Fréttablaðið - 20.04.2019, Side 53

Fréttablaðið - 20.04.2019, Side 53
Starfsmaður Amazon gengur um vöruganga fyrirtækisins. Flestar íslenskar netverslanir eru smáar í sniðum en geta orðið mun stærri, meðal annars með því að bóka fund með Jóni Trausta og teymi hans í Allra átta. Við erum að fá til okkar viðskipta- vini sem eru með net- verslanir sem af ein- hverjum ástæðum eru ekki að virka eins og vonir stóðu til og okkar verkefni er að hjálpa þeim að auka söluna á netinu með öllum til- tækum ráðum. Vefsíðugerð í meira en 15 ár Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og hefur verið á sömu kennitölu frá upphafi. Það byrjaði að smíða sitt eigið vefumsjónarkerfi sem Jón Trausti Snorrason, hjá Allra átta, talar enn fallega um en færði sig yfir í WordPress fyrir nokkrum árum. „WordPress er klárlega framtíðarvefkerfi,“ segir Jón Trausti. Meiri hraði, meiri sala Allra átta sérhæfir sig meðal annars í hraðabestun á netversl- unum. „Við höfum náð að auka hraða í netverslunum um allt að 350 prósent en það eru bein tengsl á milli hraða og sölu á netinu,“ segir Jón Trausti. Notendur vilja snögga verslunarferla og Google gefur hröðum verslunum meira vægi. Viðskiptavinir nenna lítið að bíða í dag og ef netverslunin er hæg þá eru meiri líkur en minni á að kúnninn hætti við. Lausnir á yfirgefnum körfum Allra átta býður upp á öflugri lausn við svokölluðu „Abandoned cart Problem“ vandamáli, en það er þegar notendur setja vörur í körfuna en klára svo ekki kaupin. „Við erum með sértæka aðferða- fræði og lausn við því og erum að ná að endurkynna valdar vörur fyrir væntanlegum kaupendum. Með þessari lausn erum við að ná að auka sölu um allt að 100 prósent og stundum meira. Það þarf oft lítið til. Þetta eru litlir söluhvatar á vörum sem við- komandi er sjálfur búinn að velja og það er ekki verið að ýta að við- komandi bara einhverjum vörum heldur vörum sem viðkomandi er spenntur fyrir. Þetta er að virka mjög vel.“ Hraður vöxtur í netverslun á íslandi Jón Trausti segir að það sé mikill vöxtur í netverslun á Íslandi, þó flestar verslanirnar séu enn frekar litlar. Trúlega séu það aðeins um 2-3 prósent netverslanna sem séu að selja fyrir meira en 100 millj- ónir á ári. „Við erum að fá til okkar við- skiptavini sem eru með netversl- anir sem af einhverjum ástæðum eru ekki að virka eins og vonir stóðu til og okkar verkefni er að hjálpa þeim að auka söluna á net- inu með öllum tiltækum ráðum.“ Dæmi um vel heppnað verkefni „Við fengum kúnna til okkar í október í fyrra sem var með stóra og mikla verslun og planið okkar var að tvöfalda söluna á einu ári. Við náðum því á einum mánuði. Kúnninn var að vonum ánægður og í framhaldi fórum við að vinna í leitarvélabestun og Google Adwords.“ Leitarvélabestun og auglýsingar á Google „Við hjálpum fyrirtækjum að verða sýnilegri á netinu, og gerum það með leitarvélabestun sem og Google Adwords herferðum, en þær gefa góðan árangur sé rétt að þeim staðið. Við hjálpum okkar kúnnum að fá meira fyrir sinn snúð og skora ofar í leitinni á Google. Okkar markmið er alltaf að hjálpa viðskiptavinum okkar að ná sem bestum árangri við sölu og kynn- ingu á netinu og notum við til þess öll helstu verkfærin og öflugustu fáanlegu vefkerfi hverju sinni.“ Hjálpum fyrirtækjum að auka sölu á netinu Allra átta er lítið fyrirtækið með stórt hjarta og mikla reynslu. Fyrirtækið sérhæfir sig í WordPress netverslun og allri tengdri þjónustu og veit upp á hár hvernig á að auka söluna hjá stórum sem smáum netverslunum. Dæmin sanna að Allra átta getur tvöfaldað söluna á rúmum mánuði. Jón Trausti og teymið hans á skrifstofunni í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 NETVERSLUN 2 0 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :0 6 F B 0 8 0 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D 7 -2 0 4 4 2 2 D 7 -1 F 0 8 2 2 D 7 -1 D C C 2 2 D 7 -1 C 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 8 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.