Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 98
Náttúrufræðingurinn
178
1. Darwin C.R. 1859/2004. Uppruni tegundanna. I-II. Guðmundur Guðmundsson
þýddi. Hið íslenska bókmenntafélag, Reykjavík. 709 bls.
2. Einar Árnason 2010. Þróunarkenningin. Bls. 17–51 í: Arfleifð Darwins, þróun,
náttúra og samfélag (ritstj. Arnar Pálsson, Bjarni K. Kristjánsson, Hafdís H.
Ægisdóttir, Snæbjörn Pálsson & Steindór J. Erlingsson). Hið íslenska bók-
menntafélag, Reykjavík.
3. Guðmundur Eggertsson 2005. Líf af lífi. Gen, erfðir og erfðatækni.
Bjartur, Reykjavík. 188 bls.
4. Monod, J. 2013. Tilviljun og nauðsyn. Ritgerð um náttúrulega heimspeki
nútímalíffræði (þýð. Guðmundur Eggertsson). Hið íslenska bókmenntafélag,
Reykjavík. 284 bls.
HEIMILDIR
Arnar Pálsson
Líf- og umhverfisvísindadeild / Líffræðistofnun HÍ
Háskóla Íslands
Sturlugötu 7
IS-101 Reykjavík
Arnar Pálsson (f. 1970) lauk BS-prófi í líffræði árið
1995 og MS-prófi í líffræði árið 1998 frá líffræðiskor
Háskóla Íslands. Hann lauk doktorsprófi í erfðafræði
frá Fylkisháskólanum í Norður-Karólínu (North Car-
olina State University) árið 2003 og vann eftir það við
Háskólann í Chicago (University of Chicago) og Íslenska
erfðagreiningu. Sem prófessor í lífupplýsingafræði við
Háskóla Íslands vinnur hann að rannsóknum á þróun,
þroskun og erfðum.
UM HÖFUNDINN
PÓST- OG NETFANG HÖFUNDAR
/ AUTHOR'S ADDRESS
og eyddi miklu púðri í að rannsaka var
að stökklar væru lykillinn að stjórnun
á virkni gena. Síðar sýndu Frakkarnir
Jacques Monod (1910–1976) og François
Jacob (1920–2013) að genastjórn þarfn-
ast tiltekinna raða nálægt lesrömmum
genanna, og annarra þátta sem skráð
er fyrir í erfðamengjum.c Tilgáta
McClintock um genastjórn var röng, en
það dregur ekkert úr ágæti stökklaupp-
götvunar hennar.
Í bókinni er fjallað um vísindamenn
sem tókust á við stórar spurningar, náðu
að svara sumum rétt en fóru villir vega
í öðrum tilfellum. Framlag annarra
fræðimanna þurfti til að greiða úr,
hrekja ranga tilgátu eða finna góða leið
til að prófa rétta tilgátu. Þannig safnast
þekkingin upp, en þræðirnir sem saman
tvinna sannleikann eru sjaldnast ljósir
nema í baksýnisspeglinum. Í hita leiks-
ins eru lagðar fram mismunandi tilgátur
til að útskýra fyrirbærin. Sumar reynast
rangar, óljósar, gloppóttar eða út í loftið.
Aðrar reynast réttar.
Guðmundur skýrir ferli vísinda
með því að segja frá starfi frumkvöðla
í erfða- og þróunarfræði. Það var
áhugi og ástríða sem dreif þá áfram, og
þeir tengdust tilgátum sínum og við-
fangsefnum að því er virðist sterkum
tilfinningaböndum. Þetta knúði þá til
góðra verka í sumum tilfellum, en leiddi
í öðrum til þess að þeir héngu á úreltri
hugmynd þegar vísindasamfélagið var
komið langt fram úr þeim.
Í bók sinni rifjar Guðmundur upp
þá umsögn um Aristóteles að hann
hafi verið sá fyrsti sem skrifaði eins og
háskólaprófessor. Guðmundur skrifar
betur en flestir háskólaprófessorar, og
með því hjálpar hann okkur að skilja
rök lífsins og það að þekkingarleitin
fer fram í litlum skrefum um greinótta
og krókótta stíga. Það er jafnvel mikil-
vægari vitneskja en svör við tilteknum
spurningum. Rök lífsins og rök þekk-
ingarleitarinnar eiga fullt erindi við
okkur nú á tímum.
Höfundur þakkar Baldri Kristjáns-
syni og Dagnýju Ástu Rúnarsdóttur leið-
réttingar og góðar ábendingar.
c Um eiginleika genastjórnunar má m.a. fræðast í bók Monods, Tilviljun og nauðsyn, sem Guðmundur þýddi.