Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 16

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 16
Náttúrufræðingurinn 96 UMRÆÐUR Veiðiskráning úr Mývatni nær yfir 117 ára tímabil. Upphaflegt mark- mið Veiðifélags Mývatns með skrán- ingunni; að stemma stigu við minnk- andi veiði í vatninu, hefur ekki gengið eftir. Á þessum tíma hafa orðið miklar breytingar í búskaparháttum og veiði- tækni. Veiðin hefur sveiflast á milli tímabila fram á síðustu ár að bleikju- stofninn í Mývatni hefur verið mjög lítill. Rannsóknir á tengslum bleikju- stofnstærðar og stofna fæðudýra með greiningu dýraleifa úr setkjörnum hafa sýnt að hliðstæðar sveiflur hafa verið í stofnstærð fæðudýra, svo sem kornátu.13 Þá er ljóst að tengsl eru á milli nýliðunar í bleikjustofni og fjölda andarunga sem komast upp á Mývatni.5,18 Af veiðitölum er ljóst að kaflaskil urðu í veiði eftir 1970 og sveiflaðist veiðin síðan um sílækkandi meðaltal fram til 1997. Eftir það hefur veiði verið afar lítil. Í kjölfarið voru settar miklar veiðitakmarkanir og var sett bann við bleikjuveiði 2011 og hefur bleikja því einungis verið meðafli í urriðaveiði síðan, nema í vetrarveiði í mars. Sterkar vísbendingar eru um að 11. mynd. Bleikjuafli á lögn (fjöldi fiska í net) í rannsóknarveiðum í Syðri- og Ytri- flóa 1986–2016. – CPUE of Arctic charr in Lake Mývatn South and North basin (1986–2016). 12. mynd. Urriðaafli á lögn (fjöldi fiska í net) í rannsóknarveiðum í Syðri- og Ytri- flóa Mývatns 1986–2016. – CPUE of brown trout in Mývatn South and North basin (1986–2016). um ofveiði hafi verið að ræða og að ekki hafi verið brugðist nógu snemma við til að draga úr veiðisókn. Af þessu er vert að draga meðal annars þann lærdóm að þar sem ábyrgð á stjórnun veiða er á hendi veiðifélags getur reynst erfitt að grípa til takmarkana ef ekki er eining um það innan veiðifélagsins. Af þessu má jafnframt ráða að heimildir stjórn- valda til inngripa í veiðistjórnun þyrftu að vera skýrari. Þegar litið er til lengdardreifingar afla í rannsóknarveiðum kemur í ljós að hrun verður í stofnum sumarið 1988. Fiskar, einkum smáfiskar, sem höfðu komið fram í fyrri veiðum hurfu.18 Það ár var holdafar bleikjunnar lélegt og fæða hennar að mestu hornsíli. Þessir þættir breytast því allir á sama tíma. Í kjölfar hrunsins 1988 tók það nokkur ár fyrir stofninn að ná sér á strik og var það var aðallega smærri bleikja sem hvarf úr stofninum. Hrun varð aftur í bleikjustofninum 1997. Á sama tíma versnaði holdafar bleikjunnar veru- lega og hornsíli varð stór hluti af fæðu fiskanna. Niðurstöðurnar benda til að fæðuskortur hafi aðallega bitnað á smærri einstaklingunum en þeir fiskar lifað af sem gátu nýtt sér hornsíli.18 Miklar sveiflur hafa jafnframt komið fram í stofnum smádýra í Mývatni,13 sem margir eru eða geta verið fæða fyrir silung.5 Sveiflur hafa jafnframt komið fram í stofnstærð hornsíla.28 Ekki hafa komið fram greinileg tengsl á milli stofnstærðar hornsíla og annarra fæðu- tegunda, né á milli hornsílis og bleikju, miðað við þau gögn sem fyrir liggja og greind hafa verið til þessa. Hins vegar eru tengsl á milli stofnstærðar smá- silungs og kornátu og einnig rykmýs (lirfa og púpa í mögum), og ennfremur milli fjölda smábleikju og ungafjölda hrafnsandar (Melanitta nigra) og skúf- andar (Aythya fuligula).18 Allar líkur eru því til að afkoma bleikjunnar hafi að mestu verið háð fæðuframboði í Mývatni á árunum frá 1986 til 2004, fremur en að hrygningarstofninn hafi verið takmarkaður. Það kom talsvert á óvart þegar í ljós kom að silungur hafði í raun drepist úr hungri sumrin 1988 og 1997, ekki síst í ljósi þess hve frjósamt Mývatn er. Raunar er með ólíkindum að fæðuframboð verði svo lítið fyrir bleikj- una að hún drepist yfir sumartímann. Sýnt hefur verið fram á að sveiflur í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.