Fréttablaðið - 20.04.2019, Qupperneq 6
595 1000
Alicante Flugsæti
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra Báðar leiðir m/tösku og handfarangri
Flugsæti frá kr.
39.850
Verð m.v. 10. maí til 17. maí
Þróunarsamvinna og
mannúðaraðstoð:
Viltu vinna með okkur?
Viltu vinna með utanríkisráðuneytinu
á sviði þróunarsamvinnu og
mannúðaraðstoðar?
Ráðuneytið vill fjölga samstarfsaðilum á
þessu sviði, sérstaklega með skírskotun
til áherslu á mannréttindi og samstarf við
atvinnulífið.
Ráðuneytið ætlar að verja allt að 120
milljónum króna til verkefna á sviði
þróunarsamvinnu og mannúðarmála í
gegnum félagasamtök. Umsóknarfrestur
um verkefnin er til 20. maí. Niðurstöður
um úthlutun fjár til verkefna ættu að
liggja fyrir í júlí.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki:
• til þróunarsamvinnuverkefna
• til mannúðarverkefna
• til fræðslu- og kynningarverkefna
Nánari upplýsingar á vef Stjórnarráðsins:
utn.is/heimsljos
MAROKKÓ Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra hlýtur að hafa verið
leidd í gildru. Þetta segir Lamia
Radi, sendiherra Marokkó, um fund
sem forsætisráðherra átti með Bra-
him Ghali, forseta Vestur-Sahara og
leiðtoga þjóðfrelsishreyfingarinnar
Polisario, fyrr í mánuðinum.
Vestur-Sahara hefur verið undir
stjórn Marokkó eins frá 1979 en
Máritanar komu einnig að stjórn
svæðisins frá 1957. Í dag halda Mar-
okkómenn stærstum hluta svæðis-
ins en Sahrawi-þjóðin, eða hið lýð-
ræðislega lýðveldi Sahrawi-Araba,
heldur minnihlutanum. Alls viður-
kenna 84 aðildarríki Sameinuðu
þjóðanna sjálfstæði Vestur-Sahara.
Fjörutíu ríki hafa hins vegar „fryst“
viðurkenningu sína. Ísland er ekki
á meðal þeirra ríkja sem hafa viður-
kennt sjálfstæði.
Fréttablaðið birti viðtal við Ghali
fyrr í mánuðinum þar sem hann
þakkaði forsætisráðherra kærlega
fyrir fundinn og sagðist hafa rætt
um þjáningu Sahrawi-þjóðarinnar
og andspyrnuna gegn Marokkó-
mönnum. Hann sagðist að auki
hrifinn af Íslandi og kvaðst hafa
lært um Íslendinga og sjálfstæðis-
baráttu þeirra í öðrum bekk.
Sendiherrann Radi segir að leið-
togar Polisario hafi í gegnum tíð-
ina nýtt sér velvild annarra þjóða.
„Þetta er of boðsleg tækifæris-
mennska. Trúir þú því virkilega
að, eins og hann sagði í viðtalinu,
hann hafi lært um Ísland í spænsk-
um nýlenduskóla, þá undir stjórn
fasistans Franco? Þetta er bara ein-
hver fullyrðing til að vekja samhug
á meðal Íslendinga.“
Í viðtalinu ræddi Ghali um kúgun
Marokkómanna og pólitíska fang-
elsun mótmælenda í Vestur-Sahara.
Radi segir þetta af og frá. „Það býr
næstum milljón á þessu svæði.
Einungis örfá hundruð þeirra deila
sjónarmiðum þessa manns. Þessi
minnihluti þarf að vekja athygli á
sér með því að ögra,“ segir Radi og
tekur einnig fram að Marokkó sé
ekki haldið „stækkunarkreddu“,
eins og Ghali hélt fram. Þannig full-
yrðingar séu undarlegar.
Að sögn Radi grundvallast tilkall
Marokkómanna til Vestur-Sahara
á því að svæðið hafi tilheyrt Mar-
okkó áður en Spánverjar og Frakkar
eignuðu sér Marokkó árið 1912.
„Marokkó er þess vafasama heiðurs
aðnjótandi að vera eitt fárra ríkja á
jörðu sem var nýlenda tveggja ríkja
á sama tíma. Vegna landfræðilegrar
og strategískrar legu Marokkó,
sem hefur aðgengi að Miðjarðar-
hafi, Atlantshafi og Afríku sunnan
Sahara, sameinuðu þessi nýlendu-
veldi krafta sína gegn Marokkó og
sundruðu ríkinu.“
Þá segir sendiherrann að á meðan
unnið er að lausn á Vestur-Sahara-
deilunni undir handleiðslu Samein-
uðu þjóðanna beri Marokkó skylda
til þess að sjá íbúum svæðisins fyrir
menntun, heilbrigðisaðstoð, inn-
viðum og atvinnu. „Öryggisráð SÞ,
Evrópusambandið og bandaríska
öldungadeildin hafa öll sagt að
þetta sé hlutverk og skylda Mar-
okkó.“
Spænskir dómstólar opnuðu árið
2016 á ný rannsókn á Ghali þar sem
hann er meðal annars sakaður um
þjóðarmorð, stríðsglæpi, glæpi
gegn mannkyninu og pyntingar,
samkvæmt fréttum meðal annars
spænska miðilsins El País og breska
ríkisútvarpsins. Glæpirnir eiga að
hafa átt sér stað í Tindouf-f lótta-
mannabúðunum í Alsír. Í samtali
við Fréttablaðið sagði Ghali ásak-
anirnar rangar og tilhæfulausar.
Andstæðingarnir í Marokkó væru
sérfræðingar í að ljúga um leiðtoga
Sahrawi-þjóðarinnar.
Radi segir að þótt það eigi ekki að
neita Ghali um að vera álitinn sak-
laus uns sekt er sönnuð þurfi að átta
sig á alvarleika ásakananna. „Þessi
manneskja er sökuð og sótt til saka
í Evrópu fyrir stríðsglæpi og þjóðar-
morð sem og alvarleg og endurtekin
kynferðisbrot og nauðganir ungra
kvenna í f lóttamannabúðum,“ segir
Radi og bætir við: „Ég harma það að
fólk á Íslandi styðji og auki á sýni-
leika nokkurs með svo umdeilan-
lega ímynd.“ thorgnyr@frettabladid.is
Segir forsætisráðherra
vera leiddan í gildru
Sendiherra Marokkó segir að forseti Vestur-Sahara hljóti að hafa leitt forsætis-
ráðherra Íslands í gildru þegar hún fundaði með honum fyrr í mánuðinum.
Sendiherrann bendir á alvarleika stríðsglæpaásakana á hendur forsetanum.
Forsætisráðherra átti fund með forseta Vestur-Sahara fyrr í mánuðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Trúir þú því virki-
lega að, eins og
hann sagði í viðtalinu, hann
hafi lært um Ísland í
spænskum
nýlenduskóla,
þá undir
stjórn fasist-
ans Franco?
Þetta er bara
einhver fullyrð-
ing til að vekja samhug á
meðal Íslendinga.
Lamia Radi, sendiherra Marokkós
Job.is
GLÆNÝ OG
FERSK STÖRF
Í HVERRI VIKU
Þú finnur draumastarfið á
2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
0
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:0
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
7
-0
2
A
4
2
2
D
7
-0
1
6
8
2
2
D
7
-0
0
2
C
2
2
D
6
-F
E
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K