Fréttablaðið - 25.04.2019, Side 10

Fréttablaðið - 25.04.2019, Side 10
það er opið í öllum Pssst ... Krónu verslunum í dag Afgreiðslutímar á www.kronan.is G le ði legt sum ar! SKOTLAND Skotar munu undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf­ stæði frá Bretlandi fyrir maí 2021 hvort sem stjórnvöld í Lundúnum gefa leyfi fyrir slíku eður ei. Þetta sagði Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­ herra skosku heimastjórnarinnar, á skoska þinginu í gær. „Valið á milli útgöngu úr Evr­ ópusambandinu og sjálfstæðs Skotlands í Evrópusamstarfi ætti að vera lagt í dóm þessa þings á yfirstandandi kjörtímabili,“ sagði ráðherrann í ræðu sinni. Hún bætti því við að áætlað væri að frumvarp þess efnis yrði skrifað fyrir árslok og að á þessu stigi væri ekki þörf á samþykki stjórnvalda í Lundúnum. Það yrði hins vegar nauðsynlegt síðar. Skotar fengu að halda atkvæða­ greiðslu um sjálfstæði árið 2014 eftir rúmlega 300 ára sambúð með öðrum þjóðum Bretlands. Svo fór að 44,7 prósent Skota sögðu já við sjálfstæði en 55,3 prósent nei. En þótt enginn meirihluti hafi verið fyrir sjálfstæði þá, og ekki heldur nú samkvæmt könnunum, vilja Skotar ólmir vera í Evrópusam­ bandinu. 51,89 prósent Breta samþykktu sumarið 2016 að ganga út úr ESB. 48,11 prósent lögðust gegn útgöngu. Myndin var hins vegar öðruvísi á Skotlandi. Alls greiddu 38 prósent Skota atkvæði með útgöngu en 62 prósent gegn. Sturgeon sagði í ræðu sinni að valið stæði nú á milli þess að þok­ ast út á  jaðar alþjóðastjórnmála með Bretum eða standa vörð um stöðu Skotlands sem Evrópuþjóðar með því að lýsa yfir sjálfstæði. – þea Vilja aðra atkvæðagreiðslu um sjálfstætt Skotland Valið á milli út- göngu úr Evrópu- sambandinu og sjálfstæðs Skotlands ætti að vera lagt í dóm þessa þings á yfirstandandi kjörtímabili. Nicola Sturgeon ÚKRAÍNA Hveitibrauðsdagar Volod­ íjmíjrs Selenskíj eftir að hann bar sigur úr býtum í forsetakosning­ unum í Úkraínu á sunnudag voru ekki margir. Vladímír Pútín Rússaforseti undirritaði í gær tilskipun um að einfalda skyldi íbúum þess svæðis í Austur­Úkraínu sem aðskiln­ aðarsinnar halda í Donbass að öðlast rússneskt vegabréf. Rússar hafa ítrekað verið sagðir aðstoða aðskilnaðarsinnana. Fram á það hafa rannsóknir Reuters til að mynda sýnt. Þá hafa myndir í gegn­ um tíðina birst á samfélagsmiðlum þar sem rússneskir hermenn virðast staddir í Úkraínu. Pútín sagði tilskipun sína ekki undirritaða með það í huga að valda verðandi leiðtoga Úkraínu vand­ ræðum. „Frekar til þess að leysa úr þeim vanda að fólk í Donetsk og Lúhansk fær ekki að njóta mann­ réttinda sinna.“ Petro Porosjenko, fráfarandi for­ seti, og Selenskíj fordæmdu báðir ákvörðun rússneskra stjórnvalda. Porosjenko sagði að með þessu væri brotið gegn alþjóðalögum. „Rússar eru að skemma fyrir friðarumleit­ unum í Donbass,“ sagði Porosjenko. Forsetinn fráfarandi bætti því við að Rússar væru að reyna að réttlæta veru rússneska hersins í Austur­ Úkraínu. Hann fór einnig fram á að viðskiptaþvinganir gegn Rússum yrðu hertar vegna málsins. Selenskíj, sem er algjör nýgræð­ ingur á sviði stjórnmála fyrir utan að hafa leikið forseta Úkraínu í gamanþáttum, tók í sama streng. „Við treystum á aukinn pólitískan þrýsting og þvinganir gegn Rúss­ landi. Rússland hefur með þessu viðurkennt að það sé hernámsríki,“ sagði í yfirlýsingu frá verðandi for­ seta. Pavlo Klimkin, utanríkisráð­ herra Úkraínu, sagði á Twitter að í ákvörðuninni fælist árásargirni gegn Úkraínu og afskipti af innan­ ríkismálum. Hann hvatti því Úkra­ ínumenn á svæðinu til þess að sækja ekki um rússneskt vegabréf. Samband Rússlands og Úkraínu hefur verið með versta móti allt frá því Viktor Janúkovítsj, forseti Úkra­ ínu, hrökklaðist frá völdum árið 2014 eftir stíf mótmæli. Janúkovítsj naut stuðnings rússneskra stjórn­ valda. Í kjölfar mótmælanna innlimuðu Rússar hinn úkraínska Krímskaga. Átök brutust út í Donbass á milli aðskilnaðarsinna sem vildu náið samband við Rússa og úkraínska herinn. Þessi átök og meint aðstoð rússneskra yfirvalda við aðskilnað­ arsinna varð til þess að Vesturlönd komu á þvingunum gegn Rússlandi. Selenskíj hefur heitið því að Úkraína muni áfram stóla á sam­ starf við Vesturlönd. The New York Times metur stöðuna sem svo að hann sé þó ekki jafnmikill vestur­ landasinni og fyrirrennarinn. thorgnyr@frettabladid.is Forsetar Úkraínu foxillir út í Pútín Vladímír Pútín auðveldar Úkraínumönnum á svæði uppreisnarmanna í Donbass að fá rússnesk vegabréf. Verðandi og fráfarandi for- setar Úkraínu gagnrýna ákvörðunina harðlega og krefjast frekari þvingana. Erfitt verkefni bíður hins reynslulausa verðandi forseta. Rússlandsforseti sagðist ekki ætla sér að klekkja á Selenskíj. NORDICPHOTOS/AFP Þóttust vera Selenskíj Öllu vægara vandamál fyrir Selenskíj kom upp í Frakklandi í gær. Rússnesku hrekkjalómarnir Vladímír Kúsnetsov og Alexeí Stolíjarov, sem kalla sig alla jafna Vovan og Lexus, birtu fimmtán mínútna upptöku á YouTube. Á upptökunni mátti heyra þá Vovan og Lexus þykjast vera Selenskíj og ná þannig beinu sambandi við Emmanuel Macron, forseta Frakklands. Starfsmaður franska forseta- embættisins vildi ekki tjá sig um upptökuna í samtali við Reuters. Sagði að embættið myndi hvorki staðfesta né hafna því að upptakan væri ósvikin. Vovan og Lexus eru engir nýgræðingar þegar kemur að því að hrekkja fræga fólkið. Þeir segjast til dæmis hafa hrekkt forseta Tyrklands, Elton John, forsætisráðherra Kósóvó, Boris Johnson og Jean-Claude Juncker. 2 5 . A P R Í L 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 5 -0 4 -2 0 1 9 0 7 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 D B -5 9 9 4 2 2 D B -5 8 5 8 2 2 D B -5 7 1 C 2 2 D B -5 5 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 7 2 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.