Eiðakveðja - 01.09.1921, Síða 19

Eiðakveðja - 01.09.1921, Síða 19
15 hjúkrunarfjelaga eftir mætti, gæfu merki. Gjöröu það allir viðstaddir sambandsmenn. Þá var 10 mín hlje. Því næst var fundinum haldið áfram. Á. 6. mintist fyrst á rit sambandsins. Hafði hann aflað sjer vitneskju um kostnað við prentun þess og mundi hann nema 250—360 kr. Miklu ódýrara yrði að vjelrita það og hafði hann fengið loforð fyrir að það yrði gjört, ef fundar- menn væru því samþykkir. Þ. S.: Hefi hugsað mjer að ritið yrði boðið áskrifendum utan sambandsins. Þann veg gætu menn kynst anda þess og störfum, og þá yrði ritið tiltölulega ódýrara þótt prent- að væri. Á. G.: Hyggilegra að fresta slíkri útsölu, ekki síst fyrir þá sök, að þroski sambandsins er í vændum en ekki fenginn. Þá gjörði B. Bl. fyrirspurn um væntanlegar tekjur og út- gjöld fjelagsins og var því svarað af formanni þess og gjaldkera. 1 sambandi við þær fyrirspurnir óskaði Á. G. að rætt yrði um ferðastyrk þetta ár. Kom þá fram sú tillaga frá B. Bl. að enginn ferðastyrkur skyldi veittur þetta sinn. Var hún samþ. í einu hlj. Þá bar formaður sambandsins upp þessa tillögu frá H. M.: „Fundurinn felur stjórninni allar framkvæmdir um útgáfu ársritsins eftir fjárhagsástæðum sambandsins“. — Þá tók til máls Á. G.: Vil vekja frekari athygli á atriðinu um bókasafn í framsöguræðu H. M. frá í gær. Bóklestur getur verið ríkur þáttur í mentastarfsemi einstaklingsins. Hjer á landi tálmar honum tvent aðallega: fjárskortur og handahófsval á bók- um. Lestrarfjelög og góð alþýðubókasöfn eiga að bæta úr hvorutveggja. Mikla áherslu verður að Ieggja á bókavalið og á það, að glæða skilning á gildi góðra bóka. Samband- ið ætti að halda máli þessu vakandi. í ársritinu mun stjórn- in Iáta þeirra nýunga getið um iestrarfjelög og bókasöfn, er henni þykir miklu skifta. Og stutt bókaskrá mundi þar

x

Eiðakveðja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eiðakveðja
https://timarit.is/publication/1329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.