Fréttablaðið - 20.04.2019, Page 16

Fréttablaðið - 20.04.2019, Page 16
Jæja, þannig að Einstein hafði rétt fyrir sér allan tímann? Sævar: „Já, þessi snillingur hefur óþolandi oft haft rétt fyrir sér. Það væri miklu skemmtilegra fyrir vísindin ef við fyndum út að hann hefði á röngu að standa. En hattur ofan, herra Einstein!“ Eru einhverjir svarnir andstæð- ingar afstæðiskenningarinnar í fýlu? Helgi Freyr: „Þeir láta í það minnsta ekki mikið í sér heyra, greyin. Það væri geggjað ef fólk lærði að það er bara best að viðurkenna það þegar maður hefur rangt fyrir sér. En svo má ekki gleyma að almenna afstæðiskenningin hefur enn ekki verið prófuð í mjög veiku þyngdar- sviði, til dæmis í snúningskúrfu vetrarbrauta (nöööördar!). Svo það er enn veik (haha) von andstæðinga Einsteins.“ Hvaða þýðingu hefur það að þessi ljósmynd er til? Kári: „Myndin er fyrst og fremst tækni- legt afrek, þökk sé samvinnu yfir 20 0 v ísi nd a- manna og átta sjónauka sem saman mynd- uðu einn risa- s jón au k a á stærð við Jörð- ina. My ndin er líka sýnileg staðfesting á því að svarthol eru raunveruleg, þótt enginn hafi svo sem efast um það fyrir enda staðfestu þyngdarbylgjur end a n lega t i lv ist þeirra.“ Hvað eru svarthol? Sæva r : „ Sva r t hol er u svæði í geimnum þar sem þyngdar- krafturinn er svo sterkur að ekk- ert sleppur burt, ekki einu sinni ljós. Svarthol þjappa ekki einungis saman rúminu sjálfu, heldur tím- anum líka, svo tíminn líður hægar í námunda við svarthol. Ef þú féllir inn í svarthol sæir þú tímann líða hraðar fyrir utan svart- holið. En svo myndir þú líka strekkjast og lengjast eins og spaghettí vegna f lóð- krafta, slitna í sundur og enda sem öreindaregn sem bætist við massa svartholsins.“ Eru til hvíthol? Helgi Freyr: „Hvíthol væru andstæða svarthols, efni kemur út um þau. Stærð- fræðin leyfir þau en við höfum aldrei fundið nein fyrirbæri í geimnum sem gætu verið hvíthol, svo hvíthol eru líklegast ekki til.“ Stjörnufræðingarnir þrír svöruðu glaðir spurningum ritstjórnar um himingeiminn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Meira á www.fréttabladid.is um sérstætt efni (strange matter) og fleira. Eru ormagöng til í alvöru? Kári: „Ormagöng eru styttri leið milli a og b í tímarúminu sem Ein- stein lýsir. Því miður virðast þau eingöngu vera til í skáldskap því við vitum ekki enn sem komið er um nein fyrirbæri sem geta búið til ormagöng. Hvort okkur tekst það einhvern tímann er ómögulegt að segja. Það þyrfti fáránlega mikla orku til.“ Af hverju er ekki löngu búið að finna upp vörpudrif svo við getum ferðast hraðar en á ljóshraða? Sævar: „Það strandar á tæknilegri getu mannsins, enn sem komið er. Vörpudrif snúast um að þjappa tímarúminu saman eins og laki og láta það skjóta sér á milli, án þess að brjóta í bága við þá reglu nátt- úrunnar að efni geti ekki ferðast hraðar en ljósið. Ef við hefðum slíka tækni gætum við þotið milli staða í Vetrarbrautinni eins og Kirk kaft- einn.“ Hvað eigum við eftir langan tíma á jörðinni? Helgi Freyri: „Miðað við hvað við förum illa með Jörðina og ef við ætlum að halda því áfram, þá á sam- félagið okkar ekki eftir mjög marga áratugi. Við höfum sennilega innan við tvo til að afstýra miklum hörm- ungum og vonandi tekst okkur það. Vísindasamstarf eins og Sjóndeild- arsjónaukinn er prýðisdæmi um að við getum allt ef við bara viljum og vinnum saman. En Sólin mun ekki enda líf sitt fyrr en eftir 5 milljarða ára svo við eigum enn sjens.“ Hvaða sci-fi þættir eru raunverulegastir? Kári: „Star Trek hefur senni- lega vinninginn að mestu leyti. Okkur langar samt að segja Fut- urama. Svartholið í kvikmyndinni Interstellar var hannað af stjarn- eðlisfræðingum svo það er mjög raunverulegt.“ Það var búið að reikna út hvernig myndin myndi líta út, áður en hún var framkölluð. Við virðumst komin langt í því að skilja betur gang alheimsins. Eða hvað? Sævar: „Já, myndin er næstum nákvæmlega eins og spár gerðu ráð fyrir fyrirfram. Það er magnað að sjá hversu vel við erum farin að skilja eðlisfræði í nágrenni svarthola. Við erum sannarlega á réttri leið með að skilja alheiminn.“ – kbg Tíminn líður hægar nærri svartholum Stjörnufræðingarnir Sævar Helgi Bragason, Kári Helgason og Helgi Freyr Rúnarsson héldu á dögunum fyrirlestur á vegum Stjarnvísindafélags Íslands og fræddu fólk um leyndardóma svart- hola. Ritstjórn Fréttablaðsins notaði tækifærið og lét rigna yfir þá spurn- ingum um undur geimsins. 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN 2 0 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :0 6 F B 0 8 0 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D 6 -F D B 4 2 2 D 6 -F C 7 8 2 2 D 6 -F B 3 C 2 2 D 6 -F A 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 8 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.