Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 56

Fréttablaðið - 20.04.2019, Síða 56
Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is ÚTIVIST Föstudaginn 26. apríl gefur Fréttablaðið út sérblaðið Útivist Í þessu glæsilega blaði verða skemmtileg viðtöl við allskonar fólk sem hefur smitast af útvistarbakteríunni. Fjallgöngur, hlaup, hjólreiðar eða skokk um göngustíga borgarinnar. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir: Arnar Magnússon sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5652 / arnarm@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir ð fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryg u þér gott uglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Norræna nemakeppnin í matreiðslu og fram-reiðslu fer fram í Hótel- og veitingaskólanum í Stokkhólmi dagana 26.-27. apríl nk. Þar munu nemendur takast á við fjölbreytt verkefni en matreiðslunemar munu matreiða fjóra rétti og fram- reiðslunemar framreiða fimm rétti að sögn Kjartans Marinós Kjartanssonar, matreiðslumanns og þjálfara matreiðslunemanna. Hann segir undirbúninginn fyrir keppnina hafa gengið vel en nemarnir hafa farið í gegnum stífa þjálfun á undanförnum vikum. „Ferlið hófst með nemakeppni í janúar en þar voru valdir tveir kokkanemar og tveir þjónanemar til þátttöku í keppninni ytra. Næst tók við stíft æfingaferli sem hefur m.a. innihaldið svokallaðar „item“ æfingar þar sem litlir þættir eru æfðir sérstaklega og þrjár æfingar með gestum, dómurum og tíma- töku.“ Þegar blaðamann og ljósmynd- ara bar að garði fyrr í vikunni stóð einmitt yfir þriðja og síðasta æfingin þar sem nemarnir mat- reiddu úr hráefni sem leyndist í svokallaðri leynikörfu. Hráefnið í þetta skiptið var lax og hörpu- skel, risotto og spergilkál, önd og seljurót og súkkulaði og appelsína og er óhætt að segja að réttirnir hafi smakkast afar vel. Taugastrekktur dagur Í keppninni munu framreiðslu- nemar keppa í helstu hæfnis- þáttum framreiðslustarfsins, s.s. þjónustu, að leggja á borð, vínsmakki, blöndun áfengra og óáfengra drykkja, pörun vína og matseðils, fyrirskurði, eldsteik- ingu og framreiðslu á sex rétta matseðli. Í matreiðslu er keppt í margvís- legum hæfniþáttum, s.s. í mis- munandi matreiðsluaðferðum, framsetningu á réttum, bragði og fleiri þáttum, segir Kjartan. „Matreiðslunemar munu fyrri daginn taka bóklegt próf og síðan matreiða blaðlaukssúpu fyrir sex manns, tólf bita amuse-bouche þar sem hráefnið er geitaostur og silungshrogn og grænmetisrétt fyrir sex manns þar sem unnið er með jarðskokka, gular baunir og epli. Seinni daginn vinna mat- reiðslu- og framreiðslunemarnir saman að verkefni dagsins sem er að setja upp mat- og drykkjarseðil fyrir fimm rétta máltíð en þann daginn vita þau ekki hvaða hráefni kemur upp úr körfunni sem gerir allt svolítið taugatrekkt.“ Fjölbreytt verkefni Kjartan er bæði þjálfari og liðs- stjóri kokkanemanna. „Meðal verkefna minna er að sjá um að leiðbeina og dæma á æfingum, aðstoða við innkaup og ýmislegt annað. Einnig sé ég um skipulag og utanumhaldið kokkamegin í keppninni. Þegar hópurinn er kominn út kem ég þeim af stað inn í keppnina en eftir það má ég ekkert skipta mér af þeim. Enda sjáum við þjálfararnir líka um að dæma í keppninni á móti öðrum dómurum.“ Strembnir dagar Keppendur í matreiðslu eru Gabrí- el Kristinn Bjarnason, nemi á Rad- isson SAS Hótel Sögu, en meistari hans er Ólafur Helgi Kristjánsson, og Wiktor Pálsson, nemi á Radis- son SAS Hótel Sögu, en meistari hans er Sigurður Helgason. Þjálfari þeirra er Kjartan Marinó eins og áður hefur komið fram. Í framreiðslu keppa þau Fanney Rún Ágústsdóttir, nemi hjá Bláa Strembnir en skemmtilegir dagar Einn for- rétturinn sem boðið var upp á síðasta æfinga- kvöldið var lax með aspas, kartöflumauki, hörpuskel og hvítvínssmjör- sósu. Matreiðslunemarnir tveir unnu vel saman og setja hér einn forréttinn á diska fyrir gesti. Kjartan Marinó Kjartansson matreiðslumaður er þjálfari matreiðslunem- anna sem keppa í Stokkhólmi um næstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fjórir mat- reiðslu- og fram- reiðslunemar keppa í Norrænu nemakeppninni í matreiðslu og framreiðslu sem fer fram í Stokk- hólmi um næstu helgi. Undanfarn- ar vikur hafa ein- kennst af stífum æfingum og mikil tilhlökkun ríkir í herbúðum kepp- enda. lóninu, en meistari hennar er Styrmir Örn Arnarson og Guðjón Baldur Baldursson, nemi hjá VOX á Hilton Nordica, en meistari hans er Ólöf Kristín Guðjónsdóttir. Þjálfarar framreiðslunemanna eru Julianna Laire og Trausti Víglunds- son. „Það styttist í keppnina þannig að páskarnir og næsta vika fara í að klára ýmis smáatriði hjá öllum keppendum. Hópurinn heldur svo út á fimmtudagsmorguninn en keppnin sjálf hefst snemma á föstudagsmorgun og stendur yfir í tvo daga. Þetta verður því ansi strembið en um leið svakalega gaman.“ 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 2 0 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :0 6 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 D 7 -0 7 9 4 2 2 D 7 -0 6 5 8 2 2 D 7 -0 5 1 C 2 2 D 7 -0 3 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 1 9 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.