Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 12

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 12
Náttúrufræðingurinn 92 stærðir yfir 17–18 cm.18 Nota má sem þumalfingursreglu að í möskva mældan í mm veiðist samsvarandi stór silungur mældur í cm. Net voru látin liggja yfir nótt (12 klst) í hvert skipti og voru þrjú net hnýtt saman. Sem áður segir er venja að nota sóknareininguna lögn, sem er 1 net í 1 nótt. Lagt var að kvöldi og netin dregin að morgni. Miðað er við fjölda lagna þegar reiknaður er afli á hverja sóknareiningu. Lengst af hefur verið veitt á tíu stöðum í Syðriflóa (2. mynd). Í Ytriflóa hefur jafnan verið veitt á djúpum og grunnum svæðum og voru tvær netaraðir lagðar á hvorn stað, grunn svæði og djúp. Djúp svæði eru þau sem kísilgúr var dælt af á meðan námavinnsla var stunduð úr Ytriflóa en grunn svæði eru utan námasvæðis- ins. Miðað var við að rannsóknarveiðar færu fram á sama tíma árlega og að veiðisvæði væru þau sömu ár hvert.18 Á hverju rannsóknartímabili var veitt með alls 90 lögnum í Syðriflóa en 36 lögnum í Ytriflóa. Fisklengd (í cm) var mæld sem sýl- ingarlengd (trjóna á haus í sporðsýl- ingu). Þyngd var mæld í grömmum og samband lengdar og þyngdar (log umbreytt, sem gefur línulegt samband) var reiknað með aðhvarfsgreiningu þar sem log þyngd (g) = b x log lengd (cm) + a.45,46 Meðalþyngd bleikju miðuð við lengd var reiknuð út með því að leysa jöfnu aðhvarfslínunnar fyrir 20, 30, og 40 cm fiska og þyngd hvers árs var borin saman við meðalþyngd tímabilsins frá 1986–2000 á sama hátt. Með því fæst samanburður á og frávik frá meðal- þyngdum bleikjunnar á hverjum tíma.18 Hreistur og kvarnir voru teknar til aldursgreiningar.47 Aldursgreining bleikju úr Mývatni er oft vandkvæðum bundin þar sem algengt er að kvarnir séu ógagnsæjar. Er þá erfitt eða ómögu- legt að aldursgreina hluta veiddra fiska.18 Til bóta getur verið að láta kvarnir liggja í bleyti í etanóli í 8–10 tíma fyrir aldursgreiningu því að við það verða árhringir skýrari í flestum tilfellum. Þar sem vöxtur bleikjunnar er hraður og árgangar aðgreinast jafnan í lengdardreifingu er hægt að styðjast við lengdarflokkun þeirra fiska sem ekki er hægt að aldursgreina. Fæða í maga bleikju var metin með sjónmati og skipt í hundraðshluta eftir rúmmáli hverrar fæðugerðar.48 Slíku sjónmati fylgir nokkur óvissa (1–5%) en ekki er talið líklegt að sú óvissa hafi áhrif á heildarmynd af samsetningu fæð- unnar. Magafylling var metin og skipt í 5 stig þar sem 0 er tómur magi en 5 troð- inn magi. Hlutfallsleg samsetning fæðu- gerða var metin sem hundraðshlutfall hverrar fæðugerðar sinnum fyllingar- stig deilt með summu fyllingarstiga.18,49 Algengast er að fiskar sem eru það stórir að veiðast í lagnet éti stór fæðudýr og er því hægt að fá skýra mynd af fæðusam- setningu með þessum hætti. Skekkjan er innan við 5% og oftast er ein fæðutegund ríkjandi á hverjum tíma. Á íslensku er orðið stofn notað bæði um veiðistofn (e. stock) og stofnein- ingu (e. population) sem getur valdið misskilningi. Í því samhengi sem hér um ræðir er alltaf átt við veiðistofn. Í staðbundnum vatnafiskstofnum má telja víst að vöxtur einstaklinga og nýliðun í veiðistofni að vetri undir ís sé afar lítill. Sé veitt úr stofni á þeim tíma minnkar hann og ef veiði á hverja sóknareiningu fellur með tíma má reikna út stærð veiðistofns í upphafi veiða út frá tengslum afla á sóknarein- ingu og uppsafnaðs afla með aðferð sem kennd er við Leslie.45 Þar er afli á lögn á y-ás, skipt í veiðivikur eða daga innan veiðitímans, borinn saman við uppsafnaða veiði á x-ás. Ef um fall er að ræða í afla á sóknareiningu eftir því sem líður á veiðitímabilið og marktæk tengsl koma fram á milli þessara þátta má reikna stofnstærð í upphafi veiðitíma. Sá fjöldi sem var í stofni í upphafi veiði- tíma er þar sem aðhvarfslína sambands- ins milli afla á sóknareiningu hverrar viku og uppsafnaðrar veiði til þess 8. mynd. Skráð urriðaveiði í Mývatni á árunum 1970–2016 samkvæmt veiðiskýrslum. Urriðaveiði í Mývatni 1981 og 1982 var ekki skráð sérstaklega. – Annual catch of brown trout in Lake Mývatn 1970–2016 as recorded by the Mývatn Fisheries Association. The average catch is given. No recordings are available for 1981–1982.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.