Morgunblaðið - 11.02.2019, Side 32

Morgunblaðið - 11.02.2019, Side 32
Hin margverðlaunuða litháíska tón- listarkona Jurga kemur fram á tón- leikum í Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20. Með henni leikur Diana Enciede á Klais-orgel kirkjunnar og flytja þær verk eftir eftir J.S. Bach, Vi- valdi, Händel og Mozart, auk laga eftir Jurga sjálfa. Með tónleikunum vilja listakonurnar sýna Íslend- ingum þakklæti fyrir að hafa verið fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Litháens í febrúar 1991. Kunn litháísk söng- kona í Hallgrímskirkju MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 42. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Gróttumenn eru ekki af baki dottnir í Olís-deild karla í handknattleik. Þeir unnu í gær leik í fyrsta sinn síðan í október er þeir tóku á móti KA og lyftu sér þar með úr botn- sæti deildarinnar. Fram tapaði fyrir Haukum og rekur lestina. FH komst upp í þriðja sæti með sigri á Stjörn- unni og Afturelding vann Akureyri með átta marka mun, 30:22. »4 Gróttumenn eru ekki af baki dottnir ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Guðni Bergsson verður formaður KSÍ næsta kjörtímabil. Þetta varð ljóst eftir yfirburðasigur hans á Geir Þorsteinssyni í formannsslag þeirra á 73. ársþingi KSÍ sem fór fram á Hilton Reykjavík Nordica á laugardaginn. Fulltrúar félaganna innan KSÍ kusu og fékk Guðni 119 af 147 at- kvæðum en Geir fékk aðeins 26 at- kvæði. „Ég er fullur auðmýktar, ánægju og stolts yfir að fá umboðið til næstu tveggja ára,“ sagði Guðni m.a. eftir að hann hafði verið endur- kjörinn. »6 Guðni kjöldró Geir í formannskjörinu TRATTO model 2811 L 207 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,- L 145 cm Leður ct. 10 Verð 319.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla SAVOY model V458 L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 310.000,- L 223 cm Leður ct. 10 Verð 435.000,- ESTRO model 3042 L 164 cm Áklæði ct. 70 Verð 229.000,- L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 249.000,- RELEVE model 2572 L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 315.000,- L 250 cm Leður ct. 15 Verð 459.000,- MENTORE model 3052 L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 335.000,- L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 365.000,- Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Þorrablótið á laugardaginn var al- gjört æði og stóð yfir í sólarhring hjá þeim sem búa utan miðbæjar Krist- ianstad og þurftu að gista í bænum,“ segir Kristín Jóna Guðjónsdóttir, formaður Íslend- ingafélagsins í Suður-Noregi. Kristín Jóna tók við for- mennsku í félag- inu á síðasta aðal- fundi en hafði áður setið í stjórn þess. Hún hefur búið í sjö ár í Noregi ásamt eigin- manni og dóttur. Félagssvæði Íslendingafélagsins í Suður-Noregi er Austur- og Vestur- Agderfylki. Nokkrir Íslendingar bú- settir í Osló og Stavanger, sem ekki tilheyra félagssvæðinu, lögðu land undir fót til þess að mæta á blótið. Að því er Kristín Jóna veit best eru þrjú önnur virk Íslendingafélög í Noregi; í Osló, Stavanger og Bergen, en þorrablót eru einnig haldin í Stav- anger og Osló. „Við erum eina Íslendingafélagið sem ekki er með félagaskrá eða fé- lagsgjöld. Það má segja að við rekum félagið með ágóða af þorrablótinu og nýtum hann til þess að halda 17. júní- skemmtun, jólaball, fjölskyldu- skemmtun, gönguferðir og aðalfund. Við erum orðin norsk að því leyti að við tökum með okkur nesti þegar við hittumst nema á 17. júní og þorra- blótinu og eigum erfiðara með að mæta á 17. júní-hátíðahöld ef það rignir,“ segir Kristín Jóna hlæjandi. Hún telur að 30 til 70 manns taki alla jafna þátt í viðburðum Íslendinga- félagsins í Suður-Noregi. 71 mætti á þorrablótið en undirbúningur var í höndum stjórnarinnar sem sá um að sjóða hangikjötið og búa til rófu- stöppu, kartöflumús og uppstúf. „Við fengum matinn frá Kjarna- fæði og það var sérstaklega talað um hversu góður hann var. Húsið var opnað sjö og borðhaldið hófst hálf- átta. Það áttu margir mjög erfitt með að bíða því löngunin í hákarl og súr- mat var nánast óbærileg,“ segir Kristín og bætir við að dúettinn Igló, með varaformanni Íslendingafélags- ins, Kollu Kvaran, og eiginmanni hennar, Tómasi Þráinssyni, hafi skemmt gestum og þegar kom að fjöldasöng hafi Kristín ásamt eigin- manni sínum, Þráni Óskarssyni, bæst í hópinn. „Það má segja að stjórnin sé allt í öllu hvað viðkemur þorrablótinu en við fengum líka til liðs við okkur diskótekarann Skjöld Eyfjörð, sem rekur skemmtanafyrirtæki í Stav- anger. Hann var frábær í veislu- stjórn og kom okkur skemmtilega á óvart sem flottur söngvari. Diskótek- ið var líka í hans höndum og mikið stuð. Þá má ekki gleyma happdrætt- inu eða „lodd“ eins og sagt er í Nor- egi þar sem margir góðir vinningar voru í boði, þar á meðal tveir miðar á næsta þorrablót,“ segir Kristín. Hún veit ekki hversu margir Íslendingar búa á svæðinu því erfitt er að ná sam- bandi við þá sem fluttu út fyrir tíma samfélagsmiðla. Kristín segir sam- félagsmiðlana færa Ísland nær Nor- egi. Ljósmynd/ Íslendingafélagið í Suður-Noregi Íslenskt Íslendingar búsettir í Suður-Noregi skemmtu sér vel á þorrablóti í Kristianstad þar sem súrmatur, hákarl og hangikjöt með tilheyrandi meðlæti rann ljúflega niður. Veislustjórinn Skjöldur Eyfjörð hélt uppi stuðinu. Löngunin í súrmat og há- karl var nánast óbærileg  Stuð á þorrablóti Íslendingafélagsins í Suður-Noregi Kristín Jóna Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.