Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 9

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 89 bili en jafnan væri verri veiði í kjölfar hitasumra. Rannsóknir á dýraleifum úr borkjörnum sem teknir hafa verið úr botnseti vatnsins hafa einnig sýnt að sveiflur hafa verið í öðrum dýrastofnum en fiski þegar litið er til langs tíma.5,12 Tölur sem Veiðifélag Mývatns hefur safnað um veiðina munu vera lengstu samfelldu veiðitölur úr stöðuvatni sem til eru hér á landi. Veiðitölurnar sýna áberandi topp í veiði um 1920 og hefur sambærilegur veiðitoppur ekki náðst síðan. Hafa skal í huga að á þessum tíma hafa allmiklar breytingar orðið á ástundun og veiðibúnaði. Árið 1905 var stofnað félag um veiði í Mývatni, forveri þess sem síðar varð Veiðifélag Mývatns. Það var stofnað vegna þess að mönnum fannst veiði hafa minnkað og of hart sótt í silunginn. Með aðgerðum veiðifélagsins var reynt að friða hluta riðastöðva, stemma stigu við vargi (fugli) á riðum og síðar að stunda fisk- rækt með hrognaklaki í vatninu.44 Sam- kvæmt veiðiskýrslum var afli á þessum árum mun meiri en hann hefur verið hin síðari ár þótt veiðitæki hafi þá verið frumstæðari. Það bendir sterklega til þess að veiðistofn bleikju hafi verið mun stærri á þeim tíma. Frá árinu 1912 hafa verið í gildi reglur um að ekki séu notuð net með smærri möskvum en 1½ tommu (38 mm) og að lágmarksstærð þeirra fiska sem nást í dorg- og drátt- arveiðum sé ekki undir 12 þumlungum (35 cm). Höfðu dorgveiðimenn oft mál á dorgskrínum sínum til viðmiðunar. Var þetta gert til að koma í veg fyrir dráp á smáfiski og gefa smásilungnum færi á að vaxa og auka með því verðmæti afl- ans. Til frekari verndar gegn ofveiði var mælst til þess að hver jörð friðaði drátt- arveiði á tveimur riðum. Þá var hvatt til þess að ábúendur reyndu að stemma stigu við fjölda afræningja á fiskum. Það voru einkum fuglar sem taldir voru éta silung og/eða hrogn þeirra.44 Á árunum fyrir 1930 var veiði einkum stunduð með fyrirdrætti á riðum á haustin og með því að veiða hitasilung. Svo nefnist silungur sem sækir í kaldara vatn á lindasvæðum og safnast þar saman á sumrin þegar hlýtt er í veðri. Dorgveiði var stunduð gegnum ís á vetrum og var þá dorgað um göt sem höggvin voru með ísabroddi. Eftir að lagnet komu til sögunnar voru þau lögð undir ís með því að þræða spíru (langa spýtu) á milli vaka. Árið 1931 fékk Búnaðarfélag Íslands til landsins mann frá Kanada til að leiðbeina við veiðar undir ís og kom hann með tæki sem nefnist kafari, sérútbúið til ísveiða og höfðu íslenskir landnemar kynnst kafar- anum þar í landi (6. mynd).8 5. mynd. Bleikjupar, hrygna (fremri) og hængur, á riðastöðvum í Mývatni. Neðst á myndinni má sjá hvernig hrygnan hefur fægt (hreinsað) botninn til undirbúnings hrygningar. – Mature female (to the left) and male on the spawning grounds in Lake Mývatn. Ljósm./Photo: Árni Einarsson. Eins og áður segir var fyrirdráttur í net ein af megin-veiðiaðferðunum í Mývatni og dráttarnet dregin að landi. Meðal annars var dregið fyrir undir ís á riðastöðvum á haustin. Þá var dráttar- taugum og dráttarneti komið undir ís um vakir og dráttarnetið dregið í vök sem gerð var í ísinn við land. Árið 1919 voru reistar stíflur í útfalli Mývatns til áveitu á engjar. Hugsanlegt er að þær hafi átt einhvern þátt í þeirri miklu veiði sem kom árin þar á eftir, svo sem vegna útskolunar áburðarefna af landi, en ekki hefur verið hægt að tengja þetta með beinum hætti. Um 1930 var farið að nota lagnet til veiða og voru þau í fyrstu riðin úr ull og bómull. Fyrst eftir að farið var að nota lagnet voru þau 3 möskvar á dýpt en veiðin batnaði þegar þau voru dýpkuð í 4 möskva og kölluðu sumir þau hænganet. Um 1940 komu nælonnet til sögunnar og girnisnet um 1960. Nýju veiðarfærin voru veiðnari en þau sem notuð voru áður. Utanborðsvélar á báta komu til sögunnar um 1950 og við það opnaðist allt vatnið fyrir veiði.41,42
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.