða sögu sjálfstætt starfandi sérfræðinga. Þjónustan er svar við íslenskum veruleika innan mjög þröngs fjárlagaramma og lengi vel undirmönnuð en hefur vaxið hóflega með þjóðinni og óvíst að hagkvæmari einingar ná- ist nema með margvíslegum fórn- arkostnaði fyrir sjúklinga og aukn- um útgjöldum ríkisins. Hver einasti sjálfstætt starfandi læknir tekur á móti sínum sjúklingum. Býður þá velkomna og veitir alúð- legt viðtal og skoðun. Yfirbygg- ingin lítil og boðleiðir stuttar. Sjúklingarnir eru frjálslegir og þakklátir þessu fyrirkomulagi. Ef læknir fær ekki sjúklingana til sín fær hann engin laun greidd þann daginn. Áhætta sjálfstætt starfandi lækna er á pari við farandverka- menn. Það er engin sjúkratrygging og slysatrygging eða framhalds- menntunarkostnaður greiddur nema af rekstri viðkomandi læknis og góðs samstarfsfólks. Byrðar rík- isins af starfseminni felast aðeins í takmörkuðu athafnafrelsi lækna í þágu almennings. Frelsi á sér for- mælendur fáa í nútíma stjórn- málum. „Tæknilega séð“ er það bara til vandræða. Ef framtíðarsýn ríkisstjórnarinnar er að gera alla lækna að fastlaunuðum ríkisstarfs- mönnum er best að tilkynna það strax. Vinstrimenn eru gæfulausir öfugmælasmiðir Eftir Gísla Ingvarsson »Heilbrigðisráðherra tekur það á sínar herðar að stöðva hefð fyrir áreiðanlegri þjón- ustu án þess að geta sýnt fram á betri lausn til framtíðar. Gísli Ingvarsson Höfundur er húðsjúkdómalæknir í Reykjavík. gingvarsson@mac.com Vantar þig pípara? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.