Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 8
Nefndin mín þarf,
og á rétt á, að fá
fulla útgáfu skýrslunnar.
Jerry Nadler, formaður dómsmála-
nefndar fulltrúadeildar þingsins
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
LOFTSLAGSMÁL
– er náttúran svarið?
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar styður vakningu í loftslagsmálum
og stendur fyrir fundaröðinni Liggur okkur lífið á?
Öll velkomin og heitt á könnunni.
Þriðjudagurinn 23. apríl 2019
kl. 20 á Kjarvalsstöðum.
Á þessum öðrum fundi munum við glíma við
spurningar eins og:
Hver eru tengsl náttúruverndar og loftslagsmála?
Hvað eru náttúrulausnir og af hverju skipta þær máli
í loftslagsumræðunni? Hvernig geta borgir verið
náttúruvænni? Hvernig nýtast aðgerðir í loftslags-
málum verndun líffræðilegrar fjölbreytni?
Hver eru áform Reykjavíkurborgar hvað ofanvatns-
lausnir varðar, vistvænt byggðaskipulag, græna
netið og kolefnisbindingu? Ber okkur skylda til
að vernda lífríki jarðar? Skiptir það einungis máli
vegna velferðar mannkyns? Hverjir eru hagsmunir
náttúrunnar?
Íris Þórarinsdóttir verkfræðingur og
Snorri Sigurðsson líffræðingur flytja erindi með
glærum á fundinum og Gísli Rafn Guðmundsson
borgarhönnuður og Líf Magneudóttir, formaður
umhverfis- og heilbrigðisráðs munu bregðast við
og taka þátt í umræðum ásamt öðrum gestum.
Byggjum á staðreyndum. Hlustum á fagfólk og
grasrótina. Tökum þátt í umskiptunum.
Miðasala á tix.is og við inngang
Kór Neskirkju
Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson
Lesari Gunnar Þorsteinsson
BANDARÍKIN Skýrsla um rannsókn
Roberts Mueller, sérstaks saksókn-
ara, á meintum afskiptum Rússa af
bandarísku forsetakosningunum
árið 2016, meintu samráði fram-
boðs Donalds Trump við Rússa og
öllum þeim af brotum sem gætu
uppgötvast við rannsóknarvinnuna
var birt á skírdag.
Skýrslan telur 448 blaðsíður en
þar af hefur William Barr dóms-
málaráðherra ritskoðað nærri
þúsund atriði vegna yfirstandandi
rannsókna, kviðdóma, rannsókn-
araðferða og friðhelgi einkalífs við-
komandi. Alls eru um tíu prósent
skýrslunnar ritskoðuð.
Jerry Nadler, Demókrati og for-
maður dómsmálanefndar full-
trúadeildar bandaríska þingsins,
greindi frá því að hann hefði gefið
út stefnu svo þingið fái fulla og
óritskoðaða útgáfu skýrslunnar
af henta. Að hans mati kemur rit-
skoðunin í veg fyrir að þingið fái
fulla mynd af rannsókninni.
„Nefndin mín þarf, og á rétt á,
að fá fulla útgáfu skýrslunnar og
þeirra sönnunargagna sem liggja
henni að baki,“ sagði Nadler. Auk-
inheldur sagði hann að ekki væri
hægt að treysta orðum Barrs um
að skýrslan gæfi ekki tilefni til að
ákæra Trump fyrir að hindra fram-
gang réttvísinnar né sýndi hún fram
á nokkurt samráð. Demókratar
hafa sömuleiðis óskað eftir því að
Mueller komi fyrir nefndina og
svari spurningum.
Það er einkum ásökunin um að
Trump hafi hindrað framgang rétt-
vísinnar sem lifir enn eftir birtingu
skýrslunnar. The New York Times
greindi sérstaklega frá tíu atvikum
þar sem Trump gæti hafa gerst
sekur um þann glæp.
Trump á að hafa afvegaleitt
almenning um tengsl sín við Rúss-
land, beðið James Comey, þáverandi
alríkislögreglustjóra, um að hætta
rannsókn, reynt að fá Jeff Sessions,
þá dómsmálaráðherra, til að víkja
ekki frá stjórn rannsóknarinnar,
fá hann til að taka aftur við téðri
stjórn. Þá er nefndur brottrekstur
Comeys og tilraunir Trumps til að
láta reka Mueller.
Forsetinn á að hafa reynt að fá
Don McGahn, lögmann forsetaemb-
ættisins, til að þvinga dómsmála-
ráðuneytið til þess að gefa Mueller
reisupassann. McGahn varð hins
vegar ekki við beiðni forsetans.
Chris Cilizza, stjórnmálaskýrandi
hjá CNN, sagði í umfjöllun sinni að
McGahn hefði með þessu svo gott
sem bjargað Trump.
Miðað við tíst sem forsetinn birti
í gær er hann afar ósáttur. „Full-
yrðingar eru birtar um mig í þess-
ari klikkuðu Mueller-skýrslu, sem
er skrifuð af átján reiðum, Trump-
hatandi Demókrötum. Þær eru
skáldaðar og alls ósannar,“ skrifaði
Trump meðal annars.
Allnokkrir þingmenn Demókrata
hafa sagt rétt að ákæra Trump nú
til embættismissis. Nýliðarnir
Alexandria Ocasio-Cortez og Ilhan
Omar þar á meðal. Nancy Pelosi,
Demókrati og forseti fulltrúadeild-
arinnar, hafði hins vegar ekki enn
viljað tjá sig um hvort skýrslan gæfi
tilefni til slíkrar ákæru þegar Frétta-
blaðið fór í prentun.
Vilja skýrsluna
óritskoðaða
Skýrslan um rannsókn Roberts Mueller, sérstaks
saksóknara, á Rússamálinu birt á skírdag. Demó-
kratar kröfðust þess í gær að fá óritskoðaða útgáfu
en alls voru um tíu prósent skýrslunnar ritskoðuð.
www.sidferdisgattin.is
SIÐFERÐISGÁTTIN
Eflir vellíðan á vinnustað
Trump forseti er alls ekki sáttur. NORDICPHOTOS/AFP
2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
0
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:0
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
7
-1
6
6
4
2
2
D
7
-1
5
2
8
2
2
D
7
-1
3
E
C
2
2
D
7
-1
2
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
8
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K