Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 80
Náttúrufræðingurinn
160
Þrenns konar talningaeiningar voru
skilgreindar: (1) par staðbundið á
greinilegum varpstað (á óðali), (2) fugl
á hreiðri með eða án maka í nánd og (3)
fjöldi hreiðra. Algengast er að sjá fugl á
hreiðri og makann á verði skammt frá.
Stundum sést aðeins álegufuglinn en
einnig kemur fyrir að par stendur saman
án þess að hreiður sjáist. Í langflestum
tilvikum eru varpstaðir stormmáfa
í Eyjafirði sýnilegir frá vegum eða
nálægum útsýnisstöðum. Það auðveldar
talningu fuglanna með sjónauka eða
fjarsjá og sparar tíma.
NIÐURSTÖÐUR
Vorið 2015 fundust alls 622 varppör
stormmáfa á 68 stöðum í Eyjafirði
(3. mynd) sem er 14 stöðum færra en
2010. Alls bættust við 23 staðir þar sem
stormmáfar urpu ekki 2010 en 37 varp-
staðir frá því ári voru ekki notaðir 2015.
Eftir talninguna sumarið 2015 er vitað
um alls 165 staði í Eyjafirði þar sem
stormmáfar hafa orpið frá árinu 1980
(sjá viðauka).
Á 20 af nýju varpstöðunum 23 voru
eitt til þrjú pör á hverjum stað en fimm,
sjö og átta pör á hverjum hinna þriggja.
Samtals voru 57 varppör á þessum 23
nýju stöðum.
Á athugunarsvæðinu voru flest
varppör á stöðum þar sem stormmáfar
hafa orpið lengi. Flest pör (94) voru í
óshólmum Eyjafjarðarár norðan gamla
þjóðvegarins, sem er 95% aukning frá
2010. Næstflest pör (57) urpu í Hrísey,
sem er fækkun um 15 pör (21%) frá
2010. Þriðji fjölsetnasti staðurinn var
í Staðarey, einum óshólma Eyjafjarð-
arár, 38 pör, en þar voru 26 pör 2010
og er það 46% aukning. Fjórði fjöl-
3. mynd. Fjöldi og útbreiðsla stormmáfspara í Eyjafirði sumarið 2015.
– The number and distribution of breeding Common Gull pairs in Eyja-
fjörður in summer 2015. The total number of breeding sites were 68.
setnasti varpstaðurinn, með 32 pör, var
við Eyjafjarðará móts við Kropp. Þar
hafði fækkað úr 45 pörum árið 2010
eða um 29%.
Aðrir varpstaðir með fleiri en 10
pör vorið 2015 voru við Stokkahlaðir
(26 pör), Þverá (26 pör), á Dalvík
norðan ósa Svarfaðardalsár (24 pör),
á Arnarnesi á Gálmaströnd (23 pör), á
svæðinu Urðir — Hóll í Svarfaðardal (22
pör), í Krossanesborgum við Akureyri
(20 pör), við Munkaþverá í Eyjafjarðar-
sveit (18 pör), Laufás á Kjálka (18 pör),
Arnarholt í Svarfaðardal (15 pör), Tré-
staði í Hörgársveit (14 pör), Akureyrar-
flugvöll (14 pör), Björg í Hörgárdal (11
pör) og Skipalón í Hörgársveit (11 pör).
Á 17 fjölsetnustu varpstöðunum urpu
alls 463 pör, eða 74% allra stormmáfa
í Eyjafirði. Á 20 stöðum (29% varp-
staða) voru stök pör en tvö varppör
á sjö stöðum (10% varpstaða). Varp-
stöðum með eitt eða tvö pör fækkaði
úr um 50% varpstaða 2010 í um 40%
2015. Fjölsetnum varpstöðum með yfir
10 pör hefur fjölgað hlutfallslega úr 15%
varpstaða 2010 (12 af 82) í 25% árið 2015
(17 af 68).
Á heildina litið hefur stormmáfum í
Eyjafirði fjölgað samfellt frá 1980 utan
lítilsháttar samdráttar milli áranna
2000 og 2005, úr 488 pörum í 462
(5,6%) og milli áranna 2010 og 2015 úr
660 pörum í 622 (5,8%) (4. mynd).
UMRÆÐA
Eins og í fyrri talningum voru greini-
leg merki um að stormmáfar eru ekki
mjög fastheldnir á varpstaði.1,2 Til-
færsla milli varpstaða þarfnast frekari
rannsókna þar sem einstaklingarnir eru
þekktir og hægt að greina hve langt þeir
færa sig milli varpstaða og hvers vegna.
Hér er fjallað um helstu breytingar
frá talningunni 2010. Í Svarfaðardal
fjölgaði varppörum úr 66 í 94 (42%
aukning) og varð fjölgunin nær
eingöngu á tveimur stöðum. Við Urðir
fjölgaði úr tveimur pörum í 22 og við
Arnarholt úr sjö pörum í 15. Á hinn
bóginn fækkaði stormmáfum í Hrísey
úr 72 pörum árið 2010 í 57 pör 2015
(21% fækkun). Varpið í Hrísey var í
hámarki árið 2004 (123 pör).3 Í grein
okkar um talningarnar 2005 og 2010 var
velt upp þeirri tilgátu að stormmáfar úr
Hrísey hafi flutt sig til nálægra varp-
staða, Arnarness og óshólma Fnjóskár.2