Eiðakveðja - 01.09.1921, Qupperneq 20
16
gjörð. Væri þá sjálfsagt æskilegra, að stutt ágrip fylgdi af
efni hverrar bókar.
B. Bl.: Erlend bókfræðirit flytja dálítinn útdrátt úr bókuni
þeim, er þau minnast á. Hefi loforð fyrir skrá yfir allar
bækur, sem gefnar eru út í Danmörku. Um aðrar bækur
erlendar verður að afla sjer vitneskju eítir föngum.
Á. G.: Tel mál þetta útrætt og vil því minnast á ýmislegt
sem sambandinu er nauðsynlegt að koma í framkvæmd,
áður langt iíður, svo sem að grisja og klippa skóginn hjer
í hólmanum, kaupa sjer stöng og fána, bát o. fl. Nú verð-
ur að láta sjer nægja að ræða um fyrirkomulag næsta móts.
B. Bl.: Aðkomumönnum er nauðsynlegt að hafa með sjer
lök, ullarteppi og svæfil. Hver maður ætti einnig að koma
með söngbók sína og sáhnabók.
Á. G.: Stjórnin hefir einmitt hið sama í huga og síðasti
ræðumaður, og rnun brýna það fyrir mönnum, að hafa með
sjer þessa hluti. Ennfremur óskar hún þess að sambands-
menn gjöri aðvart, ef þeir breyta um heimilisfang. Henni
þykir einnig æskilegt aö sjer verði tilkynt, ef einhverjir vita
það nokkru fyrir fram, að þeir geta ekki sótt mótið. Er
slíkt til hins mesta Ijettis við undirbúninginn, að vita nokk-
urn veginn hve margra sje að vænta. Vil loks mælast til
að stjórninni veitist heimild til þess að stytta að einhverju
ieyti greinar þær, sem sendar verða í ársritið og einnig
megi hún gjöra á þeim minni háttar breytingar, ef betur
jiykir fara. Æskilegt að heyra raddir manna um það, hvort
þessi tími árs mundi ekki heppilegastur fyrir mótin framvegis.
H. H.j Finst þessi tími ákjósanlegur. Þætti vænt um, ef
við yrði komið, að söngæfingar væru að vetrinum meðal
Eiðaskólanemenda í því skyni, að söngur yrði sem bestur
og fjölbreyttastur á mótunum.
Einar Þorsielnsscn; Kann vel allri tilhögun á þessu móti,
og geri mjer meiri vonir um framtíð sambandsins eftir þessa
tvo daga en áður. Hallast að því að sambandið taki þátt í
fáum málum, en leggi við þau því meiri rækt. Tel þennan