Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 41
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
121
9. mynd. Þykkt kalkþörungasets í Hesteyrarfirði og Veiðileysufirði í Jökulfjörðum. Setið finnst á
afmörkuðum blettum í Hesteyrarfirði en er nokkuð samfellt í Veiðileysufirði. – Distribution and
thickness of maërl in northern Jökulfirðir.
10. mynd. Setþykkt í sunnan- og austanverðum Jökulfjörðum. Víðáttumiklar breiður af kalkþör-
ungaseti eru í Hrafnfirði og út með landi á sunnanverðu svæðinu. – Distribution and thickness of
maërl in southern and eastern Jökulfirðir. Extensive deposits in and to the west of Hrafnfjörður.
dæmis setlög sem ná margra metra
þykkt. Borkjarnar á litlum hluta af þessu
svæði innihéldu hátt hlutfall grófra
efna, en víðast hvar voru fínefni ráð-
andi. Heildarrúmmál setsins mældist
tæplega 18 milljónir rúmmetra.
Meðfram vesturströnd Mjóafjarðar,
allt frá brú út undir Ögurhólma, er kalk-
þörungaset að finna. Í mynni fjarðarins
eru víðáttumiklar grynningar með kalk-
þörungaseti. Rúmmál þessa sets er tæp-
lega 26 milljónir rúmmetra. Setið á nyrðri
helmingi þessa svæðis er tiltölulega gróft.
Með austurströnd Mjóafjarðar er
löng setlinsa, 2,4 milljónir rúmmetra.
Samsetning efnisins er ekki þekkt þar
sem ekki var borað í þetta set.
Úti í miðju Djúpi eru grynningar
umhverfis Brestsker. Á þessu grunni
og umhverfis það eru kalkþörungaset-
lög sem ná allt að 6 metra þykkt. Magn
þessa sets er um 4,7 milljónir rúmmetra.
Á grynningunum norðan Vatns-
fjarðarness og inn með nesinu að
austan, allt að Sveinhúsanesi, eru tölu-
verð lög af kalkþörungaseti. Setþykkt
á þessu svæði fer víða yfir 6 metra.
Borkjarnar voru teknir úr þessu seti á
vegum Groupe Roullier og rannsakaðir
erlendis. Skoðun kjarnanna leiddi í ljós
að um er að ræða kalkþörungaset.
Reykjanes, Borgarey, Ísafjörður
Setlögin við Vatnsfjörð halda áfram
inn með landi, fyrir Reykjarfjörð og
inn með Reykjanesi (14. mynd). Þau ná
nokkurra metra þykkt. Samanlagt rúm-
mál þessara setlaga, laganna norður
með Vatnsfjarðarnesi og laganna
norðan Vatnsfjarðarness er tæplega 9,8
milljónir rúmmetra.
Í Ísafirði eru setlög báðum megin
fjarðar en vegna aðdýpis eru þetta ekki
víðáttumiklar breiður.
Enn er ógetið kalkþörungasets á
grynningum við Borgarey. Umhverfis
eyna, ekki síst á grynningum norðan og
sunnan við hana, eru umtalsverð setlög
sem ná töluverðri þykkt, yfir 10 metrum
þar sem mest er. Rúmmál þessa sets eru
tæplega 9,7 milljónir rúmmetra.
Samantekt um Ísafjarðardjúp
Af framansögðu er ljóst að í Ísa-
fjarðardjúpi og Jökulfjörðum er gríðar-
legt magn kalkþörungasets. Mælingar
á vegum Kalkþörungafélagsins sum-
arið 2012 leiddu í ljós um 140 milljón
rúmmetra af seti. Þetta var ónákvæm
tala og í henni felast setlög sem ekki
eru áhugaverð til hagnýtingar vegna
fínefna. Í þessari tölu fólust hins vegar
ekki setlögin við Vatnsfjörð, Reykjar-
fjörð og Borgarey. Óhætt mun því að
ætla að í Djúpi og Jökulfjörðum sé um
sjö sinnum meira af kalkþörungaseti en
í Arnarfirði.
HÚNAFLÓI
Á grundvelli upplýsinga sem fram
komu í grein Kjartans Thors og Guð-
rúnar Helgadóttur 198010 óskaði
Íslenska kalkþörungafélagið eftir því
í samráði við sveitarstjórn Húnaþings
vestra að hugsanleg kalkþörungasvæði
í Húnaflóa yrðu könnuð. Fyrsti áfangi
þess verkefnis voru setþykktarmælingar