Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 30
Árið 2017 keyptu Íslendingar vörur frá erlendum netversl-unum fyrir 4,3 milljarða kr.
samkvæmt tollskráningu frá Emb-
ætti tollstjóra og tollafgreiðslu
Íslandspósts. Samanborið við
kaup frá innlendum netverslunum
fyrir 8,8 milljarða kr. á sama tíma.
Heildarvelta íslenskrar smásölu-
verslunar 2017 (án VSK) var 456,6
milljarðar kr. samkvæmt virðis-
aukaskattsuppgjöri Hagstofunnar.
Erlend netverslun 2017, að frá-
dregnum virðisaukaskatti, var 3,5
milljarðar kr. og nam því nálægt
0,8% af heildarveltu íslenskrar
smásöluverslunar.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í nýjustu skýrslu Rann-
sóknaseturs verslunarinnar um
íslenska netverslun. Íslendingar
keyptu vörur í netverslun fyrir
um 13,1 milljarð árið 2017. Vörur
sem keyptar voru frá útlöndum og
hafa einhverra hluta vegna ekki
farið í gegnum tollafgreiðslu eru
ekki meðtaldar. Því eru líkur á að
erlend netverslun sé heldur meiri
en tölurnar hér segja til um.
Raftæki eru sá vöruflokkur sem
mest er keyptur í netverslunum
hér á landi. Um 19% innlendrar
netverslunar fara fram hjá versl-
unum sem selja raf- og heim-
ilistæki. Um 10% netverslunar á
Íslandi 2017 voru fatakaup. Einnig
voru kaup á heimilisbúnaði um
10% netverslunar. Athyglisvert er
að aðeins 1% af netverslun er kaup
á bókum, tímaritum og hljóm-
diskum. Þessi vöruflokkur var
langstærstur við upphaf netversl-
unar og má ætla að mun meira
af netverslun með bækur sé að
stærstum hluta frá öðrum löndum.
Vert er að fylgjast með þróun á
netverslun með mat. Ársvöxtur
í sölu á mat á netinu er næstum
Íslendingar elska að kaupa
raftæki á netinu
Árið 2017 keyptu Íslendingar vörur frá erlendum netverslunum fyrir 4,3 milljarða kr. samkvæmt
tollskráningu frá Embætti tollstjóra og tollafgreiðslu Íslandspósts. Langmest kemur frá Bret-
landi. Raftæki eru sá vöruflokkur sem mest er keyptur í netverslunum hér á landi, eða um 19%.
www.aman.is
Tangarhöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 533 1020 • aman@aman.is
er okkar fag
Víngerð
Nýttu þér frábæra netverslun Ámunnar
www.aman.is
Íslendingar keyptu vörur í netverslun fyrir um 13,1 milljarð árið 2017. Hér er unnið í vöruhúsi AliBaba en Íslend-
ingar keyptu fyrir 440 milljónir það ár en um miðjan maí munu sendingar þaðan hækka. NORDICPHOTOS/GETTY
Sá vöruflokkur
sem Íslendingar
keyptu mest af
frá erlendum
netverslunum
2017 voru
föt og skór
eða 48% af
heildarveltu
þess varnings
sem Íslend-
ingar keyptu
frá erlendum
netverslunum
2017.
170%, þegar borin er saman velta
fyrri helming 2017 við sama tíma-
bil 2018.
Netverslun Íslendinga frá
útlöndum sex mánuði 2017 var 1,6
milljarðar kr. á tollverði (heildar-
verð 2 milljarðar kr.). Veltan fyrstu
sex mánuði 2018 var 1,8 milljarðar
kr. (heildarverð 2,2 milljarðar) og
jókst því um 13% á milli ára. Bret-
land er það land sem Íslendingar
versla mest við í netverslun, hvort
sem horft er til verðmætis eða
fjölda sendinga.
Árið 2017 keyptu landsmenn
vörur í netverslun frá Bretlandi
fyrir alls 785 millj. kr. (á tollverði).
Næst kemur netverslun frá Banda-
ríkjunum, en hún nam 661 millj.
kr. (tollverð) árið 2017. Í þriðja sæti
er svo Kína með netverslunarveltu
að upphæð 440 millj. kr. Fast á
hæla Kína koma Holland og Spánn
að vinsældum.
10%
netverslunar á Íslandi 2017
voru fatakaup.
19%
innlendrar netverslunar fara
fram hjá verslunum sem
selja raf- og heimilistæki.
Sá vöruflokkur sem Íslendingar
keyptu mest af frá erlendum net-
verslunum 2017 voru föt og skór
eða 48% af heildarveltu þess sem
Íslendingar keyptu frá erlendum
netverslunum 2017.
Íslendingar keyptu föt frá
erlendum netverslunum fyrir 22,2
milljarða kr. (tollverð) árið 2017.
Sú upphæð nemur 5,2% af því
sem innlendar sérverslanir með
föt seldu sama ár. Fatakaup frá
erlendum netverslunum jókst um
31,4% ef bornir eru saman síðustu
ársfjórðungar 2016 og 2017.
Mest af þeim fötum sem keypt
eru frá erlendum netverslunum
berst frá Bretlandi, næst koma
fatakaup frá spænskum netversl-
unum og í þriðja sæti voru Banda-
ríkin. Hlutfall erlendrar netversl-
unar frá þessum þremur löndum
nemur 3,1% af sölu fatnaðar í
verslunum hér á landi.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RNETVERSLUN
2
0
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:0
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
7
-3
4
0
4
2
2
D
7
-3
2
C
8
2
2
D
7
-3
1
8
C
2
2
D
7
-3
0
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K