Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 72

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 72
Náttúrufræðingurinn 152 ÁNÆGJULEGUR OG MERKUR ÁFANGI  Til hamingju með fullveldisaf- mælið og velkomin til þessarar hátíðar – opnunar á sýningu Náttúruminjasafns Íslands, Vatnið í náttúru Íslands. Dagskráin hér er stutt og laggóð. Að loknu ávarpi mínu flytur mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja D. Alfreðsdóttir, ávarp. Þá tekur við Söngsveitin Fílharmónía og flytur tvö tónverk undir stjórn Magnúsar Ragnars- sonar. Að því loknu opna tvö skóla- börn sýninguna á táknrænan hátt með aðstoð ráðherra og í kjölfarið er boðið upp á leiðsögn um sýninguna og léttar veitingar á efstu hæð hússins. Frelsi, sjálfstæði og fullveldi þjóða er undir náttúrunni komin. Móðir jörð fæðir okkur og klæðir – menningar- og náttúruarfurinn eru samtvinnaðir. Þetta á einstaklega vel við um Ísland, þar sem höfuðatvinnuvegirnir snúast í óvenju ríkum mæli um beina nýtingu náttúru- auðlinda, fiskveiðar, sauðfjárbeit í haga, beislun vatnsfalla og jarðvarma og ásýnd lands og náttúru í ferðaþjónustunni. Gjafir jarðar stoða samfélög manna þó lítt ef ekki er fyrir hendi kunnátta og vís- indaleg þekking til að umgangast náttúr- una skynsamlega, með hag komandi kyn- slóða að leiðarljósi. Farsæl umgengni við auðlindirnar byggist á skilningi á náttúr- unni, gangverki hennar og hvernig allt hangir saman. Ef sá skilningur er ekki til staðar getur farið illa, auðlindir spillst og tapast jafnvel. Þá sverfur að frelsinu. Það er hér sem Náttúruminjasafn Íslands hefur mikilvægu hlutverki að gegna sem fræðslu-, mennta- og menn- ingarstofnun. Meginhlutverk Náttúru- minjasafnsins er að miðla þekkingu og fróðleik um undur og furður náttúru Íslands, náttúrusögu, hófsama nýtingu náttúruauðlinda og náttúruvernd. Sýningin Vatnið í náttúru Íslands er sérsýning sem fjallar um afmarkaðan þátt í náttúru landsins, vatnið. Sýningin markar mikilvægt skref í langferð Nátt- úruminjasafnsins sem hófst fyrir um 130 árum. Hér vísa ég til stofnunar Hins íslenska náttúrufræðifélags í Kaup- mannahöfn árið 1887, forvera Náttúru- minjasafnsins. Meginmarkmið félagsins var og er enn að koma upp sem fullkomn- ustu náttúrgripasafni í Reykjavík sem sé eign þjóðarinnar, eins og segir í stofn- samþykkt félagsins. Það er fyrst nú, við opnun þessarar sýningar, að draumur- inn rætist um aðstöðu til sýningarhalds sem sæmir höfuðsafni þjóðarinnar í náttúrufræðum. Og ferðin heldur áfram. Öll náttúra Íslands er undir í starfsemi Náttúru- minjasafnsins, ekki aðeins vatnið! Og að baki góðu sýningarhaldi þarf viðun- andi aðstöðu til rannsókna, skráningar, varðveislu og geymslu. Þessi aðstaða er vart eða ekki fyrir hendi hjá Náttúru- minjasafninu og þarf að bæta. Og lausnin er í augsýn. Í sáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur er að finna yfir- lýsingu um að fjármagna skuli á næstu fimm árum hönnun á nýju safnahúsi fyrir Náttúruminjasafn Íslands. Þar að lútandi þarfagreining er þegar hafin. Hönnun og framkvæmdir vegna sýn- ingarinnar hófust að fullu fyrir um hálfu öðru ári. Á skömmum tíma hefur einvala liði hönnuða, arkitekta, lista- og iðnað- armanna og sérfræðinga tekist að galdra fram sýningu af bestu gerð, glæsilega, nýstárlega, fallega og fræðandi, sem er ætluð öllum, jafnt íbúum sem gestum landsins, en einkum þó börnum. Ég vil færa öllum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í þessu verkefni hjartanlegar þakkir fyrir afar gefandi samstarf, þakkir fyrir fagmennskuna, eljusemina og trúna á verkefnið við erfiðar aðstæður. Sér- stakar þakkir fá sérfræðingar á Hafrann- sóknastofnun, Háskóla Íslands, Háskól- anum á Hólum, Húsdýragarðinum í Reykjavík, Landgræðslu ríkisins, Nátt- úrufræðistofnun Íslands og Veðurstofu Íslands. Kærar þakkir til starfsfólks Gagaríns og ART+COM í Berlín, þar fara brautryðjendur á sviði margmiðlunar. Ég vil sérstaklega þakka Þórunni Sig- ríði Þorgrímsdóttur sýningarstjóra og yfirhönnuði fyrir hennar þátt, listrænan smekk og innsæi svo af ber, Álfheiði Ingadóttur, ritstjóra og alhliða ráðgjafa, Önnu Katrínu Guðmundsdóttur verk- efnisstjóra sýningarinnar, Páli Ragnars- syni staðarstjóra og ljósahönnuði, Víg- lundi M. Sívertsen yfirsmiði, sem og öðru starfsfólki og samstarfsaðilum Náttúruminjasafnsins. Ég vil einnig þakka Hinu íslenska náttúrufræðifélagi fyrir stuðninginn við málefnið, sem og Perluvinum hf. og Perlu norðursins hf., einkum Finnboga Jónssyni stjórnarformanni og Gunnari Gunnarssyni framkvæmdastjóra, sem buðu Náttúruminjasafninu til samstarfs í Perlunni. Borgarstjórinn Dagur B. Egg- ertsson á einnig drjúgan þátt í að þessi sýning er orðin að raunveruleika. Að endingu vil ég þakka Lilju D. Alfreðsdóttur mennta- og menningar- málaráðherra og þeim fyrrverandi, Krist- jáni Þór Júlíussyni, sem og Katrínu Jak- obsdóttur forsætisráðherra fyrir góðan skilning á málefninu og stuðning við það. Góðir gestir – til hamingju með þennan ánægjulega og merka áfanga.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.