Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 47
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
127
2. mynd. Smásjáin Heimdal, samanbrotin í kassa. – The microscope Heimdal,
folded in its store box. Ljósm./Photo: Timo Mappes, www.musoptin.com.
lögðu 8. september af stað með Esjunni
frá Reykjavík til Austfjarða. Ferðinni var
heitið til Egilsstaða og voru þeir þar að
rannsóknum við Lagarfljót dagana 16. til
22. september 1925.
Alþingi veitti með þingsályktun
3.000 krónur til áframhaldandi rann-
sókna árið 1926. Var Norðurland, þar á
meðal Mývatn, á áætlun það ár. Hinn
26. maí barst Búnaðarfélagi Íslands hins
vegar símskeyti þar sem Reinsch biður
um frest í eitt ár vegna veikinda.
Búnaðarþing (1927) gerði ráðstaf-
anir til að fjárveitingin flyttist milli ára.
Þingið fór einnig fram á að stjórn Bún-
aðarfélagsins kæmi á samvinnu á milli
þeirra Pálma Hannessonar (1898–1956),
kennara á Akureyri og síðar rektors
Menntaskólans í Reykjavík. Var ætlunin
að Pálmi héldi rannsóknunum áfram
síðar og heimilaði þingið nauðsynlega
fjárveitingu til þess.
Ekkert varð þó af frekari ferðum
Reinsch til Íslands og lést hann af
völdum krabbameins hinn 6. júlí 1927
á 32. aldursári.
Tvær skýrslur um niðurstöður rann-
sóknanna á árinu 1925 voru þýddar
og birtar í Búnaðarriti 1926: Um rann-
sóknir á Lagarfljóti,1 og Rannsóknir
á veiðivötnum og ám II,2 sem fjallaði
um klakhús.
Á þessum árum birtust aðrar greinar
eftir Reinsch í þýskum tímaritum, meðal
annars grein um húsdýr á Íslandi,3 um
feltsmásjána Heimdal4 og um vatna-
líffræðirannsóknir hans á Íslandi.5 Sú
grein fjallar um aðdraganda og búnað
rannsóknanna en ekki um niðurstöður
þeirra. Reinsch lifði ekki að sjá tvær síð-
ari greinarnar birtar.
Greinargerð með tillögum allsherj-
arnefndar Búnaðarfélags Íslands 1927
um laxaklak og rannsókn veiðivatna var
birt í Búnaðarriti sama ár. Þar kemur
fram að enn séu óprentaðar skýrslur
eftir Reinsch hjá Búnaðarfélaginu um
rannsóknir í Þingvallavatni, Laugarvatni
og Apavatni. Höfundur þessarar saman-
tektar fór yfir kassa með gögnum Bún-
aðarfélagsins fyrir árin 1925 til 1928 hjá
Þjóðskjalasafni Íslands en fann ekki
þessar skýrslur.
Í gögnum Búnaðarfélags Íslands
fyrir 1928 hjá Þjóðskjalasafninu er afrit
af bréfi Búnaðarfélagsins til Pálma
Hannessonar, dags. 22. febrúar 1928,
þar sem fram kemur að Reinsch hafi
ánafnað Búnaðarfélagi Íslands áhöld
sín og að atvinnumálaráðuneytið hafi
falið Sveini Björnssyni (1881–1952)
sendiherra í Kaupmannahöfn, síðar
forseta Íslands, að taka á móti þeim og
senda þau hingað heim. Höfundur hefur
ekki reynt að fræðast frekar um afdrif
þessara tækja.
Pálmi Hannesson var ráðunautur
Búnaðarfélags Íslands um veiðimál frá
1927 þar til hann varð rektor mennta-
skólans í Reykjavík árið 1929. Á ráðu-
nautsárum sínum samdi hann meðal
annars drög að frumvarpi um fiski-