Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 23
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
103
Ritrýnd grein / Peer reviewed
Virkjun áfangastaða
– Samgöngubætur
og virkjunarframkvæmdir
Edward H. Huijbens og Anna Dóra Sæþórsdóttir
Miklar breytingar verða á eðli áfangastaða ferðamanna í náttúru Íslands
með bættu aðgengi að þeim í kjölfar virkjunarframkvæmda. Virkjunum, bæði
jarðvarma- og vatnsafls virkjunum, fylgja jafnan vegaframkvæmdir og við þær
stórbatnar oft aðgengi að áður óaðgengilegum náttúru svæðum. Þessari stað-
reynd er gjarnan haldið á lofti sem jákvæðum áhrifum virkjunar framkvæmda
á ferðamennsku og útivist. Ýmsar rannsóknir hafa hins vegar leitt í ljós að
áfangastaðir sem verða til eða breytast í kjölfar slíkra framkvæmda höfða til
ákveðinna hópa ferðamanna en fæla aðra frá. Í þessari grein er kafað nánar í
hvaða breytingar hér er um að ræða og áhrif þeirra á áfangastaði ferðamanna
þar sem virkjanir hafa verið reistar. Leitað er fanga í kenningum um svonefnda
vöruvæðingu náttúru og samfélagsgæða. Í greininni er rýnt í fyrirliggjandi
rannsóknir á áhrifum fyrirhugaðra virkjana á ferðamennsku á Hengilssvæð-
inu og í Ófeigs firði á Ströndum, og nokkurra virkjunarhugmynda sem voru til
skoðunar í 3. áfanga ramma áætlunar. Færð eru rök að því að hagsmunum
ferðaþjónustunnar sé best borgið með því að greinin stýri því sjálf hvernig að-
gengi að áfangastöðum ferðamanna skuli vera háttað. Að öðrum kosti er hætt
við að náttúra landsins missi sérstöðu sína og þá sér í lagi víðernin. Á sama
tíma verður ferða þjónustan þó að gangast við áhrifum sínum á markaðs- og
vöruvæðingu náttúru og samfélagsgæða, þar með talið mótsagnakenndri
stöðu gagnvart vernd og nýtingu víðerna.
Náttúrufræðingurinn 88 (3–4), bls. 103–114, 2018
INNGANGUR
Aðkomuvegir að stíflum og lónum
á Ófeigsfjarðarheiði munu opna leið
fyrir ferðafólk upp á heiðina og jafn-
framt gera þau mannvirki sýnileg.1
Upphafsorðin eru úr matsskýrslu
Verkíss vegna Hvalárvirkjunar í Ófeigs-
firði (1. mynd) og liggja þau til grund-
vallar þeirri niðurstöðu skýrsluhöfunda
að áhrif virkjunarinnar á ferðamennsku
og útivist séu allt frá því að vera nokkuð
jákvæð vegna bætts aðgengis með vega-
gerð yfir í að vera talsvert neikvæð fyrir
þann hóp ferðamanna sem vill sem
minnst sjá af mannvirkjum og öðrum
ferðamönnum á ferðum sínum. Um
þetta hverfist hefðbundin umræða hér
á landi um virkjanir og áhrif þeirra á
ferðamennsku og útivist. Þ.e.a.s.: Með
bættu aðgengi opnast svæði fyrir nýja
markhópa og þar skapast ný tækifæri
fyrir ferðaþjónustuna. Þetta bætta
aðgengi þýðir aftur á móti að aðrir
hópar ferða- og útivistarfólks láta sig
hverfa og þar með geta (önnur) ferða-
þjónustufyrirtæki misst sinn markhóp.
Í rannsóknum um áhrif virkjun-
arframkvæmda á ferðamenn hér á
landi hefur jafnan verið beitt viðhorfs-
kvarða (e. Purist Scale) og útivistarrófi
(e. Recreation Opportunity Spectrum –
ROS). Viðhorfskvarðinn byggist á þeirri
hugmynd að ferðamönnum megi skipa
í hópa þjónustusinna, náttúrusinna eða
almennra ferðamanna með hliðsjón af
viðhorfum þeirra til umhverfis og eigin-
leika ferðamannastaða.2 Fyrstnefndi
hópurinn hefur mest þol gagnvart fram-
kvæmdum og breytingum á náttúrunni
en náttúrusinnar minnst. Þessi skipting
ferðamanna hefur einnig verið notuð
í rannsóknum á þolmörkum ferða-
mennsku, en hugmyndin um þolmörk
hefur náð hvað best eyrum stjórn-
valda og hagsmunaaðila hér á landi
þegar kemur að stefnu og aðgerðum í
þágu ferðamála.3
Þolmörk eru skilgreind sem sá fjöldi
gesta sem getur komið á svæði áður en
neikvæðra áhrifa á náttúrulegt umhverfi
eða upplifun manna fer að gæta.4 Þau
eru metin á grunni fjögurra þátta:
i) innviða, ii) viðhorfs ferðamanna,
iii) viðhorfs heimamanna til ferða-
mennsku, og iv) náttúrulegs umhverfis.
Með hugtakinu er leitast við að finna þá
þætti sem hafa þarf í huga við skipulag
og stefnumótun staða með sjálfbæra
þróun að leiðarljósi og móta æskileg
markmið við þróun áfangastaðar hverju
sinni.5 Glögglega má sjá að þegar þol-
mörk eru byggð á viðhorfskvarða verða
þau aldrei tiltekinn fasti eða ítala. Ævin-
lega verða til ferðamenn sem vilja heim-
sækja ákveðna staði, jafnvel þótt þeir
séu rústir einar eftir athafnir manna.6,7
Við notkun útivistarrófsins er land-
svæðum skipt í nokkra flokka eftir því