Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 40

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 40
Náttúrufræðingurinn 120 8. mynd. Um hálfs metra langur bútur úr kjarna úr kalkþörungaseti. Kjarninn hefur verið klofinn að endilöngu og sýnir dæmi- gert vestfirskt kalkþörungaset. Í setinu eru ljós kalkþörungabrot í gráum grunnmassa sem er að meginhluta fínefni af landrænum uppruna. Kjarninn var tekinn austan Æðeyjar í Ísafjarðardjúpi. – A half-metre core of maërl. The core has been split lengthwise and shows maërl typical of NW- Iceland. The sediment consists of Litho- thamnion fragments in a grey groundmass of mainly terrigenous origin. Core from Æðey in Ísafjarðardjúp. finnast auk kalkþörungabrota skeljar og skeljabrot af ýmsu tagi. Á 8. mynd er sýndur bútur úr kjarna úr kalkþör- ungaseti. Kjarninn hefur verið klofinn að endilöngu og opnaður. Í kjarnanum er dæmigert vestfirskt kalkþörungaset, þ.e. blanda af kalkþörungabrotum og gráum grunnmassa. Kalkþörungasetið í Arnarfirði inni- heldur umtalsvert magn af fínefnum, silti og leir, en nákvæm kornastærðar- greining fór ekki fram. Setið var aðal- lega gert úr grófum kalkþörungabrotum annars vegar og hins vegar fínna efni, einkum af landrænum toga, og var þess vegna látið nægja að skipta því í tvo stærðarhluta með 1 mm sigti. Með þessu fékkst gróft mat á hlutfalli kalks í setinu. Einnig fékkst mæling á magni „fínefnis“ í setinu, þ.e. samanlagðs hluta sands, silts og leirs. Þessi hluti setsins skiptir máli því að magn fínefnisins var látið hafa áhrif á val á svæðum þar sem efnistaka var leyfð. ÍSAFJARÐARDJÚP, JÖKULFIRÐIR Eftir nokkurra ára starfsemi á Bíldu- dal fékk Kalkþörungafélagið áhuga á að afla frekari upplýsinga um kalkþörunga- set á Vestfjörðum. Því var efnt til leitar á öllum fjörðunum sumrin 2010, 2011 og 2012. Sumarið 2011 var myndbands- tökuvél dregin yfir botni í því skyni að kortleggja útbreiðslu kalkþörunga á botninum. Farið var um alla firðina frá Patreksfirði að Hornströndum, nema í Arnarfjörð og Súgandafjörð. Sumrin 2010 og 2012 voru mældar setþykktir í fjörðunum. Niðurstaðan af þessari yfirlitsrann- sókn var að kalkþörunga væri ekki að finna í merkjanlegum mæli í fjörðunum nema í Ísafjarðardjúpi að meðtöldum Jökulfjörðum. Þar reyndust vera mjög víðáttumiklir sethjallar á grunnsævi. Til að staðfesta að um kalkþörungaset væri að ræða voru borkjarnar teknir úr setlögum víðs vegar í Djúpinu og í Jökulfjörðum. Hér á eftir verður lýst dreifingu kalkþörungasetsins. Einnig verður minnst á gerð setsins eins og hún birtist í borkjörnunum. Til hægðar- auka verður svæðinu skipt niður í smærri einingar. Jökulfirðir Í norðanverðum Jökulfjörðum eru víða kalkþörungar á grynningum með- fram landi. Næstum samfellt lag af kalkþörungaseti liggur meðfram landi austan Hesteyrarfjarðar, inn í Veiði- leysufjörð og út með honum að austan (9. mynd). Þykkt setsins fer á nokkrum stöðum yfir 6 metra. Á þessu svæði mældist rúmmál setlaganna tæplega 7,6 milljónir rúmmetra. Meðfram ströndinni milli Veiði- leysufjarðar og Lónafjarðar er nokkuð samfellt lag af kalkþörungaseti en er víðast svo þunnt að 2 metra jafnþykkt- arlínan nær ekki til þess (10. mynd). Meðfram suðurströndinni eru hins vegar samfelld setlög sem ná langt inn í Hrafnfjörð. Þessi massi mælist 32,8 milljónir rúmmetra. Samkvæmt framansögðu mælast samanlagt um 40,4 milljónir rúmmetra af kalkþörungaseti í Jökulfjörðum. Fróðlegt er að rifja upp til samanburðar að í Arnarfirði mældust rúmmetrarnir 20,5 milljónir. Borkjarnar voru teknir í Hrafnfirði og vestan hans, en ekki rann- sakaðir þar sem heppilegra var talið að beina athyglinni að svæðum sem nær væru þéttbýli og höfnum. Æðey Við Æðey, sérstaklega austan hennar, eru miklar breiður af kalkþörungaseti (11. mynd). Þykkt setsins fer yfir 8 metra þar sem mest er. Austan eyjarinnar mælast 32,4 milljónir rúmmetra af kalkþörunga- seti, en vestan hennar rúmlega 7 millj- ónir. Hluti skýringar á þessum mun er að setlögin austan Æðeyjar hafa lagst ofan á víðáttumikið og slétt yfirborð klappar. Yfirborð klapparinnar vestan eyjarinnar er hins vegar mjög óslétt með djúpum lægðum, og því minna hlutfall botnsins hulið kalkþörungaseti. Borkjarnar teknir austan eyjarinnar sýndu að í setinu er til- tölulega hátt hlutfall grófs efnis (>1 mm), áþekkt setinu í Arnarfirði. Seyðisfjörður, Hest- fjörður, Skötufjörður Sunnan Djúps finnst kalkþörunga- set í Seyðisfirði, Hestfirði og Skötufirði (12. mynd). Í Seyðisfirði er þetta á tak- mörkuðu svæði í norðaustanverðum firðinum, og í Skötufirði finnst setið á mjórri ræmu meðfram norðaustur- strönd fjarðarins. Í Hestfirði er hins vegar töluvert svæði hulið kalkþör- ungaseti. Norðurhluti fjarðarins er til- tölulega grunnur og hafa kalkþörungar náð fótfestu á þröskuldi í fjarðarmynn- inu (sjá 2. mynd). Rúmmálstölur eru: Seyðisfjörður: 550 þúsund rúmmetrar, Hestfjörður: 7,2 milljónir rúmmetra, og Skötufjörður: 3,8 milljónir. Borkjarnar úr Hestfirði mældust með hátt hlutfall fínefna (<1 mm). Kaldalón, Mjóifjörður, Brestsker og Vatnsfjörður Innar í Djúpinu eru víðáttumiklar kalkþörungabreiður (13. mynd). Á grynningum utan Kaldalóns eru til
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.