Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 61

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 61
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 141 9. mynd. Sýnum var safnað af bakka Geirastaðaskurðar, rétt ofan við stíflu (t.v.), og af brú yfir Laxá (t.h). Vatni var safnað með fötu í bandi og sýnum dælt í gegnum síubúnað í viðeigandi sýnaglös. – Samples were collected from the bank of Geirastaðaskurður, just above the dam (left photo), and from the bridge over Laxá in Laxárdalur (right photo). Water was collected in a bucket and samples were pumped through a filter holder into appropriate bottles. Ljósm./Photos: Árni Einarsson (vinstri/left) og Eydís Salome Eiríksdóttir (hægri/right).  afoxandi aðstæður eins og geta myndast í vatninu vegna rotnunar, einkum þegar ís hamlar blöndun. Í öðru lagi geta líf- ræn ferli á botni vatnsins losað um málmana. Loftfirrðar bakteríur nýta sér orku sem losnar við afoxun málmanna á botni vatnsins, og við þær aðstæður haldast margir málmar í lausn, þ.e. falla ekki út eins og gerist við súrefnisríkar aðstæður. Við loftfirrða öndun fer orku- öflun fram án þess að súrefni komi við sögu, ólíkt loftháðri öndun.51 Í þriðja lagi hefur verið sýnt fram á að lífrænar sýrur (e. humic substances) geta með til- flutningi rafeinda stuðlað að afoxun illa kristallaðra járnútfellinga (Fe(III)) og þar með að aukinni leysni járns (Fe(II)). Það ferli getur átt sér stað án aðkomu afoxandi baktería.52 Hvert sem ferlið er eykst leysni fosfórs óbeint við afoxun málmanna og leiðir það til þess að styrkur þeirra vex á sama tíma, eins og sést á 8. mynd, og framboð á leystum fos- fór eykst, og þar með aukast möguleikar ljóstillífandi lífvera í vatninu. Eins og fram hefur komið var, auk rannsóknar í útfalli Mývatns sem hér hefur verið lýst, gerð rannsókn á nær- ingarefnabúskap á botni Mývatns árið 2000–2001, á stöðvum HO, B2 og 95 (2. mynd).15,17 Stöðvar HO og B2 eru við austanvert vatnið nálægt innstreymi kalds lindavatns en stöð 95 er hins vegar í Neslandavík, fjær innstreymi linda- vatnsins. Komið var fyrir tveimur plexí- gler-boxum (gegnsæju og svörtu) með innbyggðri hræru á þessum þremur stöðvum á botni vatnsins og þau höfð þar í allt að sólarhring. Safnað var nokkrum sinnum úr hverju þeirra, í hvert sinn sem sýnataka fór fram, í gegnum slöngur áfastar boxunum. Efnabreytingar í gegnsæja boxinu endurspegla ljóstil- lífun, öndun og rotnun en efna- breytingar í dökka boxinu endurspegla aðeins öndun og rotnun. Rannsóknin tók til allra árstíða. Á tveimur af þessum stöðvum (HO og B2) var botninn hul- inn mýflugnategundinni T. gracilentus, sem eins og áður segir bindur botninn með silkiþráðum og viðheldur súrefni í efsta lagi setsins. Botninn á þriðja sýna- tökustaðnum, stöð 95, var hins vegar hulinn grænþörungi, Cladophora sp. Þar finnst lítið sem ekkert af T. gracilentus en önnur mýtegund, C. islandicus, er algeng. Hún bindur sig við grænþör- ungana en myndar ekki silkiteppi á botninum líkt og T. gracilentus. Set þar sem C. islandicus þrífst er því lausara í sér en á svæði T. gracilentus2 og þar sem C. islandicus dælir ekki súrefni niður í botnlagið mátti gera ráð fyrir að botn- setið á stöð 95 væri súrefnissnauðara. Efnaskipti á milli sets, lífvera og vatns voru ólík á þessum þremur sýnatöku- stöðvum (2. mynd). Mest áberandi var að súrefnisstyrkur reyndist mjög lítill (allt að 11 µmól/l) í sýnum sem safnað var úr dökka boxinu á stöð 95 í febrúar 2001 (9. mynd).15–17 Eins og sést á 10. mynd hækk- aði styrkur Mn og PO4 snarlega í sýnum þar sem styrkur súrefnis var undir 170 µmól/l og var hæstur þegar súrefnis- styrkur var lægstur. Styrkur Fe jókst
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.