Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 97

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 97
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 177 þeirra aldrei nákvæmlega eins. Hann sannaði þar með að umhverfi og til- viljun geta haft veigamikil áhrif á eig- inleika lífveranna, nokkuð sem gjarnan gleymist í erfðadýrkun nútímans. Með þeirri niðurstöðu lagði hann hornstein að stofnerfðafræði og erfðafræði magn- bundinna eiginleika. Hvaða eiginleika hafa genin og hvernig er erfðaefnið uppbyggt? Guð- mundur rekur í sjötta kafla rannsóknir Bandaríkjamannsins Thomasar H. Morgans (1866–1945) og samstarfs- manna hans. Morgan er þekktastur fyrir að sýna fram á að genin liggja á litn- ingum, sem var niðurstaða einstakra til- rauna sem hann gerði á ávaxtaflugum. Enn fremur fundu Morgan og sam- starfsmenn hans að genin liggja á þeim í tiltekinni röð. Þar kom fram fyrsta hug- mynd um erfðaefnið sem þráð, og í kjöl- farið var hægt að meta fjarlægð á milli gena „á þræðinum“. Morgan hafði hins- vegar engan áhuga á sameindalegum eiginleikum genanna eða erfðaefnisins, enn það varð viðfangsefni margra líf- efnafræðinga og líkanasmiða. Leitinni að byggingu erfðaefnisins er lýst í sjö- unda kafla. Þar skiptir framlag Banda- ríkjamannsins James Watsons (f. 1928) og Bretanna Francis Cricks (1916–2004) og Rosalindar Franklin (1920–1958) lík- lega mestu, en leitin að byggingu og eig- inleikum erfðaefnisins og rökum gen- anna var hin æsilegasta. Í áttunda kafla víkur sögunni að spurningunni um það hvernig genin stuðla að eiginleikum lífvera. Þar eru bandarísku lífefnafræðingarnir George Beadle (1903–1989) og Edward L. Tatum (1909–1975) í aðalhlutverki ásamt bleika brauðsveppnum (Neurospora grassa). Þótt búið væri að skilgreina arfgerð og svipgerð var enn á huldu hvernig genin stuðluðu að tilurð svipgerðar- innar. Hvernig gat gen búið til auga á flugu eða gefið því lit? Þeir félagar völdu brauðsveppinn til rannsókna sinna, og reyndist hann hið heppileg- asta verkfæri. Hægt var að finna stökk- breytingar sem höfðu áhrif á efnaskipta- getu hans, en einnig var auðvelt að æxla saman stofnum með ólíka eiginleika. Sömuleiðis var hægt að greina gen sem höfðu áhrif á tiltekin efnahvörf og nýsmíð lífefna. Með þessum hætti sam- einuðust erfðafræði og lífefnafræði, og úr þessum fræðilegu æxlunum spratt sameindalíffræðin, sem opnaði margar gáttir í rannsóknum. Barbara McClintock (1902–1992) er uppáhald margra erfðafræðinga og fjallar Guðmundur um hana í níunda kafla. Helstu styrkleikar hennar fólust í afburðahæfileikum við smásjána. Hún kortlagði byggingu litninga í maís (Zea mays) og sýndi ásamt landa sínum Harriet Creighton (1909–2004) fram á það að endurröðun fól í sér víxl á efni milli samstæðra litninga. McClintock fékk nóbelsverðlaunin (1983) hins vegar fyrir aðrar og undarlegri niðurstöður. Hún rannsakaði samruna litninga og uppgötvaði að líkurnar á samruna eru háðar tilteknum erfðaþætti í erfða- mengi maísplöntunnar. Þetta gen var hægt að kortleggja til litnings, nema hvað stundum fluttist það á annan litning. Við svo flóknar og mótsagna- kenndar niðurstöður hefðu flestir erfðafræðingar flúið af vettvangi, sem nokkrir eflaust gerðu á þessum ára- tugum, en McClintock sýndi einurð og staðfestu og hélt áfram tilraunum sínum. Þær féllu illa að viðtekinni þekk- ingu í erfðafræði þess tíma. Gen sátu á litningum og enginn trúði því að þau gætu færst úr stað fyrr en McClintock lagði loks fram gögn sín og niðurstöður. Síðar kom í ljós að þessi hoppandi erfða- þættir eru eins konar DNA-sníkjudýr sem fjölga sér í erfðamengjum og geta haft þær aukaverkanir að raska virkni gena og leiða til brota á litningum. DNA- -sníkjudýrin, sem á íslensku nefnast stökklar (e. transposable elements) má finna í öllum lífverum, og hjá sumum heilkjörnungum mynda dauðir stökklar stóran hluta erfðamengisins. Síðasti kafli bókarinnar er annars eðlis en hinir fyrri. Þar er fjallað um tilgátur um uppruna heilkjörnunga, og er vísað til rannsókna margra vísinda- manna. Engin ein persóna er í forgrunni, en rannsóknir á eðli og eiginleikum þessa síðasta sameiginlega forföður okkar og amöbunnar eru engu að síður spennandi. Guðmundur minnir okkur á þann sláandi mun sem er á stærð og efnaskiptagetu dreifkjörnunga og heil- kjörnunga, og ekki síst á þá staðreynd að heilkjarnafruma virðist einungis hafa þróast einu sinni á jörðinni. Rök lífsins er fjórða bók Guðmundar, en allar hafa þær komið út eftir að hann fór á eftirlaun. Skrif Guðmundar eru til fyrirmyndar, jafnt efnistök, uppbygging, stíll og orðfæri. Þjóð vor er fjarska lánsöm að eiga svo skýran og vel máli farinn hugsuð og penna í Guðmundi. Hann fjallar um lykilpersónur af fágætri natni og minnir okkur á tvær mikil- vægar lexíur um fræðimenn og fólk. Í fyrsta lagi skiptir uppruni og menntun ekki öllu máli, heldur hvað uppgötvast með starfinu. Til dæmis barðist fjöl- skylda Wallace í bökkum og hann var tekinn úr skóla 13 ára til að vinna fyrir sér. Eins var faðir Mendels leiguliði, móðir hans dóttir garðyrkjumanns og Beadle bóndasonur frá Nebraska. Í öðru lagi hefur enginn rétt fyrir sér um allt. Þetta á einnig við um vísindamenn og fræðinga, Aristóteles sem McClintock. Auðvelt er að skilja hvernig hugmyndir Aristótelesar og Grikkjanna urðu nokkuð lausbeislaðar, því þeir höfðu fá verkfæri til að greina hið smáa og gera tilraunir. Aftur á móti eru áskor- anirnar sem þeir stóðu frammi fyrir þær sömu og í vísindum nútímans. Við getum ekki mælt allt og því er skipuleg hugsun og rökvísi helsta vopn vísinda- manna. Wallace og Darwin uppgötvuðu til að mynda náttúrulegt val, en á síðari árum varð Wallace forfallinn spíritisti og ályktaði að andlegt líf mannsins og greind gæti ekki verið afurð þróunar. Darwin gerði líka mistök. Í Uppruna tegundanna (sérstaklega seinni útgáfum bókarinnar) eru klausur um mikilvægi erfða áunninna eiginleika sem bergmála hugmyndir Lamarcks. Sýn Morgans á þróun litaðist mjög af hugmyndum holl- enska grasafræðingsins Hugos de Vries (1848–1935). Samkvæmt þeim gerist þróun í stökkum, þegar stökkbreytingar valda afdrifaríkum breytingum á svip- gerð. Darwin lagði hins vegar áherslu á samfelldan breytileika. McClintock uppgötvaði stökkla, eins og áður sagði, en tilgátan sem hún trúði staðfastlega
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.