Fréttablaðið - 20.04.2019, Page 54
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 14-28
Fellsmúli 26 v/Grensásveg | 108 Reykjavík | sími 581-1552 | www.curvy.is
Frægasta netverslun veraldar er án efa Amazon sem stofnuð var 1994, þá undir nafninu
Cadabra, af Jeff Bezos. Í upphafi
seldi Amazon einungis bækur
en hóf síðar að selja ýmsar aðrar
vörur auk þess sem fyrirtækið
selur eigin spjaldtölvur og les-
spjöld. Eins og mörg heimsþekkt
tæknifyrirtæki af sömu kynslóð
hóf Amazon starfsemi í bíl-
skúrnum þaðan sem fyrsta bókin
var seld í apríl 1995. Salan fór vel af
stað en á fyrstu tveimur mánuðum
í rekstri seldi fyrirtækið bækur í
öllum 50 ríkjum Bandaríkjanna og
til 45 landa.
Fyrirtækjabragur Amazon
þykir nokkur sérstakur. Þannig
er bannað að nota PowerPoint-
kynningar á fundum þess og fjöldi
í vinnuhóp miðast við að hægt sé
að fæða meðlimi hans á tveimur
flatbökum.
Amazon
þekktust
Klaufavilla sem var að finna
í frumvarpi
Sigurðar Inga
Jóhannssonar,
samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra,
um erlendar póstsendingar varð
ekki að lögum. Fréttablaðið benti
á villuna í mars þegar Jóhann Óli
Eiðsson skrifaði um frumvarpið.
Yrði það að lögum fyrir maí væri
gert ráð fyrir að Íslandspóstur gæti
fengið inn 400 milljónir króna
strax á árinu 2019 frá neytendum.
Gildistökuákvæði laganna,
þar sem villuna var að finna, var
breytt af þinginu áður en það
samþykkti lögin þann 10. apríl.
Undanfarin ár hefur Íslandspóstur
tekið á sig kostnað vegna erlendra
sendinga en að mati fyrirtækisins
hefur það niðurgreitt sendingar
frá útlöndum um hátt í þrjá millj-
arða undanfarin ár. Frumvarpinu
er ætlað að „taka af öll tvímæli um
að íslensk lög gildi framar alþjóða-
samningum á þessu sviði“.
Lögin öðlast gildi 15. maí og má
búast við að sendingarkostnaður
muni hækka töluvert. Erlendar
póstsendingar sem stimplaðar
eru með dagstimpli erlendis fyrir
miðnætti að íslenskum tíma þann
dag er lögin taka gildi munu ekki
útheimta sérstakt gjald.
Eftir 15. maí munu hins vegar
allar sendingar hækka.
Klaufavillan
fjarlægð
Í upphafi árs skrifaði Ingvar Freyr Ingvarsson, aðalhagfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu,
pistil þar sem kemur fram að þrátt
fyrir öran vöxt netverslunar fer
enn stærsti hluti smásöluverslunar
fram í hefðbundnum verslunum.
Mikill uppgangur netverslunar
og breytt neysluhegðun aldamóta-
kynslóðarinnar er að umbylta
umhverfi verslunarinnar og felur í
sér ögrandi verkefni fyrir alla sem
starfa við verslun og þjónustu,
segir í pistli Ingvars. Hann bendir á
skýrslu Rannsóknaseturs versl-
unarinnar og tekur fram að kaup
Íslendinga um netið voru um 2,9%
af heildarveltu íslenskrar verslunar
á meðan algengt er að netverslun í
nágrannalöndum okkar nemi um
10% af heildarveltu.
Ingvar Freyr bendir á að á
Norður löndum er umfang netversl-
unar einna hæst í Svíþjóð. Ingvar
segir það mikilvægt og nauðsynlegt
að íslensk fyrirtæki nýti sér staf-
ræna tækni áður en erlendir keppi-
nautar stíga inn á markaðinn með
betri tilboð. Aukin hnattvæðing
þar sem samkeppnin um neyt-
andann er hörð skapar jafnframt
ný tækifæri. Breytingar í rekstr-
arumhverfi í verslun og þjónustu
kallar á breytta hugsun og breytt
vinnubrögð innan menntakerfisins
svo búa megi starfsfólk framtíðar-
innar undir nýjan veruleika, skrifar
Ingvar meðal annars en pistil hans
má finna á heimasíðu SVÞ.
Neysluhegðun unga fólksins breytir verslun
Ingvar Freyr
bendir á að á
Norðurlöndum
er umfang net-
verslunar einna
hæst í Svíþjóð
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Jeff Bezos hefur það alveg ágætt þó
að hann hafi klúðrað einkalífinu.
8 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RNETVERSLUN
2
0
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:0
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
7
-1
B
5
4
2
2
D
7
-1
A
1
8
2
2
D
7
-1
8
D
C
2
2
D
7
-1
7
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
0
s
_
1
9
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K