Morgunblaðið - 11.02.2019, Page 11
öðrum lögreglubíl frá lögreglustöð-
inni við Vínlandsleið þegar téðri bif-
reið var ekið til móts við lögreglu og
var bifreiðin stórskemmd. För við-
komandi var stöðvuð og ökumaðurinn
handtekinn, grunaður um ölvun við
akstur. Lögreglumenn frá Vínlands-
leið fluttu manninn til sýnatöku en
lögreglumenn á bíl 108 sáu um vett-
vanginn, mynduðu hann og biðu eftir
dráttarbíl frá Vöku.
Nokkuð var um skemmtanalíf í
miðbænum þessa nótt og sinnti lög-
reglubíll 108 fyrst og fremst verk-
efnum í miðbænum frá klukkan þrjú.
Þar reyndi oft á þolinmæði lögreglu-
mannanna sem tóku á málum af mik-
illi fagmennsku og yfirvegun, að mati
blaðamanns, en lögreglumennirnir
urðu fyrir ítrekuðu áreiti eftir að í
bæinn var komið. Þeir gáfu sér tíma í
að tala fólk til og róa, án þess að grípa
til frekari aðgerða, sem í allflestum
tilfellum reyndist nóg til þess að róa
ástand sem annars hefði getað farið
verr. Stefán segir við blaðamann að
lögregla forðist í lengstu lög að hand-
taka fólk án þess að gefa því færi á að
koma sér í burtu.
Afskipti af ofdrukknum ungum
konum vöktu sérstaklega athygli
blaðamanns, en í öllum tilfellum voru
þær einar á ferð. Þau mál voru öll
leyst á farsælan hátt í samráði við
stúlkurnar, þeim ýmist komið í sam-
band við vini sína, veitt fylgd að leigu-
bíl eða skutlað heim að dyrum sökum
ástands síns.
01:35 Lögreglu berst tilkynning frá vegfaranda í Mosfellsbæ um ökumann í
annarlegu ástandi sem hafði ekið bifreið sinni utan vegar í Tangahverfi í
Mosfellsbæ. Bíll 108 svaraði útkallinu á Sæbraut í Reykjavík og var kominn
í Mosfellsbæ 10 mínútum síðar þar sem ölvaði ökumaðurinn kom akandi á
móti lögreglu í suðurátt. Bíll frá lögreglustöðinni Vínlandsleið var kominn á
sama tíma og handtók manninn og færði í sýnatöku.
03:46 Lögreglubíll óskar eftir aðstoð fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykja-
víkur. Þegar bíllinn mætir á vettvang eru tveir lögreglumenn með manninn í
tökum og búið að tryggja ástandið. Maðurinn sagður hafa látið ófriðlega í röð
inn á skemmtistaðinn og lent í útistöðum við annað fólk í röðinni.
02:00 Stefán og Róbert mynda vettvang. Maðurinn ók bifreið sinni á móti
umferð í hringtorginu og hafnaði utan vegar á rafmagnskassa sem var gjör-
eyðilagður. Veitum tilkynnt um málið sem sendu strax viðgerðarmann.
03:56 Bíll númer 108 flytur manninn á Hverfisgötu í handjárnum þar sem
helstu upplýsingar um hann eru skráðar áður en honum var sleppt. Lög-
regla hvatti manninn til þess að segja þetta gott af skemmtun um kvöldið og
taka leigubíl heim til sín, sem hann hugðist gera, enda í miklu uppnámi og
miður sín yfir að hafa lent í útistöðum sem leiddu til handtöku.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2019
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Dermapen
Vinnur á örumog hruk
kum
Láttu fagfólkið á Húðfegrun sjá um þína húð á nýju ári!
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökum vel ámóti ykkur
hudfegrun.is