Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 10
Náttúrufræðingurinn
90
Veiðistjórnun
Lengst af var veitt úr Mývatni eins
og fiskaðist, utan lögbundinnar frið-
unar um riðatíma frá 27. september til
áramóta og reglna um lágmarksstærð
afla eftir því sem veiðitæki og -tækni
gáfu tilefni til. Frá árinu 1967 hefur lág-
marksmöskvastærð lagneta verið 43
mm og lágmarksstærð silungs sem má
veiða 34 cm.
Þeir sem land eiga að Mývatni eiga
einir veiðirétt en hér á landi fylgir
veiðiréttur lögbýlum sem eiga land
að vatni. Allir veiðiréttarhafar höfðu
jafnar heimildir til að veiða í almenn-
ingi utan netlaga. Netlög (e.k. landhelgi)
eru svæðið innan 60 faðma (120 m) frá
landi. Svæðið innan netlaga tekur til um
20% af flatarmáli vatnsins. Árið 1978 var
gerð arðskrá fyrir Veiðifélag Mývatns
og var þar ákvarðaður eignarhluti hvers
lögbýlis í almenningi. Síðan hefur veiði-
rétti verið hagað þannig að þeim fjölda
neta sem heimilaður er hverju sinni er
skipt hlutfallslega á milli býla í samræmi
við hlutdeild hvers býlis í arðskrá. Slík
veiðistjórnun miðast við ákveðna tak-
mörkun á sókn og kallast sóknarmark.
Veiðitímabilinu var skipt í vetrarveiði
og sumarveiði. Vetrarveiði stóð lengst af
frá 1. janúar til 15. maí en á síðari árum
hefur veiði yfirleitt ekki hafist fyrr en
1. febrúar. Misjafnt hefur verið á milli
tímabila hvort veitt er í maí en reyndin
hefur verið sú að þá er veiði yfirleitt
lítil og erfitt að stunda hana meðan ísa
leysir. Mögulegt er að veiða í maí frá
þeim jörðum þar sem jarðhita og/eða
lindaráhrifa gætir með landi og þar sem
ísa leysir fyrst. Sumarveiði hófst lengst
af 1. júní og stóð til 27. september. Eftir
að arðskrá var gerð 1978 var veiðiréttur
í almenningi skilgreindur og veiði stýrt
með sóknarmarki þar sem heimilt var
að nota allt að 350 net á nóttu í sumar-
veiðum og 150 í vetrarveiðum. Þessum
tiltekna fjölda neta var deilt út eftir
arðskránni. Reyndin hefur verið sú að
daglegur meðalfjöldi neta hefur sjaldan
farið yfir 50 í vetrarveiði og 100 í sum-
arveiði. Við breytinguna 1978 fækk-
aði netum í Mývatni en talið er að um
1960 hafi þau verið yfir 400 á nóttu að
sumarlagi.5 Í sumarveiði var svæði sem
næst miðjum Syðriflóa, út frá ákveðnum
miðum utan netlaga, friðað fyrir veiði,
bæði til að gefa silungi frið til vaxtar
og til að draga úr hættu á að fugl fest-
ist í netum. Nytjar hafa einnig verið af
fugli í Mývatnssveit, einkum eggjataka
og því leitast við að minnka þann fjölda
fugla sem ferst í netum.30 Árin 1981 og
1982 var viðhöfð veiðistjórnun sam-
kvæmt kvótakerfi þar sem ákveðinn var
sá heildarfjöldi fiska sem veiða mátti á
veiðitíma. Heildarkvóti var ákveðinn á
grundvelli stofnstærðarmats sem gert
var út frá niðurstöðum rannsókna.31
Horfið var frá þessari veiðistjórnun
1983 þar sem hún var erfið í framkvæmd
og eftirliti. Í kjölfarið var snúið var aftur
til fyrra sóknarmarks.
Í veiðiráðgjöf Veiðimálastofnunar til
Veiðifélags Mývatns hefur frá árinu 2004
verið hvatt eindregið til þess að dregið sé
sem allra mest úr sókn vegna þess hve lítill
bleikjustofn vatnsins er orðinn og vegna
þess hve hátt veiðihlutfallið hefur verið á
hverju ári. Fiskistofa, sem er stjórnsýslu-
aðli í veiðimálum, hefur tekið undir þau
sjónarmið við umfjöllun um nýtingaráætl-
anir sem Veiðifélagi Mývatns ber að gera.
Markmið nýtingaráætlana er að tryggja
sjálfbæra nýtingu fiskstofna og bera
veiðifélög og veiðiréttarhafar ábyrgð
á því að svo sé.
6. mynd. Tæki sem nefnist kafari (til hægri). Þetta er planki, um 1,5 m langur, og dregur sig undir
ísinn þegar togað er með bandi í spyrnuna sem er áföst með þræði. Honum er þannig skotið á
milli vaka á ísnum og þráðurinn notaður til að draga net á milli vakanna. Dorg Finnboga Stefáns-
sonar frá Geirastöðum til vinstri. – To the right is a tool, „kafari“, used in net fishery under ice in
Lake Mývatn. It is a plank with a jigging spike attached, operated by a line that drags the tool
and the line under ice. The line is then used to pull gillnets between holes in the ice. To the left
is an ice fishing tackle. Ljósm./Photo: Guðni Guðbergsson.
Frá 2008 hefur verið beitt frekari
takmörkunum á sókn í Mývatni með
styttum veiðitíma en auk þess hefur
réttur hvers veiðiréttarhafa til að ráð-
stafa sínum netadögum verið rýmkaður.
Þannig gat veiðiréttarhafi sem áður
mátti einungis nota ákveðinn fjölda
neta hverja nótt fjölgað netum en á móti
fækkað veiðidögum. Í breytingunum
fólst einnig að veiðiréttarhafi sem
skilar ekki veiðiskýrslu á þar til gerðum
eyðublöðum fyrir ákveðinn tíma fær
ekki úthlutað veiðileyfi fyrir næsta ár.
Árin 2008–2010 var leyfilegur
hámarksfjöldi neta samtímis í vatn-
inu 250 og skiptust þau á milli veiði-
réttarhafa eftir arðskrá Veiðifélagsins.
Veiðitímabilið var samfellt frá 15. febr-
úar til 31. ágúst. Þann fjölda neta sem
veiðiréttarhafi hafði leyfi fyrir mátti að
hámarki leggja 40 sinnum innan þessa
tímabils. Veiðiréttarhafar gátu dreift
veiðinni á fleiri daga með því að nota
færri net í hvert sinn. Friðað svæði var
í vestanverðum Syðriflóa að sumri en
ekki í vetrarveiði. Með breytingunum
var reynt að fella kerfið betur að mis-
jöfnum aðstæðum til veiða og koma til
móts við óskir veiðiréttarhafa til þess
að auðvelda nýtingu veiðiréttarins með
tilliti til annarra aðstæðna veiðimanna,
svo sem annatíma við búskap eða vinnu
frá búi.
Þetta kom þeim ekki síst til góða
sem höfðu fæstar netaheimildir en sam-
kvæmt gildandi arðskrá hefur fjöldi
þeirra neta sem nýta má dag hvern verið
sá sami yfir allt veiðitímabilið. Með
breytingunum mátti nýta fleiri net en
þá í færri daga og var heildarsumma
netaveiðidaga því sú sama og áður. Sam-
kvæmt lögum um lax- og silungsveiði er
öll netaveiði í Mývatni óheimil öðrum
en veiðiréttarhöfum, þ.e. landeigendum
eða ábúendum viðkomandi lögbýlis.
Dorgveiði er opin veiðimönnum utan
veiðifélagsins en er háð leyfi veiðifé-
lagsins og samkvæmt samþykktum þess
skal leyfið vera skriflegt. Samkvæmt
reglunum ber að borga félaginu gjald
fyrir veiðileyfi, og skal það standa undir
útgáfu leyfanna, merkingu netahringja
(bauja) og áætluðum kostnaði við
veiðivörslu.
Árið 2011 var ákveðið á aðalfundi
veiðifélagsins að vetrarveiði skyldi ein-
göngu stunduð á tímabilinu 1. til 14.
mars. Möskvastærð yrði 43–45 mm og