Morgunblaðið - 10.01.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2019
KJARAKAUP
4.690.000 kr.
Eclipse Cross Intense 1.5 / 4x4 / Bensín / Sjálfskiptur
Fullt verð:
4.990.000 kr.
300.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP
5.155.000 kr.
VW Tiguan Offroad 1.4 TSI 4Motion / Bensín / Sjálfskiptur
Fullt verð:
5.955.000 kr.
800.000 kr.
Afsláttur
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Byrjaðu árið á nýjum bíl!
Nú færðu nýja bíla á frábærum kjörum hjá HEKLU. Komdu og
skoðaðu úrvalið, prófaðu þann rétta og gerðu kjarakaup ársins.
Hlökkum til að sjá þig!
Veldu þinn bíl
í sýningarsal
okkar á netinu!
www.hekla.is/kjarakaup
Skoðaðu úrvalið af bílum á www.hekla.is/kjarakaup. Takmarkað magn bíla – Fyrstir koma, fyrstir fá!
Fullt verð er verð hvers bíls með aukabúnaði. Aukabúnaður á myndum gæti verið annar en í auglýstum verðdæmum. Birt með fyrirvara um prentvillur
2 ára
þjónustu-
skoðun
fylgir með!
Dráttarbeisli
fylgir með!
Hin mikla bygging við Fiskislóð á
Granda, sem mun hýsa sýninguna
Flyover Iceland, er smám saman að
taka á sig mynd. Stefnt er að opnun
sýningarinnar seinni hluta næsta
sumars.
Miklum tækjabúnaði verður kom-
ið fyrir áður en húsið verður full-
klárað, en kostnaður við hann
skiptir milljörðum. Á meðal bún-
aðarins er skjár frá Austurríki sem
er 17 sinnum 20 metrar að breidd
og hæð og 40 sæti sem færast í átt
að honum.
Sýndarupplifunin mun taka tæpa
klukkustund og sjálft „flugið“ yfir
Ísland um 10 mínútur.
sisi@mbl.is
„Flugið“
fæðist
Morgunblaðið/sisi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hafin er bygging nýrrar slökkvi-
stöðvar fyrir Slökkvilið Norðurþings
á uppfyllingu við höfnina á Húsavík.
Starfsemi slökkviliðsins hefur verið
efld til að það geti þjónað kísilverk-
smiðju BakkaSilicon hf. norðan
Húsavíkur og liður í því er að stað-
setja nýja slökkvistöð við enda Húsa-
víkurhöfðaganga sem liggja frá höfn-
inni inn á iðnaðarsvæðið.
„Það hefur aldrei verið byggt utan
um þessa starfsemi. Með tilkomu
stóru verksmiðjunnar í bakgarðinum
hjá okkur varð að efla starfið. Það
hefur verið gert. Aðstöðusköpun er
liður í þeirri uppbyggingu til fram-
tíðar,“ segir Grímur Kárason slökkvi-
liðsstjóri.
Fjölgað hefur verið í slökkviliðnu
þannig að þar eru nú þrír fastir
starfsmenn auk starfsmanna í hluta-
störfum sem koma í einstök verkefni.
Slökkviliðið mannar annan af tveim-
ur sjúkrabílum Heilbrigðisstofnunar
Norðurlands á Húsavík. Samið hefur
verið við Heilbrigðisstofnunina og
starfsmenn hennar sem manna hinn
bílinn um að taka bakvaktir hjá
slökkviliðinu. Þeir eru nú í grunn-
námi fyrir slökkviliðsmenn. Grímur
segir að stefnan sé að vera með fimm
menn á dagvakt og fimm á bakvakt.
Húsið er rúmlega 1.000 fermetrar
að stærð. Liðlega 300 fermetrar eru
fyrir skrifstofur og aðra aðstöðu fyrir
starfsfólk og bílasalurinn er rúmir 700
fermetrar. Starfsmenn hafnarskrif-
stofunnar fá inni í slökkvistöðinni fyrir
sig og mengunarvarnabúnað. Mögu-
leikar eru á því að byggja ofan á hluta
hússins, ef þörf verður á í framtíðinni.
Slökkviliðið er einnig með deildir á
Kópaskeri og Raufarhöfn.
Samningur við BakkaSilicon hf.
um viðbragðsþjónustu fyrir iðnaðar-
svæðið losar fyrirtækið undan því að
reka eigið slökkvilið. Með því að
fjölga starfsfólki og staðsetja nýja
slökkvistöð við jarðgöngin er hægt að
stytta viðbragðstímann mjög. Bakk-
iSilicon greiðir slökkviliðinu fyrir
þessa þjónustu.
Bygging slökkvistöðvar hefur ver-
ið nokkur ár í undirbúningi. Þegar
verkið var boðið út á síðasta ári barst
ekkert tilboð. Grímur segir að það
skýrist af þeim miklu önnum sem hafi
verið hjá byggingarfyrirtækjum á
Húsavík og nágrenni síðustu ár.
Engin tilboð bárust
Bæjarstjórn Norðurþings ákvað
að ganga til samninga við Trésmiðj-
una Rein um framkvæmdir á dögun-
um og eru framkvæmdir hafnar.
Verksamningurinn víkur ekki í veiga-
miklum atriðum frá skilmálum sem
fram komu í útboðsgögnum og fjár-
hæðin lítið eitt yfir kostnaðaráætlun,
að því er fram kemur í fundargerð
framkvæmdaráðs Norðurþings. Fyr-
irtækið byggir húsið fyrir 247 millj-
ónir króna. Að auki fellur til undir-
búningskostnaður sem Norðurþing
hefur lagt í.
Grímur segir að verklok séu áætl-
uð í lok ágúst.
Þjónar Húsvíkingum og kísilveri
Ný slökkvistöð byggð á uppfyllingu í höfninni á Húsavík Samningur um viðbragðsþjónustu
fyrir kísilverið á Bakka Samið við verktaka eftir misheppnað útboð byggingarframkvæmda
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Framkvæmdir Starfsmenn Reinar vinna að því að steypa saman forsteyptar einingar í sökkla skrifstofuhlutans.
Héraðssaksóknari hefur ákært
karlmann á þrítugsaldri fyrir að
ráðast í tvígang gegn lögreglu-
mönnum með ofbeldi. Þar að auki
er hann ákærður fyrir að hafa haft
á sér ávana- og fíkniefni. Mun mað-
urinn hafa veist með ofbeldi að lög-
reglumönnum í nóvember 2017 og í
janúar 2018. Við leit á klæðum hans
eftir fyrri handtökuna fundust
ávana- og fíkniefni. Í nóvember
2017 mun maðurinn hafa veist að
lögreglumanni, sem sat í farþega-
sæti lögreglubifreiðar, og reynt að
slá hann með krepptum hnefum og
hótað honum líkamsmeiðingum.
Í janúar 2018 veittist hann með
ofbeldi að lögreglumanni við
skemmtistað og klóraði hann í
framan og reyndi að slá hann.
Ákærður fyrir að
veitast með ofbeldi
að lögreglumönnum