Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 12
Náttúrufræðingurinn
92
stærðir yfir 17–18 cm.18 Nota má sem
þumalfingursreglu að í möskva mældan
í mm veiðist samsvarandi stór silungur
mældur í cm. Net voru látin liggja yfir
nótt (12 klst) í hvert skipti og voru þrjú
net hnýtt saman. Sem áður segir er
venja að nota sóknareininguna lögn,
sem er 1 net í 1 nótt. Lagt var að kvöldi
og netin dregin að morgni. Miðað er
við fjölda lagna þegar reiknaður er afli
á hverja sóknareiningu. Lengst af hefur
verið veitt á tíu stöðum í Syðriflóa (2.
mynd). Í Ytriflóa hefur jafnan verið
veitt á djúpum og grunnum svæðum og
voru tvær netaraðir lagðar á hvorn stað,
grunn svæði og djúp. Djúp svæði eru
þau sem kísilgúr var dælt af á meðan
námavinnsla var stunduð úr Ytriflóa
en grunn svæði eru utan námasvæðis-
ins. Miðað var við að rannsóknarveiðar
færu fram á sama tíma árlega og að
veiðisvæði væru þau sömu ár hvert.18 Á
hverju rannsóknartímabili var veitt með
alls 90 lögnum í Syðriflóa en 36 lögnum
í Ytriflóa.
Fisklengd (í cm) var mæld sem sýl-
ingarlengd (trjóna á haus í sporðsýl-
ingu). Þyngd var mæld í grömmum
og samband lengdar og þyngdar (log
umbreytt, sem gefur línulegt samband)
var reiknað með aðhvarfsgreiningu þar
sem log þyngd (g) = b x log lengd (cm)
+ a.45,46 Meðalþyngd bleikju miðuð við
lengd var reiknuð út með því að leysa
jöfnu aðhvarfslínunnar fyrir 20, 30, og
40 cm fiska og þyngd hvers árs var borin
saman við meðalþyngd tímabilsins frá
1986–2000 á sama hátt. Með því fæst
samanburður á og frávik frá meðal-
þyngdum bleikjunnar á hverjum tíma.18
Hreistur og kvarnir voru teknar
til aldursgreiningar.47 Aldursgreining
bleikju úr Mývatni er oft vandkvæðum
bundin þar sem algengt er að kvarnir
séu ógagnsæjar. Er þá erfitt eða ómögu-
legt að aldursgreina hluta veiddra
fiska.18 Til bóta getur verið að láta
kvarnir liggja í bleyti í etanóli í 8–10
tíma fyrir aldursgreiningu því að við
það verða árhringir skýrari í flestum
tilfellum. Þar sem vöxtur bleikjunnar er
hraður og árgangar aðgreinast jafnan í
lengdardreifingu er hægt að styðjast við
lengdarflokkun þeirra fiska sem ekki er
hægt að aldursgreina.
Fæða í maga bleikju var metin með
sjónmati og skipt í hundraðshluta eftir
rúmmáli hverrar fæðugerðar.48 Slíku
sjónmati fylgir nokkur óvissa (1–5%) en
ekki er talið líklegt að sú óvissa hafi áhrif
á heildarmynd af samsetningu fæð-
unnar. Magafylling var metin og skipt í
5 stig þar sem 0 er tómur magi en 5 troð-
inn magi. Hlutfallsleg samsetning fæðu-
gerða var metin sem hundraðshlutfall
hverrar fæðugerðar sinnum fyllingar-
stig deilt með summu fyllingarstiga.18,49
Algengast er að fiskar sem eru það stórir
að veiðast í lagnet éti stór fæðudýr og er
því hægt að fá skýra mynd af fæðusam-
setningu með þessum hætti. Skekkjan er
innan við 5% og oftast er ein fæðutegund
ríkjandi á hverjum tíma.
Á íslensku er orðið stofn notað bæði
um veiðistofn (e. stock) og stofnein-
ingu (e. population) sem getur valdið
misskilningi. Í því samhengi sem hér
um ræðir er alltaf átt við veiðistofn. Í
staðbundnum vatnafiskstofnum má
telja víst að vöxtur einstaklinga og
nýliðun í veiðistofni að vetri undir ís
sé afar lítill. Sé veitt úr stofni á þeim
tíma minnkar hann og ef veiði á hverja
sóknareiningu fellur með tíma má
reikna út stærð veiðistofns í upphafi
veiða út frá tengslum afla á sóknarein-
ingu og uppsafnaðs afla með aðferð
sem kennd er við Leslie.45 Þar er afli á
lögn á y-ás, skipt í veiðivikur eða daga
innan veiðitímans, borinn saman við
uppsafnaða veiði á x-ás. Ef um fall er að
ræða í afla á sóknareiningu eftir því sem
líður á veiðitímabilið og marktæk tengsl
koma fram á milli þessara þátta má
reikna stofnstærð í upphafi veiðitíma.
Sá fjöldi sem var í stofni í upphafi veiði-
tíma er þar sem aðhvarfslína sambands-
ins milli afla á sóknareiningu hverrar
viku og uppsafnaðrar veiði til þess
8. mynd. Skráð urriðaveiði í Mývatni á árunum 1970–2016 samkvæmt veiðiskýrslum. Urriðaveiði í Mývatni 1981 og 1982 var ekki
skráð sérstaklega. – Annual catch of brown trout in Lake Mývatn 1970–2016 as recorded by the Mývatn Fisheries Association. The
average catch is given. No recordings are available for 1981–1982.