Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 52

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 52
Náttúrufræðingurinn 132 reglulega yfir tímabilið.18 Auk grein- inga á sýnunum fyrir rannsóknina sem hér greinir frá voru þau notuð í öðrum rannsóknum til að rannsaka hvort ljóstillífun í Mývatni hefur áhrif á sam- sætuhlutföll kísils (Si), liþíums (Li) og mólýbdens (Mo).19–21 Ísalög hafa áhrif á hreyfingar vatnsins, súrefnisástand þess og gegnsæi, og þar með á möguleika til ljóstillífunar í vatninu. Vorið 2000 var ísaleysingum lokið á Mývatni þann 9. maí 2000 en ísinn var farinn að brotna mikið upp um miðjan apríl (Árni Einarsson, munnl. uppl.). Sumarið 2000 var vatnið tært og alltaf sást til botns þegar athuganir voru gerðar. Lítið var um þörungablóma af völdum blágrænu- bakteríutegundarinnar Anabaena flos- aquae, eða leirlosi, eins og Mývetningar kalla slíkan blóma. Hinn 7. ágúst 2000 var leirlos þó hafið í Ytriflóa og 30. ágúst 2000 var A. flos-aquae í vatninu bæði í Ytri- og Syðriflóa en ekki í miklum þéttleika (Árni Einarsson, munnl. uppl.). Sumarið 2000 var þéttleiki mýflugna hins vegar mjög mikill.17 Staðir sýnatökustöðva þar sem rann- sókn á innri efnahringrás Mývatns fór fram eru sýndir á 2. mynd (stöðvar 95, B2 og HO).15–17 Stöðin við Héðinshöfða (HO) var næst innstreymi lindavatnsins, þá B2 á Strandbolum en stöð 95 í Nes- landavík var fjærst innstreymi linda- vatnsins. Hluti af niðurstöðum úr þeirri rannsókn, sem ekki hafa birst áður, eru kynntar í þessari grein. AÐFERÐIR Sýnum var safnað af brú yfir Laxá ofan Helluvaðs og af bakka úr Geira- staðaskurði ofan við stíflu (2. mynd). Loftmyndin (1. mynd) sem tekin var ofan við sýnatökustaðinn í Laxá sýnir vel útfall Mývatns í Geirastaðaskurði sem er vinstra megin á myndinni, rétt ofan við miðju. Tólf sýnum var safnað í Laxá og tíu sýnum í Geirastaðaskurði á tímabilinu. Sýnum úr Laxá var safnað nálægt rennslisgæfum vatnshæðarmæli við Helluvað sem gerir kleift að reikna efnaframburð um farveginn. Ekki var mögulegt að mæla rennsli úr Geira- staðaskurði á tímabilinu. Styrkur líf- ræns og ólífræns svifaurs var greindur, sem og styrkur leystra aðal- og snefil- efna, þar með talið næringarefna. Sam- sætuhlutföll brennisteins, vetnis og súr- efnis voru einnig greind. Öll vatnssýnin voru síuð við söfnun með 0,2 µm Cellolose Acetate-síum og Sartorius teflon- síuhaldara. Var vatninu dælt í gegnum síubúnaðinn með peri- staltik-dælu. Basavirkni (e. alkalinity) og pH-gildi vatnsins voru mæld daginn eftir söfnun með rafskauti og títrun. Styrkur og samsætuhlutföll leystra efna voru greind á Jarðvísindastofnun Háskólans, hjá ALS Scandinavia í Sví- þjóð, hjá Umeå Marine Science Center í Svíþjóð og í Stokkhólmsháskóla. Styrkur aðalefna var greindur með jónaskilju og spanglóðartæki (ICP-AES) og styrkur snefilefna á spanglóðartæki með massa- greini (ICP-MS). Styrkur næringar- efna var greindur með sjálfvirkum lit- rófsmæli á Jarðvísindastofnun Háskól- ans. Uppleyst lífrænt kolefni og kolefni og köfnunarefni í ögnum voru greind með frumefnagreini. Samsætuhlutföll brennisteins, súrefnis og vetnis voru greind með massagreinum. Magn- greining svifaurs og heildarstyrks leystra efna fór fram hjá Vatnamæl- ingum Orkustofnunar. Frekari lýsingu á aðferðum er að finna í skýrslu þar sem gerð er grein fyrir rannsókninni og niðurstöðum hennar.18 NIÐURSTÖÐUR RANNSÓKNAR- INNAR OG ÁLYKTANIR Niðurstöður mælingar og grein- ingar á sýnum úr Laxá og Geirastaða- skurði eru í 1. og 2. viðauka og einnig á 3. til 6. mynd. Vatnshiti í Mývatni og Laxá var á bilinu 0–16°C þegar söfnun fór fram (3. mynd). Gildi pH sveiflaðist yfir árið á sýnatökustöðunum tveimur og var á bilinu 7,80–9,62 í Laxá en frá 8,08–9,86 í Geirastaðaskurði. Heildar- styrkur leystra efna (e. TDS, total dissolved solids) í útfalli Mývatns er hár miðað við styrk þeirra í íslenskum stöðuvötnum, svo sem Þingvallavatni og Elliðavatni.22,23 Heildarstyrkur leystra efna í Mývatni 1999–2001 var 115–163 mg/l en hefur mælst 60–68 mg/l í útfalli Þingvallavatns (2007–2017) og 60–91 mg/l neðan útfalls í Elliðavatni (1997–1999). Orsakir hás efnainnihalds 2. mynd. Sýnatökustaðir í Mývatni og útfalli þess í rannsóknum frá 1999–2001. Bláu örv- arnar sýna kalda grunnvatnsstrauma en rauðu örvarnar volga.3,5 – The location of Lake Mý- vatn and the sampling spots from the rese- arch period in 2000–2001. The blue arrows indicate inflow of cold groundwater and the red ones inflow of warm groundwater.3,5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.