Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 11

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 11
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 91 fjöldi neta mest 87 samtímis í vatninu. Frá 15. mars og út veiðitímabilið, til 31. ágúst, væri öll bleikjuveiði óheimil en veiðiréttarhafar mættu þó veiða innan eigin netlaga með netum með 50 mm möskva. Heildarsókn á þessu tímabili var miðuð við 5.000 lagnir eða veiði með 250 netum í 20 daga. Óheimilt var að veiða silung undir 34 cm. Allt vatnið var friðað á tímabilinu frá 31. ágúst til 1. mars. Frá 15. mars til loka veiðitíma var almenningur utan netlaga friðaður fyrir allri veiði nema dorgveiði, en dorgveiði var veiðiréttarhöfum ótak- mörkuð utan netlaga á veiðitímabil- inu. Leyfi til dorgveiða í almenningi voru í höndum Veiðifélagsins (munnl. uppl. frá forstöðumönnum Veiðifélags Mývatns). Vegna veiðibanns á bleikju var að mestu veiddur urriði innan net- laga árið 2011, nema í fyrri hluta mars- mánaðar. Þessar sömu veiðireglur voru í gildi árin 2012 til 2015 samkvæmt gildandi nýtingaráætlun. Í gildandi veiðireglum frá árinu 2016 kemur fram að á tímabilinu 20. maí til 31. ágúst er veiðiréttarhöfum heimilt að stunda veiðar með lagnetum sem hafa möskvastærðina 50 mm. Heimilt er að hafa allt að 250 net samtímis í vatninu í 10 daga innan veiðitímabilsins. Heildar- fjöldi lagna er því 2.500 (lögn er 1 net í eina nótt). Á þessum tíma er bannað að veiða bleikju í net og óheimilt að veiða silung undir 34 cm. Almenningur í vatn- inu er friðaður fyrir allri veiði nema dorgveiði og veiði því einskorðuð við urriðaveiði innan eigin netlaga (land- helgi) á þeim tíma. Bleikjuveiði er einungis heimil í 21 dag á tímabilinu 10. mars til 31. með allt að 87 netum. Aðra öngulveiði en dorgveiði er veiði- réttarhöfum einungis heimilt að stunda innan eigin netlaga en lítilsháttar spóna- veiði á stöng er stunduð við Mývatn. Í lögum um lax- og silungsveiði (nr. 61/2006) er kveðið á um að nýting skuli vera sjálfbær og að viðkomandi veiði- félag sé ábyrgt fyrir veiðistjórnun, eða veiðiréttarhafi, þar sem veiðifélag er ekki starfandi. Þar sem veiði er stunduð þarf að liggja fyrir nýtingaráætlun sem stuðlar að ábyrgri veiðistjórnun og skal hún hafa staðfestingu Fiskistofu. 7. mynd. Fjöldi veiddra silunga í Mývatni á árunum 1900–2016 samkvæmt veiðiskýrslum Veiðifélags Mývatns (grá lína) og hlaupandi fimm ára keðjumeðaltöl (svört lína). Atburðir í veiðisögu Mývatns eru merktir á inn á myndina. – Annual catch of Arctic charr and brown trout in Lake Mývatn 1900–2016 as recorded by the Mývatn Fisheries Association (grey line) and 5-year running mean for the period 1900–2016 (black line). Major events in the history of the fisheries in Lake Mývatn is shown. VEIÐISKRÁNING OG RANN- SÓKNARVEIÐAR – AÐFERÐIR Veiðimálastofnun (nú Hafrann- sóknastofnun) hefur sent eyðublöð til að skrá veiði til bænda fyrir veiðitíma ár hvert frá 1985. Veiðiskýrslum er safnað í lok hvers veiðitímabils og úr þeim skráðar upplýsingar rafrænt um afla af bleikju og urriða, fjölda neta, veiðidag og veiðistað. Reiknaður er út afli á sóknareiningu eða lögn. Veiði er tekin saman sér fyrir vetur og sumar og fyrir Syðriflóa og Ytriflóa. Skráning afla er mikilvægur þáttur við að greina breytingar á milli tímabila. Að auki geta aflaskrárnar gefið vísbendingar um breytingar á stærð veiðistofns og eru mikilvægur mælikvarði í samanburði við niðurstöður úr rannsóknarveiðum. Í rannsóknarveiðum var silungur (bleikja og urriði) veiddur í röð lagneta með mismunandi möskvastærðum, frá 16,5–50,0 mm, mælt á milli hnúta. Í hverri netaröð voru 9 lagnet (16,5 – 18,5 – 21,5 – 25 – 30 – 35 – 40 – 46 – 50 mm), hvert þeirra 30 m langt. Möskva- samsetning netaraðar var valin þannig að svipað veiðiálag fengist á allar fisk-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.