Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 101

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 101
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 181 Margrét í Sogum ásamt Eydísi og Guðna sumarið 2016. Ljósm. Hallgrímur Arnarson. Miltisbrandur, salmonella, kamfýlobakter, auk annarra bakt- eríu- og veirusjúkdóma og smitefna af margvíslegum öðrum toga. Karakúlsjúkdómarnir svonefndu, votamæði, garnaveiki, þurramæði og visna voru allir fluttir inn með einum hópi kinda. Halda má upptalningunni áfram: Fjárbóla, fjárkláði, innyflaormar, hníslar, hringskyrfi. Mörgum þessara sjúkdóma hefur tekist að útrýma af Íslandi með miklum tilkostnaði og fyrirhöfn, blóði og tárum, en sú hætta fer vaxandi að hingað berist nýir sjúkdómar sem ekki ræðst við að uppræta ef slakað er á vörnum og landamæri opnuð, eins og nú er stefnt að. Víst er um það að þekktur er erlendis aragrúi sjúkdóma sem við höfum sloppið við enn sem komið er að flytja til landsins. Þá eigum við á hættu að fá til okkar ef við sofnum á verði, látum undan gróðaöflunum og beygjum okkur fyrir tilskip- unum Evrópubandalagsins, sem ekki eiga við hér á landi. Þær eru margar skaðlegar landi, fólki og búfjárstofnum, sem hafa verið einangraðir lengi og eru því viðkvæmari fyrir aðfluttum smitefnum en búfjárstofnar í flestum öðrum löndum. Það hefur oft komið í ljós að nýir smitsjúkdómar sem hingað berast geta orðið að landsplágum. Margrét óttaðist að stjórn- málamenn okkar myndu beygja sig fyrir hinu erlenda valdi, þar sem beitt er þrýstingi, hótunum og gýligjöfum. Margrét reyndi oft með greinaskrifum sínum að koma vitinu fyrir þá sem hvetja til hættulegs innflutnings og ýta við samvisku þeirra. Allir nýir innfluttir sjúkdómar hafa verið skaðlegir og sumir bráðdrepandi. Bak við slíkar kröfur eru verslunarmenn og fleiri kappsfullir en skammsýnir gróðamenn hérlendir. Þeir kelkja enn við í eigin þágu og endalaust að fá innflutt hrátt ket o.fl. þótt hættan sé augljós. Samt er því haldið á lofti að um hagsmuni neytenda sé að ræða, en gróðinn rennur yfir- leitt annað en til almennings, því miður. Þetta skynjaði Mar- grét og stóð á verði. Nú er skarð fyrir skildi, þegar Margrét er horfin úr varnarliðinu. Rannsóknir Björns Sigurðssonar og samstarfsfólks hans sýndu fram á að sama veira var orsök visnu og mæði. Þegar veiran lagðist á taugakerfið varð sjúkdómurinn visna en þegar veiran lagðist á öndunarfærin varð sjúkdómurinn mæðiveiki. Hér var um að ræða lentiveiru, skylda alnæmisveirunni. Mar- grét setti fram þá kenningu, sem reyndist rétt, að mæði/visnu- -veiran hefði þann hæfileika að skjóta sér undan ónæmissvari hýsils, þ.e. losna undan náttúrulegum vörnum líkamans, með stökkbreytingu. Sama á við um alnæmisveiruna eyðniveiruna, sem er náskyld mæði/visnu-veirunni. Það var því úr vöndu að ráða og ljóst að leiðin að markinu yrði löng. Samt lagði Mar- grét í það, samhliða rannsóknum á visnuveirunni, að hefja tilraunir með framleiðslu á bóluefni gegn henni. Fyrst hafði hún aðstöðu fyrir tilraunafé á Keldum, en þegar komið var að aldursmörkum hjá Margréti og hún átti að fara í úreldingu náði hún sambandi við dýralækna og stjórnvöld á Kýpur og fékk aðstöðu þar til að halda áfram rannsóknum sínum á visnu og þróun bóluefnis gegn henni. Á Kýpur er visna útbreidd, eins og í fleiri löndum, og því var þar kjörinn vettvangur fyrir rannsóknir hennar. Og þegar Margrét var komin hátt á níræðisaldur birti hún grein um rannsóknir sínar þar sem hún
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.