Eiðakveðja - 01.09.1921, Page 13
9
vjer deyjum ef þú ert ei Ijós það og líf,
sem að lyftir oss duftinu frá;
ó, vert þú hvern morgun vort ljúfasta líf,
vor leiðtogi’ í daganna þraut,
og á kvöldin vor himneska hvíld og vor hlíf,
og vor hertogi’ á þjóðlífsins braut;
:,: íslands þúsund ár :,:
verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár,
sem þroskast á guðsríkis braut.
Ásmundur Guðmundsson.
Eiðamötið.
Undirbúningur.
Dagana 29. og 30. júní vann stjórn sambandsins að und-
irbúningi mótsins, bæði heima á Eiðum og úti í Eiðahólma.
Stúlkur þær, sem voru á vefnaðarnámskeiðinu, voru feng-
nartilþess að annast matreiðslu fyrir sambandsmenn, með-
an á mótinu stæði, og auk þess var gjört ráð fyrir að
kennarar skólans legðu til þann vinnukraft, sem þeir hefðu
ráð á, en sameiginlegt borðhald yrði með heimilum þeirra
og sambandsmönnum þeim, er mótið sæktu.
Stjórninni fanst sjálfsagt, að mótið yrði aðailega haldið í
Eiðahólma, ef veður leyfði. Ogtil þessaðmenn skyldu ekki
verða þar fyrir hrakningi, ef veður breyttist skyndilega, var
fengið að láni tjald hjá „Kvenfjelagi Vallahrepps“, flutt út
í hólmann og reist þar í rjóðri, grasi vöxnu.
Einnig voru kliptar hríslur og greinar, sem vaxið höfðu
inn í trjágöng þau, er liggja um hólmann, og fundarstaður-
inn, sem er í fögru rjóðri rjett við vatnið, var skrýddur eft-
ir föngum. Að þessum undirhúningi í hólmanum vann einnig
Halldór Pjetursson á Geirastöðum.
Enn fremur samdi stjórnin dagskrá fyrir mótið.