Morgunblaðið - 04.03.2019, Side 6

Morgunblaðið - 04.03.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2019 TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þegar Auðunn Freyr Ingvarsson hætti sem framkvæmdastjóri Félagsbústaða sl. haust hafði verið megn óánægja með störf hans fyrir félagið. Birtist sú óánægja í könnun sem Maskína gerði meðal starfs- manna. Kvaðst mikill meirihluti svarenda ósáttur við framkvæmda- stjórann. Auðunn Freyr var ráðinn fram- kvæmdastjóri í desember 2013 og lét af störfum í október síðastliðnum. Greindi hann samstarfsmönnum sínum frá starfslokum í starfsmanna- ferð. Kvaðst hann vilja axla ábyrgð á störfum sínum. Hafði þá mikið verið fjallað um framúrkeyrslu við endur- gerð 52 íbúða í eigu Félagsbústaða á Írabakka. Félagið óskaði eftir úttekt Eftir að Auðunn Freyr var hættur störfum kom tilkynning frá Félagsbú- stöðum þar sem rifjað var upp að í maí 2016 hefði stjórn og framkvæmdastjóri Félagsbústaða óskað eftir því við innri endurskoðun Reykjavíkurborgar að hún gerði úttekt á viðhaldsverkefni fé- lagsins við Írabakka 2-16 árin 2012- 2016. „Fyrir lá að ýmsar brotalamir höfðu verið á framkvæmd og skipulagi verk- efnisins … Heildarkostnaður Fé- lagsbústaða vegna þessara fram- kvæmda reyndist að lokum 728 milljónir króna sem er 330 milljónir króna umfram þær heimildir sem stjórnin veitti á framkvæmdatíman- um,“ sagði m.a. í tilkynningunni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins átti brotthvarf Auðuns Freys sér dýpri rætur en skýrast af fram- úrkeyrslu við einstök verkefni. „Það var almenn óánægja með störf hans gagnvart starfsmönnum. Það hafði verið mikil hreyfing á starfsfólki,“ sagði maður sem þekkir málið. Hann segir starfsmenn Félagsbústaða í tíð Auðuns Freys hafa hætt af þremur ástæðum. Í fyrsta lagi fyrir aldurs sak- ir. Í öðru lagi vegna þess að þeim buð- ust önnur störf og í þriðja lagi vegna erfiðleika í samskiptum við Auðun Frey. Þeir hafi verið látnir fara. Með því hafi reyndir starfsmenn horfið á braut. Óánægjan hafði gerjast „Opinber ástæða þess að Auðunn Freyr hætti var þetta Írabakkamál. En á undan hafði heilmikil óánægja gerjast meðal starfsfólks. Allflestir starfsmenn voru óánægðir með störf hans hvað varðaði samstarfið. Það efast enginn um færni hans og mennt- un. Samskiptin voru hins vegar ekki hans sterka hlið. Fulltrúi Maskínu not- aði þau orð á starfsmannafundi að Auðunn væri klaufi í mannlegum sam- skiptum. Undir það gat starfsfólk tek- ið,“ sagði viðmælandinn. „Fulltrúi Maskínu kynnti Auðuni Frey niðurstöðu könnunarinnar og síð- an kom hann á fund okkar. Flestu starfsfólki fannst hann hvorki sýna iðr- un né sannfærandi afsökunarbeiðni. Þó viðurkenndi hann að hafa gert ýmis mistök. Margir í borgarkerfinu vissu af þessum vandamálum. Við skömmuð- umst okkar stundum fyrir framkomu hans.“ Hættu vegna stjórnandans  Mikil ólga var innan Félagsbústaða  Vitneskja um málið í borgarkerfinu Auðunn Freyr Ingvarsson Arnarlax er að byggja upp og nú- tímavæða seiðastöð sína, Bæjar- vík í Tálknafirði. Eftir stækkun mun verða unnt að framleiða þar um tvær milljónir seiða til að setja út í kvíar Arnarlax í fjörð- um Vestfjarða. Nú er unnið að því að byggja fjögur 500 lítra eldisker fyrir eldi stærstu seiðanna. Byggt verður yfir kerin. Áætlað er að taka þennan nýja hluta stöðvarinnar í notkun eftir næstu mánaðamót. Á þessu ári er áformað að byggja yfir alla stöðina. Þá verður byggt smáseiðahús þar sem verður klakstöð og smáseiðaeldi. Arn- arlax hefur hætt notkun eldri keranna. Gera stöðina öruggari „Við erum að taka næsta skref í uppbyggingu eldisins. Erum að hlúa að seiðaeldinu til að geta framleitt heilbrigð og hraust seiði og gera stöðina eins örugga gagnvart hættu á sjúkdómum og unnt er,“ segir Garðar Sigþórs- son, stöðvarstjóri í Bæjarvík. Ekki verður breyting á eðli stöðvarinnar. Áfram verða fram- leidd um 100 gramma seiði. Arnarlax er einnig aðili að seiðastöð Ísþórs í Þorlákshöfn. Þá stöð er einnig verið að stækka til þess að fyrirtækið hafi næg seiði til að framleiða þann lax í sjókví- um sem það hefur leyfi fyrir. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Steypt Unnið við byggingu fjögurra kera. Stálkerin voru sett upp fyrir tveimur árum. Byggt verður yfir stöðina. Arnarlax uppfærir og stækkar seiðastöðina Ekki fundust neinar vísbendingar um það hvar bíll Páls Mars Guðjónssonar er niðurkominn við umfangsmikla leit á og við Ölfusá um helgina. Talið er að Páll hafi ekið bíl sínum út í ána við Selfoss síðastliðið mánudags- kvöld. 40-50 björgunarsveitarmenn af suðvesturhorni landsins leituðu, frá Rangárvallasýslu til Dalabyggðar. Alla vikuna komu alls 317 menn að leitinni. Aðallega voru notaðir bátar á ánni en einnig hefur um helgina verið leitað með drónum og á völdum stöð- um við ána. Gunnar Ingi Friðriksson, stjórn- andi aðgerðarinnar, telur að leitað hafi verið mjög vel. Leitarsvæðið var stækkað. Farið var alla leið niður að Óseyrarbrú sem er um 16 kílómetrar en áður var leitað á 9 kílómetra svæði neðan Selfoss. Framhald leitarinnar hefur ekki verið ákveðið, að sögn Gunnars. Lík- lega verður eftirlit á líklegustu stöð- um. Þá er Lögreglan á Suðurlandi og fleiri stofnanir og félög að undirbúa leit í gjánni neðan við Ölfusárbrú, þar sem bíllinn fór út í, og nota til þess fjölgeislamæli. helgi@mbl.is Engar vísbendingar fundust við umfangs- mikla leit í og við Ölfusá um helgina Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Á undanförnum árum hafa komið upp tilvik þar sem innfluttir notaðir bílar sem hafa verið seldir hér á Ís- landi voru keyrðir mun meira en kílómetramælir þeirra sýndu. Nýlegt dæmi sem Morgunblaðinu er kunnugt um varðar einstakling sem flutti inn Mercedez Benz-bifreið frá Evrópu sem sögð var keyrð undir 100 þúsund kílómetrum. Þegar farið var með bílinn í þjónustuskoðun á viðurkenndu verkstæði hér heima kom hins vegar í ljós að aksturstölva bílsins sagði hann ekinn um 300 þús- und kílómetra. Jón Trausti Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Öskju og formaður Bílgreinasambandsins, segir að til- vik sem þessi séu þekkt þar sem ein- staklingar hafi keypt notaða bíla er- lendis og flutt til landsins. Tilvikin séu sem betur fer ekki mörg, en eru þó engu að síður til staðar. Hann segir Öskju hafa aðgang að þjónustukerfi Mercedez Benz í Evr- ópu og geti þar séð hvar og hvenær bílar þeirrar tegundar hafi verið þjónustaðir í álfunni. Slíkt aðgengi geti komið upp um atvik sem þessi. Mikilvægt að fólk sé vakandi „Það er alltaf ákveðin hætta á þessu og þess vegna er mikilvægt að kaupa bíl sem er með þekkta og skráða þjónustusögu. Svo þú vitir hvað þú ert að borga fyrir. Þetta eru auðvitað frjáls viðskipti, en mér finnst mikilvægt að fólk sé mjög vak- andi í þessum viðskiptum og leiti til aðila sem hafa aðgengi að upplýs- ingakerfum framleiðenda,“ segir Jón Trausti við Morgunblaðið. Umræðan um ranga kílómetra- stöðu bíla hefur verið hávær síðustu vikur eftir að upp komst um svindl bílaleigunnar Procar. Þar var átt við kílómetrastöðu bíla fyrirtækisins áð- ur en þeir voru leigðir út til ferða- manna og á endanum seldir. Flókn- ara sé hins vegar að eiga við mál af þeim toga þegar einstaklingar flytja inn bíla frá Evrópu á eigin vegum. „Þú verður bara að leita þíns rétt- ar gegn þeim sem seldi þér bílinn, hvort sem það er hér heima eða er- lendis. En þetta er auðvitað ansi flókið mál ef margir hafa átt bílinn. Sá sem seldi þér bílinn ber ábyrgð gagnvart þér.“ Leita réttar síns ofar í keðjunni Jón trausti bendir þó á að sam- kvæmt íslenskum lögum megi ein- staklingur leita réttar síns ofar í keðjunni. Það er til dæmis í þeim til- vikum þar sem fyrirtæki hefur flutt inn viðkomandi bíl, sem síðan sé á kominn til síns þriðja eiganda hér á landi þegar málið kemst upp. Þá sé hægt að leita réttar síns gegn inn- flutningsaðilanum. „Þetta skiptir neytendur miklu máli að keypt sé vara með réttri kíló- metrastöðu. Þetta hefur mikil áhrif á verðmæti bílsins og þess vegna skiptir miklu máli að þetta séu réttar upplýsingar,“ segir Jón Trausti Ólafsson. Dæmi um svindl í innflutningi bíla  Upp hafa komið tilvik hér á landi þar sem fluttir eru inn notaðir bílar þar sem átt hefur verið við kílómetramæla Morgunblaðið/Kristinn Bílar Notaðir bílar með ranga kílómetrastöðu hafa verið fluttir til landsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.