Eiðakveðja - 01.09.1921, Page 15

Eiðakveðja - 01.09.1921, Page 15
11 H. P,: Málið mikilsvert. Stjettarígur æfagamall, og hefir hann birtst og kemur enn fram í ýmsum myndum. Stjett- irnar þurfa að kynnast betur hver annari. Hver og einn skyldi stinga hendinni í eiginn barm, Iíta á málið hlutdrægn- islaust og útrýma fyrst og fremst öllum stjettaríg hjá sjálf- um sjer. Guðgeir Jóhannsson: Okkur er þörf á meiri samúð. Kali milli manna af ólíkum stjettum má ekki ríkja fyrir fram. Enginn skyldi hlaupa eftir lauslegum frásögnum, nje dæma eftir fyrstu sýn. Málsbætur finnast oft við athugun og rann- sókn. Einstaklingar beggja stjetta þurfa að rjetta hvorir öðrum hjálparhönd í lífsbaráttunni; þá eflist samúð milli stjettanna og rígurinn hverfur. Óskuðu þá eigi fleiri að taka til máls og var fundi slitið. Var því næst hlje í Ó/2 klst. Notaði hver þann tíma eftir eigin vild. Sumir gengu um skóginn og ræddust við, aðrir fóru á bát umhverfis hólmann og nokkrir syntu um stund í vatninu, því veður var hlýtt og sólbjart. Að lokum komu allir saman og drukku kaffi í rjóðri einu, sem ætlað er til kaffidrykkju og borðhalds þeim er sækja hólmann heim. Þegar hlje þetta var úti flutti Benedikt Blöndal erindi um Henry George. Á undan erindinu var sungið: „Þú bláfjallageimur" en á eftir: „Faðir andanna". Eftir erindið var hlje í 10 mínútur. Og því næst setti Á. G. annan málfund mótsins. Framsögumaður var Hannes J. Magnússon. Umræðuefni: Nauðsyn sjSsfstæðrar mentastarf- semi. Fer stuttur útdráttur úr erindi hans hjer á eftir. Á. 6. taldi víst að erindi framsögumanns mundi vekja hugsanir um mörg míkilvæg atriði. Samj^ykkur tillögu fram- sögumanns um bókaskrá. Skólinn ætti að halda áfram að vera í sem nánustu sambandi við nemendur og þeir við hann. Færði dæmi til sönnunar því, að íslendingar töluðu alt of lítið um andleg mál. Instu og hjartfólgnustu andans mál lytu í Iægra haldi fyrir því hversdagslega. Þjóðin mundi breytast og þroskast, ef þeim málum væru opnaðir fleiri

x

Eiðakveðja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eiðakveðja
https://timarit.is/publication/1329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.