Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 7
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
87
2. mynd. Yfirlitsmynd af Mývatni. Rauðir hringir sýna veiðisvæði rannsóknarveiða. – Overview
over Lake Mývatn. Red circles show location of sites for monitoring fishery. Kort/Map: Ásta
Krístín Guðmundsdóttir.
Kísilgúrdæling hófst úr Mývatni
1967. Full vinnsla hófst um 1970 og stóð
dæling samfellt í um 30 ár. Dæling af
botni Mývatns var ætíð umdeild en af
veiðitölum að dæma byrjaði samdráttur
í silungsveiði í vatninu um líkt leyti og
dæling hófst og stóð með nokkrum
sveiflum um stöðugt lægra meðaltal til
2006 þegar aðeins um 2.400 silungar
voru skráðir í veiðiskýrslur. Ekki er
með beinni vissu hægt að skera úr um
áhrif dælingar af botni Mývatns á veiði
en sýnt hefur verið fram á að óstöð-
ugleiki vegna rofs á vatnsbotninum,
tengdur kísilgúrvinnslu, hefur aukið
sveiflur í stofnum slæðumýs.15 Slíkar
sveiflur ná allajafna til fleiri tegunda í
fæðuvef vatnsins.
Tegundir fiska í Mývatni eru bleikja
(Salvelinus alpinus) (4. mynd), urriði
(Salmo trutta) og hornsíli (Gasterosteus
aculeatus). Af bleikju eru tvö útlitsaf-
brigði í vatninu, Mývatnsbleikja, sem
er hraðvaxta og nær almennt nokkurri
stærð (40–50 cm) við kynþroska, og
krús, sem er undirmynnt og smávaxið
afbrigði bleikju sem einkum heldur
til í köldum lindum við austurbakka
vatnsins eða í vatninu við lindirnar.
Auk þess eru gjáarlontur (hellableikja)
í hraunhellum og uppsprettulindum
umhverfis Mývatn.16–19 Við Mývatn er
löng hefð fyrir því að tala um silung og
eru aðkomumenn gjarnan leiðréttir ef
þeir minnast á fiska.20 Orðið er notað
sem samheiti fyrir bleikju og urriða en
af þeim hefur stofn bleikju verið mun
stærri en urriðans og er því oftast átt við
bleikju þegar talað er um silung. Fleiri
sér-mývetnsk heiti eru notuð um silung,
svo sem branda og ef bröndurnar eru
bjartar er talað um flóabröndur. Hrygnur
eru oft nefndar gálur og hængar goggar.
Hrygningarstöðvar eru nefndar rið og
hrygningarfiskar riðafiskar eða riða-
bröndur (5. mynd).
Net sem lögð eru fyrir landi og
dregin að landi með leiðurum eru nefnd
dráttarnet, veiðiskapurinn dráttarveiði
og svæðin sem veitt er á drættir. Ef
dráttarsvæði eru á hrygningarstöðvum
sem veitt er á um hrygningartíma er rætt
um riðadrætti. Löngum voru net heima-
gerð, riðin úr ull. Stærð möskva í netum
var þá nefndur riðill eða riði. Stærð
möskva í silungsneti miðast jafnan við
legg (milli hnúta) og hafa má sem þum-
alfingursreglu að með möskva mældum
í millimetrum veiðist tilsvarandi stór
silungur mældur í sentimetrum. Hér
hafa verið nefnd nokkur mývetnsk sér-
heiti sem sum koma síðar fram í texta en
vert væri að gera fornum heitum á veiði,
veiðitækjum og verkun afla frekari skil.
Heildstæð samantekt um niður-
stöður rannsókna á bleikju var gerð
2004.18 Í þessari samantekt greinir frá
framhaldi þeirra rannsókna með upp-
færðum niðurstöðum til og með árinu
2016. Um er að ræða vöktunarrann-
sóknir (kerfisbundnar endurteknar
mælingar) sem staðið hafa árlega frá
1986.16,17, 21–35
Á árunum 1986 til 1992 var haldið
til rannsóknarveiða tvisvar á ári, í júní
að vori og í september að hausti. Frá
árinu 1993 hefur verið farin ein rann-
sóknarferð um mánaðamótin ágúst-
september, á þeim tíma þegar nýliðun og
vöxtur silungs yfir sumarið er að mestu
leyti kominn fram en áður en haustveður
verða ríkjandi. Þegar mælingar fóru
fram tvisvar á ári kom fram allgóð sam-
svörun á milli mælinga vor og haust á
lykilþáttum fyrir framvindu veiðistofna
Mývatns.18 Rannsóknirnar á bleikju í
Mývatni hafa sýnt að meginviðburðir,
þar með talin „hrun“, hafa orðið yfir
sumartímann. Á rannsóknartímanum
komu fram hrun sumrin 1988 og 1997.18,34
Á fyrri hluta rannsóknartímans var
veiði á urriða lítil og gagnasöfnun því
takmörkuð. Af þeim sökum er einkum
fjallað um bleikju þegar niðurstöðurnar
eru raktar hér, nema þegar rætt er um
samsetningu aflans.
Rannsóknirnar beinast að því að
fylgjast með stærðar- og aldurssam-
setningu silungastofnanna bleikju og
urriða í Mývatni, vexti þeirra, við-
gangi, fæðu, holdafari og afla úr vatn-
inu, ásamt tengslum veiðanna við aðra
mælda þætti, bæði lífræna og ólífræna.
Við mat á afla og nýtingu voru lagðar til
grundvallar veiðiskýrslur frá Veiðifélagi
Mývatns. Frá árinu 1985 hefur Veiði-
málastofnun (nú Hafrannsóknastofnun,
rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og
vatna) séð um samantekt og úrvinnslu
veiðiskýrslna úr Mývatni. Eru þær til
skráðar á tölvutæku formi frá þeim
tíma eftir því sem frumgögnin leyfa.
Yfirleitt er um að ræða daglega veiði,
fjölda fiska skipt í bleikju og urriða,
fjölda neta (sókn) og veiðistað, þar sem
að minnsta kosti er tilgreint hvort veitt
var í Syðri- eða Ytriflóa. Með saman-
burði á sókn og afla má sjá breytingar